Skýrslu um bankakerfi skilað - Varnarlína verði dregin til að takmarka áhættu

Starfs­hópur sem skip­aður var á sum­ar­mán­uðum í fyrra hefur skilað skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um mögu­legar leiðir við breyt­ingar á banka­kerf­inu.

Starfs­hópur sem skip­aður var í júlí í fyrra, til að fara yfir breyt­ingar á banka­kerf­inu og koma fram með til­lögur að úrbótum, hefur skilað skýrslu sinni til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í hópnum áttu sæti Guðjón Rún­ars­son, for­maður, Sigurður B. Stef­áns­son, Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, Frosti Sig­ur­jóns­son, og Hjördís Dröfn Vil­hjálms­dóttir.

Skýrsla hóps­ins er yfir­grips­mikil, og er fjallað um helstu álita­mál er varðar end­ur­skipu­lagn­ingu á banka­kerf­inu. Farið er yfir þær miklu breyt­ingar sem þegar hafa verið gerðar á reglu­verki fjár­mála­mark­að­ar­ins eftir árið 2008.

Í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar kemur fram að starfs­um­gjörð fjár­mála­mark­aðar hafi verið gjör­bylt frá fjár­málakrepp­unni 2008 og breyt­ingar í reglu­verki og eft­ir­liti tekið á helstu áhættum sem gerðu banka­kerfið fall­valt í aðdrag­anda hennar. „Bank­arnir standi nú styrkum fótum og ekk­ert bendi til þess að það breyt­ist á næstu miss­erum. Í ljósi sög­unnar sé samt skyn­sam­legt að dregin verði varn­ar­lína um hvað fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi á grunni beinnar og óbeinnar stöðu­töku geti vaxið mikið hjá stærstu bönk­unum, þeim sem telj­ast kerf­is­lega mik­il­vægir hér á landi,“ segir meðal ann­ars í útdrætti úr helstu nið­ur­stöðum hóps­ins.

Hópurinn tók mörg við­töl við vinnu sína, við inn­lenda og erlenda banka­menn, til að fá fram sem flest sjón­ar­mið.

Í lok skýrsl­unnar eru dregin saman atriði sem starfs­hóp­ur­inn, eða nefndin eins og rætt er um hann í skýrsl­unni, telur að þurfi að huga betur að og leggur fram til­lögur að úrbótum. „Nefndin leggur til að ef ein­hver af kerf­is­lega mik­il­vægu bönk­unum hefur í hyggju að auka þá fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi sem felst í beinni og óbeinni stöðu­töku umfram sem nemur 10-15% eig­in­fjár­bind­ingu af eig­in­fjár­grunni, sé þeim banka frjálst að gera það enda verði stofnað sér­stakt félag um fjár­fest­ing­ar­banka­starf­sem­ina. Félögin geta verið hluti af sömu sam­stæðu, en þau verði með óháða stjórn, stjórn­endur og fjár­hag. Slík breyt­ing á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki verði í anda þeirra laga­breyt­inga sem gerðar hafa verið í Bret­landi á grunni Vickers-skýrsl­unnar frá 2011. Til vara leggur nefndin til að lög­gjaf­inn veiti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu skýra heim­ild og skyldu til að grípa til aðgerða ef eft­ir­litið telur að fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi til­tek­ins banka sé orðin það viða­mikil að hún skapi áhættu fyrir við­skipta­bank­ann. Í þeim efnum skal haft í huga að eft­ir­litið hefur í dag heim­ildir til að grípa inn í rekstur banka, en þær eru mjög almennar og því hætta á að hart yrði deilt um lög­mæti slíkrar ákvörð­unar og inn­grip gætu dreg­ist um of. Þá kallar nefndin eftir því að eft­ir­lits­að­ilar skil­greini þá hluta af starf­semi við­skipta­bank­anna sem verður ávallt að vera uppi til að þjóna almenn­ingi og rekstri fyr­ir­tækja í land­inu. Mik­il­vægt er að eng­inn vafi leiki á því hvaða starfs­þættir það eru,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár