Landsbankinn telur „ótímabært“ að fjalla um væntan heildarkostnað nýrra höfuðstöðva

Lands­bank­inn telur ekki tíma­bært að fjalla á ný um væntan heild­ar­kostnað við bygg­ingu stuðla­bergs­skreyttu höf­uð­stöðv­anna sem bank­inn er nú að byggja við Aust­ur­höfn. Ríkið er búið að kaupa hluta húss­ins á um 6.000 millj­ónir króna.

Tölvuteikning af nýja Landsbankahúsinu við Austurhöfn, eins og fyrirséð er að það muni líta út.
Tölvu­teikn­ing af nýja Lands­banka­hús­inu við Aust­ur­höfn, eins og fyr­ir­séð er að það muni líta út. Mynd: Landsbankinn

Eins og sagt var frá á dög­unum hefur íslenska ríkið ákveðið að festa kaup á svoköll­uðu Norð­ur­húsi nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík, undir skrif­stofur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og aðstöðu fyrir Lista­safn Íslands undir sýn­ingar á sam­tíma­list.

Kaup­verðið nemur 6 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, en það sam­svarar rúm­lega helm­ingi heild­ar­kostn­aðar við húsið, alla­vega miðað við þá kostn­að­ar­á­ætlun sem síð­ast var gefin út fyrir bygg­ingu stór­hýs­is­ins í heild.

[adspot]

Lands­bank­inn gerði kostn­að­ar­á­ætlun vegna húss­ins undir árs­lok 2019, og var þá gert ráð fyrir að kostn­aður yrði 11,8 millj­arðar króna, án verð­bóta.

Kjarn­anum lang­aði að fá að heyra hvernig upp­færð kostn­að­ar­á­ætlun bank­ans vegna bygg­ingar húss­ins hljóm­aði, en rík­is­bank­inn hefur verið þög­ull um það í upp­gjörum sínum og árs­skýrslum hvort þess megi vænta að ein­hver við­bót­ar­kostn­aður bæt­ist við þá 11,8 millj­arða sem gert var ráð fyrir í áætlun 2019 og greint frá í árs­skýrslu bank­ans fyrir það ár, sem birt var árið 2020.

Á eftir að semja um tiltekin atriði sem gætu haft áhrif

Í svari sem blaða­manni barst frá Lands­bank­anum sagði að bank­inn teldi „ótíma­bært að fjalla um áætl­aðan heild­ar­kostnað þar sem enn á eftir að semja um til­tekin atriði sem geta haft áhrif til hækk­unar eða lækk­unar“.

Í svari bank­ans er hins vegar bent á að frá því að áætl­unin var gerð hefði bygg­ing­ar­vísi­tala hækkað um u.þ.b. 20 pró­sent og kostn­aður hefði fallið til sökum þess að bygg­ing húss­ins hefði tekið lengri tíma en áætlað var.

Upp­haf­lega hafi verið gert ráð fyrir því að bygg­ingu húss­ins yrði lokið um mitt ár 2022, en að nú væri miðað við að bank­inn flytti starf­semi höf­uð­stöðva sinn í húsið undir lok árs­ins. Byggingu húss­ins í heild sinni á svo að ljúka árið 2023, en verk­lok við Norð­ur­húsið, þann hluta sem ríkið hefur nú fest kaup á, eru áætluð næsta vor, sam­kvæmt svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[box]

Kostnaður upphaflega metinn 9 milljarðar

Þegar banka­ráð Lands­bank­ans ákvað árið 2017 að láta byggja nýtt hús á lóð­inni við Aust­ur­höfn, sem bank­inn hafði keypt árið 2014, var gert ráð fyrir því að bygg­ing húss­ins að með­töldu lóð­ar­verð­inu yrði 9 millj­arðar. Helga Björk Eiríks­dóttir stjórn­ar­for­maður Lands­bank­ans greindi svo frá upp­færðri kostn­að­ar­á­ætlun bank­ans vegna verks­ins í ávarpi sínu í árs­skýrslu bank­ans fyrir árið 2019, þegar hún var birt í upp­hafi árs 2020.

„Þegar búið var að leggja mat á til­lögur sem bár­ust um hönnun húss­ins var ljóst að bygg­ingin yrði kostn­að­ar­sam­ari en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. Við bætt­ist kostn­aður vegna ákvörð­unar um að húsið yrði umhverf­is­vottað sam­kvæmt BREEAM-umhverf­is­staðl­inum. Samkvæmt þeirri kostn­að­ar­á­ætlun sem banka­ráð hefur sam­þykkt er nú reiknað með að heild­ar­kostn­aður við bygg­ing­una verði 11,8 millj­arðar króna. Þrátt fyrir að kostn­aður verði því um 1,8 millj­örðum króna hærri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir er ljóst að flutn­ingur í húsið mun hafa í för með sér nauð­syn­lega hag­ræð­ingu,“ sagði í ávarpi Helgu Bjarkar.

Þá hafði hækkun á bygg­ing­ar­vísi­tölu frá því að ákvörðun um bygg­ingu húss­ins var tekin þegar aukið vænt­an­heild­ar­kostnað upp í 10 millj­arða króna. Lands­bank­inn hefur gert ráð fyrir því að flutn­ingur höf­uð­stöðv­anna í húsið spari um hálfan millj­arð króna á ári, en höf­uð­stöðvar bank­ans eru nú dreifðar um Kvosina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár