Skipar starfshóp um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabanka

Benedikt Jóhann­es­son er að skipa starfs­hóp til að skoða kosti og galla aðskiln­aðar á við­skipta- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi. Hópurinn á að skila skýrslu í vor sem lögð verður fyrir Alþingi.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur ákveðið að skipa starfs­hóp sem á að skoða kosti og galla þess að aðskilja við­skipta­banka- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi íslenskra banka. Starfs­hóp­ur­inn á að skila skýrslu sem ráð­herra hyggst leggja fram á Alþingi á yfir­stand­andi vor­þingi.

Í bréfi sem Seðla­banki Íslands sendi efna­hags- og við­skipta­nefnd vegna óskar hennar um umsögn bank­ans um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðskilnað við­skipta­banka- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi kemur fram að bank­inn myndi ekki skila slíkri. Ástæðan væri sú að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði óskað eftir því við bank­ann að hann til­nefni full­trúa í starfs­hóp sem hafi það verk­efni að skoða kosti og galla þess að aðskilja við­skipta­banka- og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi.

Ekkert hefur verið greint frá til­vist slíks starfs­hóps opin­ber­lega og Kjarninn beindi því fyr­ir­spurn til ráðu­neyt­is­ins um málið.

Í svari þess er stað­fest að til standi að skipa umræddan starfs­hóp og að hann eigi að skila af sér á vor­þingi. Óskað hefur verið eftir því að Fjár­mála­eft­ir­litið, Seðla­banki Íslands og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið skipi full­trúa í hóp­inn. Enn sem komið er þá er hóp­ur­inn ekki mann­aður en mælst var til þess að til­nefn­ingar myndu ber­ast ráðu­neyt­inu eigi síðar en í dag, 8. mars.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir enn fremur að starfs­hóp­ur­inn sem áformað sé að skipa muni nánar til tekið fá það hlut­verk að skoða erlenda lög­gjöf um aðskilnað við­skipta­banka- og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi og leggja mat á það hvaða kostir og gallar séu á slíkri lög­gjöf fyrir fjár­mála­markað hér á landi. „Þá skuli hann skoða og hvort ástæða sé til að tak­marka áhættu af fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi alhliða banka, og þá hvaða leiðir séu færar. Sér­stak­lega mun starfs­hóp­ur­inn nýta vinnu starfs­hóps sem skip­aður var af fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hinn 27. apríl 2016 um svipað verk­efni, en sá hópur skil­aði áfanga­skýrslu haustið 2016.“

Ráðu­neytið greiðir ekki sér­stak­lega fyrir störf í starfs­hópnum og valið verður úr til­nefn­ingum svo að kynja­skipt­ing verði sem jöfn­ust.

Sá hópur sem skip­aður var á síð­asta kjör­tíma­bili, og skil­aði áfanga­skýrslu í haust, sam­an­stóð af full­trúum sömu aðila og eiga að til­nefna í nýja hóp­inn. Hann átti upp­haf­lega að skila til­lögum sínum í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. sept­em­ber 2016, en af því varð ekki. Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður Leifi Arnkeli Skarp­héð­ins­syni, sér­fræð­ingi á skrif­stofu efna­hags­mála og fjár­mála­mark­aðar hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og jafn­framt for­manni hóps­ins, Sigríði Bene­dikts­dóttur, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, Sigríði Loga­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi Seðla­bank­ans, Jóni Þór Sturlu­syni, aðstoð­ar­for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og Björk Sig­ur­gísla­dóttur, lög­fræð­ingi hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár