Hraðar uppgreiðslur og minni eftirspurn skýri minni útlán

Útlán Íslands­banka til bygg­ing­ar­geirans hafa lækkað, en sam­kvæmt bank­anum er ástæðan ekki sú að hann hafi synjað verk­efnum. Frekar megi skýra minnkun­ina með minni eft­ir­spurn og hrað­ari upp­greiðslum lán­tak­enda.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka Mynd: Aðsend

Íslands­banki segir að ástæðan fyrir að útlán bank­ans til bygg­ing­ar­iðn­aðar hafi minnkað sé sam­blanda af minnk­andi eft­ir­spurn eftir slíkum lánum og hrað­ari upp­greiðslum á útistand­andi lánum. Ástæðan sé ekki sú að bank­inn hafi synjað verk­efnum. Þetta kemur fram í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað áður hefur virði útlána íslensku bank­anna til bygg­ing­ar­starf­semi minnkað um tugi millj­arða króna á síð­ustu mán­uðum. Nettó útlán þeirra í þessum flokki hafa verið nei­kvæð átta árs­fjórð­unga í röð.

Útlána­staða Íslands­banka til bygg­ing­ar­iðn­aðar á milli síð­ustu og þar­síð­ustu ára­móta hefur minnkað um tvo millj­arða króna, en það er svipuð minnkun og hefur átt sér stað hjá Kviku. Minnkunin er þó mun meiri hjá Lands­bank­anum, þar sem virði útlána í geir­anum var 16 millj­örðum krónum minni við síð­ustu ára­mót heldur en ára­mótin þar á undan.

Þrátt fyrir þessa minnkun sagði Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, í við­tali við mbl.is að bank­inn hefði ekki dregið úr lán­veit­ingum til íbúða­upp­bygg­ingar og að í raun­inni sé mikil sam­keppni á milli bank­anna um hvert fast­eigna­verk­efni.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um þessi ummæli segir bank­inn að útlána­minnkun Íslands­banka í geir­anum megi að hluta til skýra vegna hrað­ari upp­greiðslna bygg­ing­ar­verk­taka sem hafa tekið slík lán. Hins vegar sé einnig minni eft­ir­spurn eftir lánum í bygg­ing­ar­geir­anum. Íslands­banki bætir við að minnkun­ina megi ekki skýra með því að hann sé að hafna verk­efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár