Tölvupóstur bankastjóra til starfsmanna: Ekki komist hjá breytingum

Þeim starfs­mönnum Arion banka sem verður gert að hætta störfum í fjölda­upp­sögnum dags­ins verður til­kynnt það eins fljótt og auðið er. Um 80 pró­sent þeirra sem missa vinn­una hafa starfað í höf­uð­stöðvum Arion banka í Borg­ar­túni.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, sagði í tölvu­pósti sem hann sendi starfs­mönnum í morgun að bank­inn hafi þurft að til­kynna um upp­sagnir á um 100 starfs­mönnum og aðrar skipu­lags­breyt­ingar fyrst í Kauphöll. Það hafi verið gert um leið og ákvörðun stjórnar Arion banka lá fyrir, en hún fund­aði í morgun og sam­þykkti skipu­lags­breyt­ing­arnar. 

[links]Í tölvu­póst­inum, sem Kjarninn er með afrit af, segir enn fremur að þeim sem verður gert að hætta störfum verði til­kynnt það eins fljótt og auðið er. Um 80 pró­sent þeirra sem missa vinn­una hafa starfað í höf­uð­stöðvum Arion banka í Borg­ar­túni. „Við teljum aðstæður í umhverfi bank­ans, eig­in­fjár­kröfur, skattar og harðn­andi sam­keppni, sem og háan rekstr­ar­kostnað, vera þess eðlis að ekki sé lengur hjá því kom­ist að gera breyt­ingar sem miða að því að ein­falda starf­sem­ina. Við þurfum að aðlaga okkur að aðstæðum hverju sinni,“ segir Benedikt í tölvu­póst­inum.

Þar kemur einnig fram að bank­inn ætli sér að „gera það sem við getum til að gera þeim sem í dag hætta störfum starfs­lokin létt­bær­ari.“ Komið hefur fram hjá Vinnu­mála­stofnun að það starfs­fólk sem missir vinn­una fái við­bótar mánuð greiddan í upp­sagn­ar­frest við þann frest sem starfs­samn­ingar þess segja til um. 

Gert til að auka arðsemi

Greint var frá því í morgun að stjórn Arion banka hefði tekið ákvörðun um að inn­leiða nýtt skipu­lag sem tæki sam­stundis gildi. Starfs­­fólki bank­ans mun við þessar breyt­ingar fækka um 12 pró­­sent, eða um eitt hund­rað. Þar af starfa um 80 pró­­sent í höf­uð­­stöðv­­unum bank­ans og um 20 pró­­sent í úti­­­bú­­um.

[adspot]Skipu­lags­breyt­ing­­arnar eru liður í veg­­ferð bank­ans að ná settum mark­miðum um 50 pró­­sent kostn­að­­ar­hlut­­fall og arð­­semi eigin fjár umfram tíu pró­­sent. 

Kostn­aður vegna starfs­loka þeirra 100 starfs­manna Arion banka sem missa vinn­una í dag er áætl­aður tæp­lega 900 millj­ónir króna. Hann verður gjald­færður á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019. Eftir skatta nema áhrif aðgerð­anna um 650 millj­ónum króna á afkomu þess árs­fjórð­ungs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár