Arion banki fækkar starfsfólki um eitt hundrað

Arion banki hefur inn­leitt nýtt skipu­lag sem felur í sér að starfs­fólki bank­ans fækkar um 12 pró­sent.

Stjórn Arion banka sam­þykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipu­lag bank­ans sem tekur gildi í dag. Starfs­fólki bank­ans mun við þessar breyt­ingar fækka um 12 pró­sent, eða um eitt hund­rað. Þar af starfa um 80 pró­sent í höf­uð­stöðv­unum bank­ans og um 20 pró­sent í úti­búum. Vinnu­mála­stofnun hefur verið greint frá þessu.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að skipu­lags­breyt­ing­arnar séu liður í veg­ferð bank­ans að ná settum mark­miðum um 50 pró­sent kostn­að­ar­hlut­fall og arð­semi eigin fjár umfram tíu pró­sent.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir að dag­ur­inn í dag verði erf­iður þar sem bank­inn kveðji hæft og gott starfs­fólk. Ljóst sé hins vega að rekst­ar­kostn­aður bank­ans sé of hár og skipu­lag bank­ans taki ekki nægj­an­lega vel mið af núver­andi mark­aðs­að­stæðum og þörfum atvinnu­lífs­ins. „Umhverfi fjár­mála­fyr­ir­tækja hefur breyst mikið á und­an­förnum árum. Íþyngj­andi breyt­ingar á reglu­verki og sköttum á síð­ast­liðnum ára­tug hafa leitt af sér mik­inn við­bót­ar­kostnað.

[adspot]Það er stað­reynd að eig­in­fjár­kröfur og skattar á banka hér á landi eru langt umfram það sem tíðkast í lönd­unum í kringum okkur og skerða sam­keppn­is­stöðu þeirra. Jafn­framt er sam­keppni á fjár­mála­mark­aði að aukast til mik­illa muna, t.a.m. frá líf­eyr­is­sjóðum, rík­is­bönkum, fjár­tækni­fyr­ir­tækjum og minni fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem lúta um margt öðrum lög­málum en kerf­is­lega mik­il­vægir bankar. Vegna þessa hefur arð­semi bank­ans nú um nokk­urt skeið ekki verið nægj­an­lega góð.“

Sviðum fækkað og verkefni færast til

Sviðum bank­ans fækkar um tvö og ýmis verk­efni fær­ast til innan bank­ans með það að mark­miði að ein­falda starf­sem­ina. Tekju­svið Arion banka verða þrjú: við­skipta­banka­svið, fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­svið og mark­aðir. Stoðsvið verða einnig þrjú: fjár­mála­svið, upp­lýs­inga­tækni­svið og áhættu­stýr­ing.

[adspot]Með skipu­lags­breyt­ing­unum sé Arion banki að bregð­ast við aðstæðum til tryggja að bank­inn þjóni við­skipta­vinum en skili líka hlut­höfum arði. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að megin breyt­ingin felist í að starf­semi fjár­fest­inga­banka­sviðs fær­ist á tvö ný svið, ann­ars vegar mark­aði og hins vegar fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­banka­svið. „Markaðir munu hafa það hlut­verk að skerpa áherslur bank­ans á sviði verð­bréfa­starf­semi en fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­svið mun veita fyr­ir­tækjum og stofn­unum heild­stæða þjón­ustu varð­andi fjár­mögnun og ráð­gjöf. Bankinn mun efla þjón­ustu við þá sem leita að sem hag­kvæm­astri fjár­mögnun m.a. með milli­göngu um fjár­mögnun frá þriðja aðila, svo sem sjóðum og öðrum stofn­ana­fjár­festum.“

Hefur legið í loftinu í meira en ár

Kjarninn greindi frá því á mánu­dags­morgun að stórt hag­ræð­ing­ar­skref væri í kort­unum hjá Arion banka og að það yrði stigið í þess­ari viku. Í frétta­skýr­ingu Kjarnans var rakið að það hefði legið fyrir opin­ber­lega í meira en ár að það væru stefna bank­ans að draga veru­lega úr rekstr­ar­kostn­aði, og það yrði fyrst og síð­ast gert með því að fækka starfs­fólki.

Í aðdrag­anda þess að Arion banki var skráður á markað um mitt síð­asta ár var send út til­kynn­ing þar sem kom fram að mark­mið bank­ans yrði að vera með arð­semi eigin fjár sem væri yfir tíu pró­sent, en hún hafði verið 3,6 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018.

[links]Upp­gjör bank­ans vegna síð­asta árs olli miklum von­brigð­um. Arð­semin var ein­ungis 3,7 pró­sent og hagn­aður árs­ins 7,8 millj­arðar króna. Það var 6,6 millj­örðum krónum minna en árið áður.

Stór ástæða þessa var sú að þrír stórir við­skipta­vinir bank­ans lentu í veru­legum vand­ræð­um, eða fóru bein­línis á haus­inn með til­heyr­andi útlána­töpum og afskriftum á kröf­um.

Þar var um að ræða United Sil­icon, Pri­mera Air og loks WOW air.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 nam hagn­aður bank­ans alls 3,1 millj­­­arði króna en var fimm millj­­­arðar króna á sama tíma­bili í fyrra. Arð­semi eigin fjár Arion banka hefur haldið áfram að vera slök. Hún var var 4,3 pró­­­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 og ein­ungis 2,1 pró­­­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins.

Bankastjórinn boðaði breytingar

Í við­tali við Mark­að­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, fyrir rúmum tveimur vikum sagði Bene­dikt Gíslason: „Það er erfitt að horfa framan í hlut­hafa þegar arð­semin er undir áhættu­lausum vöxtum í land­inu. Á hverjum degi höfum við þá ekki verið að búa til verð­mæti fyrir hlut­hafa heldur að rýra þau. Þessu þurfum við að breyta og laga.“

Mark­mið hans væri ekki að Arion banki yrði stærsti bank­inn bank­inn á Íslandi heldur að hann skap­aði arð­semi fyrir hlut­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár