Uppsagnir og breytingar spara Arion banka 1,3 milljarð króna á ári

Afkoma Arion banka á að batna um 1,3 millj­arða króna á ári eftir þegar kostn­aður við upp­sagnir 100 starfs­manna verður að fullu greiddur. Hann er áætl­aður tæp­lega 900 millj­ónir króna fyrir skatta.

Kostn­aður vegna starfs­loka þeirra 100 starfs­manna Arion banka sem missa vinn­una í dag er áætl­aður tæp­lega 900 millj­ónir króna. Hann verður gjald­færður á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019. Eftir skatta nema áhrif aðgerð­anna um 650 millj­ónum króna á afkomu þess árs­fjórð­ungs.

[links]Áætlað er að breyt­ing­arnar, sem fela einnig í sér skipu­lags­breyt­ingar auk upp­sagna á um 12 pró­sent starfs­manna Arion banka, muni að óbreyttu hafa jákvæð áhrif á afkomu bank­ans um 1,3 millj­arða króna á árs­grund­velli, að teknu til­liti til skatta. Fyrsti árs­fjórð­ung­ur­inn þar sem áhrif­anna gætir verður fjórði árs­fjórð­ungur yfir­stand­andi árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Arion banka til Kaup­hallar Íslands.

Greint var frá því í morgun að stjórn Arion banka hefði tekið ákvörðun um að inn­leiða nýtt skipu­lag sem tæki sam­stundis gildi. Starfs­fólki bank­ans mun við þessar breyt­ingar fækka um 12 pró­sent, eða um eitt hund­rað. Þar af starfa um 80 pró­sent í höf­uð­stöðv­unum bank­ans og um 20 pró­sent í úti­bú­um.

Verð á hluta­bréfum í Arion banka hafa hækkað um 2,26 pró­sent frá því að mark­að­ur­inn opn­aði í morgun.

Breytingar á framkvæmdastjórn

Skipu­lags­breyt­ing­arnar eru liður í veg­ferð bank­ans að ná settum mark­miðum um 50 pró­sent kostn­að­ar­hlut­fall og arð­semi eigin fjár umfram tíu pró­sent. 

[adspot]Eft­ir­far­andi munu skipa fram­kvæmda­stjórn Arion banka eftir breyt­ing­arnar: Benedikt Gíslason, banka­stjóri, Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason, aðstoð­ar­banka­stjóri og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs, Iða Brá Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs, Margrét Sveins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mark­aða, Gísli S. Ótt­ars­son, fram­kvæmda­stjóri áhættu­stýr­ingar, og Stefán Pét­urs­son fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs. Staða fram­kvæmda­stjóra upp­lýs­inga­tækni­s­viðs verður aug­lýst laus til umsóknar.

Úr fram­kvæmda­stjórn stíga Lýður Þór Þor­geirs­son og Rúnar Magni Jónsson en báðir taka við nýjum stöðum innan fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs. Lýður Þór mun taka við starfi for­stöðu­manns fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og Rúnar Magni við starfi for­stöðu­manns á sviði fjár­mögn­unar fyr­ir­tækja. Birna Hlín Kára­dóttir hefur verið ráðin yfir­lög­fræð­ingur Arion banka og mun stýra lög­fræði­ráð­gjöf á skrif­stofu banka­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár