Menntun og menning - Hvað segja flokkarnir?

Nær allir flokk­arnir sem bjóða sig fram í kosn­ing­unum um helg­ina hafa sent inn stefnu­mál sín á vef­síð­una Betra Ísland. Kjarninn tók saman helstu áherslur flokk­anna í mennta- og menn­ing­ar­málum.

Nú er síð­asti séns að ákveða hvaða flokk skal kjósa í alþing­is­kosn­ingum enda kjör­dagur í dag. Þá er ekki úr vegi að athuga hverjar hug­myndir flokk­anna eru, sem bjóða sig fram, um menntun og menn­ingu í land­inu.

Kjarninn tók saman helstu áherslu­mál í mála­flokknum en allir flokk­arnir nema einn hafa skilað inn stefnu­málum á Betra Ísland. Hægt er að taka þátt umræð­unni á síð­unni sjálfri.

Á vef­síð­unni Betra Ísland er hægt að lesa um fleiri stefnu­mál flokk­anna og taka þátt í rök­ræðum.

Framsóknarflokkurinn

Framsókn vill hækka end­ur­greiðslu í 25 pró­sent vegna nýsköpun og rann­sókna. Þau benda á að rann­sóknir og nýsköpun í dag séu und­ir­staða kröft­ugs hag­vaxtar og vel­meg­unar í fram­tíð­inni. Framsókn telur skyn­sam­legt og nauð­syn­legt efla stuðn­ing við rann­sóknir og nýsköpun.

Skapa þurfi ný tæki­færi á umbreyt­inga­tímum sem framundan eru. Framsókn vill öfl­ugt mennta­kerfi og fjár­festa í hug­verka- og þekk­ing­ar­iðn­aði. Með auk­inni rann­sókna- og þró­un­ar­starf­semi megi tryggja vel­ferð og hag­sæld til fram­tíðar. Framsókn sé flokkur fjöl­skyld­unnar og vill hann fjár­festa í menntun í fram­tíð­inni.

Skapa þurfi hvata til að laða ungt vel menntað fólk til þess að setj­ast að á lands­byggð­inni, líkt og Norðmenn hafa gert. Framsókn vill að afborg­anir séu felldar niður af náms­lánum í fimm ár fyrir þá sem eru búsettir á skil­greindum svæðum á lands­byggð­inni.

Sala tón­listar fer í auknum mæli fram á net­inu og tón­list­ar­menn fá sífellt minna í sinn hlut. Framsókn seg­ist vilja styðja við öfl­ugt tón­list­ar­líf og tón­list­ar­iðnað í land­inu og leggja niður virð­is­auka­skatt af sölu tón­listar á net­inu, á geisla­diskum og hljóm­plötum.

Bóksala hefur dreg­ist saman um 31 pró­sent frá árinu 2008 og 11 pró­sent sam­dráttur var í bók­sölu árið 2016 miðað við fyrra ár. Þau segj­ast vilja afnema virð­is­auka­skatt af bókum og raf­bókum til að efla lestur og styrkja inn­lent fræða­starf og auðga íslenska tungu sem á undir högg að sækja.

Vinstri græn

VG telur að grunn­skól­inn sé eitt mik­il­væg­asta jöfn­un­ar­tæki sam­fé­lags­ins. Standa þurfi vörð um fjöl­breytta og öfl­uga opin­bera grunn­skóla þar sem kenn­arar, nem­endur og fjöl­skyldur vinna saman að alhliða menntun og þroska barna og ung­menna.

Fram­halds­skólum verði tryggt svig­rúm til eigin stefnu­mót­unar innan ramma fram­halds­skóla­laga. Tryggja þurfi full­nægj­andi fjár­magn til að fram­halds­skól­inn geti sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki. Nauð­syn­legt sé að það fjár­magn sem spar­að­ist með stytt­ingu náms­tíma til stúd­ents­prófs skili sér inn í rekstur fram­halds­skól­anna eins og lofað var.

Tryggja þurfi að fram­lög á hvern háskóla­nema nái sem fyrst með­al­tali OECD og í kjöl­farið verði þau hækkuð þannig að Ísland standi jafn­fætis öðrum Norð­ur­löndum í takt við sam­þykkta stefnu Vísinda- og tækni­ráðs.

VG vill brúa bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Þau telja að gera þurfi leik­skóla gjald­frjálsa í áföngum.

Vinstri græn vilja náms­styrkt­ar­kerfi að nor­rænni fyr­ir­mynd.

Samfylkingin

Mennta­kerfið gegnir mik­il­vægu hlut­verki við að auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu, mæta öllum börnum og ung­mennum þar sem þau eru og gefa fólki tæki­færi til að styrkja stöðu sína á vinnu­mark­aði jafn sem fyrir frekara nám.

Þau viljum fara í stór­sókn í skóla­málum og skap­andi greinum fyrir sam­fé­lag fram­tíðar. For­gangs­verk­efni er að efla mennta­kerfið á öllum skóla­stigum, bæta starfs­að­stæður og kjör kenn­ara og gera skól­unum kleift að bregð­ast við hröðum tækni- og sam­fé­lags­breyt­ingum.

Alþýðufylkingin

Alþýðu­fylk­ingin segir að menntun sé mann­rétt­indi, sam­fé­lags­leg gæði frekar en mark­aðsvara. Hver og einn eigi að geta valið sér menntun við hæfi, end­ur­gjald­laust.

Miðflokkurinn

Þau segj­ast ætla að styðja sér­stak­lega við iðn- og tækni­nám í fram­halds- og háskólum með fjár­magni og sam­starfi því að fram­tíðin er núna. „Við þurfum að und­ir­búa sam­fé­lagið fyrir breyttan heim og störf fram­tíð­ar­innar. Mótaðu fram­tíð­ina með okkur!“ segir í áherslum þeirra. 

Viðreisn

Lista­há­skóli Íslands er í dag í nokkrum húsa­kynnum og eitt þeirra er bók­staf­lega að molna niður. Viðreisn segir að við þessu verði að bregð­ast.

Þau segja að efla þurfi menn­ing­ar­tengda sam­keppn­is­sjóði, þ.e. launa- og verk­efna­sjóði og úthlutun eigi að vera opin og fag­leg. Það þurfi að gera þessa sjóði þannig að þeir stuðli að nýliðun í grein­inni en jafn­framt að þeir sem eru orðnir sjó­aðir í grein­inni geti haldið áfram að sækja um styrk fyrir verk­efni.

Píratar

Píratar vilja stefna að fullum og algjörum aðskiln­aði ríkis og kirkju, jafnri stöðu allra trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Þau segja að menntun sé lyk­ill­inn að fram­tíð­ar­sam­fé­lag­inu. Jafnt aðgengi allra að námi á öllum stigum sé mark­mið þeirra. Jafn­framt vilja þau vinna mark­visst að því innan mennta­kerf­is­ins að draga úr kyn­bundnum hindr­unum við val á námi og starfs­sviði.

Þau benda á að lýð­ræði ger­ist ekki sjálf­krafa og að sam­fé­lags­sátt­mál­inn bygg­ist á sam­tali, sam­þykki og sam­vinnu. Þau vilja því efla kennslu um lýð­ræði, heim­speki og sam­fé­lags­mál sem og þjálfun í gagn­rýnni hugsun og lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum á öllum skóla­stigum.

Þau segja að það sé dýrt og ósann­gjarnt gagn­vart nem­endum að hafa lista­há­skól­ann á fimm mis­mun­andi stöðum. „Sameinum skól­ann undir eitt þak eins og hefur verið lofað síðan 1999. Hluti núver­andi hús­næðis er með slæmt myglu­vanda­mál sem getur valdið heilsutjóni og því þarf að bregð­ast við strax. Deilið og lækið ef þið eruð sam­mála um að þetta eigi ekki að bíða lengur.“

[links]

Þekking er og verður áfram grunn­for­senda hárra launa og öfl­ugs hag­vaxtar. Til að allir hafi jöfn tæki­færi til þátt­töku í þess­ari fram­tíð þarf mennta­kerfi sem tryggir öllum aðgang án til­lits til efna­hags, búsetu eða ald­urs - allt frá leik­skóla til háskóla og end­ur­mennt­unar, að þeirra mati. Þau vilja að í mennta­kerf­inu sé jafn­vægi milli bók-, list- og verk­greina, með lítið heima­nám, smærri bekki og virð­ingu fyrir starfi kenn­ara sem sést í háum launum.

Píratar telja að höf­undar eigi rétt á að njóta ágóða af verkum sínum. End­ur­skoða og sam­ræma þurfi lög­gjöf um höf­unda­rétt innan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins og á alþjóða­vísu; svo sem lög um gild­is­tíma höf­unda­réttar, sæmd­ar­rétt, höf­unda­rétt í almenn­ings­rýmum, und­an­þágur vegna skop­stæl­inga, notkun hug­verka í mennta­til­gangi, leyfi til gagna­úr­vinnslu, staf­ræna útgáfu verka o.fl.

Þau vilja að Íslend­ingar taki sér finnska mennta­kerfið til fyr­ir­myndar í auknum mæli og stefni að fjöl­breytt­ara náms­mati, auknu jafn­vægi á milli bók­náms, verk­náms, list­náms og ann­arra greina, minna heima­námi, smærri bekkjum o.fl.

Grunn­fram­færsla LÍN skuli leið­rétt og miðuð við eðli­legar fjár­þarfir fólks í námi. Þau vilja stefna að afnámi tekju­skerð­ingar náms­lána og því að LÍN veiti nem­endum lán við upp­haf náms, svo að þeir þurfi ekki að leita til einka­að­ila á þeim tíma­punkti.

Aðgangur allra að menntun eru mik­il­væg mann­rétt­indi sem stuðla að jafn­ari tæki­færum allra til að nýta hæfi­leika sína og ná mark­miðum sínum, að þeirra mati. „Vel mennt­aðir borg­arar stuðla að upp­lýst­ara sam­fé­lagi. Tryggjum öllum lands­mönnum rétt­indi til mennt­unar.“

Sjálfstæðisflokkurinn

Þau ætla að end­ur­skoða kennslu­að­ferðir og skóla­starf í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lög, kenn­ara, nem­endur og for­eldra. Íslend­ingar þurfi að hugsa mennta­mál upp á nýtt með fag­fólki, kenn­urum, nem­endum og for­eldrum. Í heimi sem breyt­ist hratt verði mennta­kerfið að vera sveigj­an­legt og fram­sækið til að halda í við þróun og alþjóð­lega sam­keppni.

Björt framtíð

Björt fram­tíð seg­ist vilja öfl­ugt háskóla­kerfi, fjöl­breytt náms­fram­boð og áherslu á rann­sóknir og nýsköpun. Fjár­fram­lög á hvern háskóla­nema á Íslandi eru lægri en að með­al­tali í OECD-ríkj­unum og mun lægri en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum.

Þau segja að sá fjöl­breytti hópur sem býður sig fram fyrir Bjarta fram­tíð sé und­an­tekn­ing­ar­laust áhuga­fólk um menn­ing­ar­mál og margt af því sé virkt á því sviði á einn eða annan hátt. Áhugi á menn­ingu sé því ekki bara til staðar á tylli­dögum hjá fram­bjóð­endum Bjartrar fram­tíðar heldur sjálf­sagður hluti af hvers­dags­líf­inu.

Næsti mennta­mála­ráð­herra þurfi að leysa hús­næð­is­vanda LHÍ. „Jafnræði til náms felst líka í að hafa efni á því að sækja það nám sem þú hefur áhuga á, mjög há skóla­gjöld eru í LHÍ. Mik­il­vægt er að efla fjár­mögn til skól­ans,“ segir í áherslum þeirra.

Björt fram­tíð vill styrkja rekstur fram­halds­skóla lands­ins sem hafa búið við mjög þröngan kost und­an­farin ár og eru raunar komnir að þol­mörkum eftir við­var­andi nið­ur­skurð. Þau telja nauð­syn­legt að auka fjöl­breytni og sveigj­an­leika í fram­halds­skóla­kerf­inu.

Flokkur fólks­ins hefur ekki skilað inn stefnu­málum sínum á síð­una og áherslur Dögunar vantar varð­andi mennta- og menn­ing­ar­mál.

Tekið skal fram að þessi listi er ekki tæm­andi og ein­ungis er um að ræða áherslur sem birt­ast á Betra Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár