Helstu stefnumál flokkanna á einum stað – Hvernig sjá flokkarnir fyrir sér heilbrigðiskerfið?

Flestir flokk­arnir sem bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum um næstu helgi hafa sent inn stefnu­mál sín á vef­síð­una Betra Ísland. Kjarninn tók saman helstu áherslur flokk­anna í heil­brigð­is­málum eins og þau eru fram­sett á síð­unni.

Mikið mæðir á heilbrigðiskerfinu á Íslandi og varðar málaflokkurinn alla landsmenn.
Mikið mæðir á heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi og varðar mála­flokk­ur­inn alla lands­menn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrátt fyrir að áherslur flokk­anna séu oft og tíðum sam­bæri­legar í heil­brigð­is­málum þá ber þó oft á milli þeirra. Á vef­síð­unni Betra Ísland er hægt að lesa helstu stefnu­mál flokk­anna og taka þátt í rök­ræðum.

Til­gang­ur­inn með síð­unni er að tengja saman almenn­ing og þing­menn, hvetja til góðrar rök­ræðu og að fá fólk til að tala saman og byggja upp traust. Þetta segir Róbert Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri Íbúa ses. en lesa má frekar um verk­efnið í frétt Kjarnans um vef­síð­una. 

Kjarninn tók saman helstu áherslu­mál í heil­brigð­is­málum en allir flokk­arnir nema einn hafa skilað inn stefnu­málum á Betra Ísland. Hægt er að lesa um fleiri stefnu­mál og taka þátt í umræðum á síð­unni sjálfri.

Alþýðufylkingin

Allir eiga að hafa rétt á gjald­frjálsri heil­brigð­is­þjón­ustu, í heima­hér­aði eftir því sem hægt er. Það þýðir massífa upp­bygg­ingu heilsu­gæslu og sjúkra­húsa­þjón­ustu um allt land. Og heil­brigð­is­þjón­usta er ekki fyrsta flokks nema allir geti notið hennar. Í dag leitar fimmti hver Íslend­ingur sér ekki lækn­is­hjálpar vegna kostn­aðar. Á meðan svo er, er okkar kerfi ekki fyrsta flokks. Þetta segir í stefnu Alþýðu­fylk­ing­ar­innar.

Þau vilja einnig leggja niður Sjúkra­trygg­inar Íslands og veita pen­ing­unum, sem þær borga núna fyrir lækn­is­að­gerðir hvort sem þær eru fram­kvæmdar á opin­beru sjúkra­húsi eða einka­rek­inni stofu. Þau vilja veita þeim pen­ingum beint til opin­berra sjúkra­húsa, einkum Land­spít­al­ans, til þess að hann geti annað hlut­verki sínu betur.

Á stefnu­skrá þeirra segir það þurfi að hækka laun margra heil­brigð­is­stétta veru­lega til að laða hæft fólk að, umb­una því sem skyldi og draga úr und­ir­mönnun. Lág laun í litlu atvinnu­leysi þýði ein­fald­lega að fólk fer annað. Álagið á þá sem eftir eru verði óþol­andi og geti auk þess orðið hættu­legt.

Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn ætlar að byggja nýjan Land­spít­ala á nýjum og betri stað, aðlað­andi vinnu­stað sem stuðlar að betri líðan sjúk­linga. Hann biðlar til fólks­ins að móta fram­tíð­ina með þeim.

Viðreisn

Viðreisn seg­ist vilja stór­efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi. Færa skuli sál­fræði­þjón­ustu undir kerfi almanna­trygg­inga í skrefum en for­gangs­raða í þágu yngstu og við­kvæm­ustu hópanna.

Þau vilja að tryggt verði aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu fyrir nem­endur á öllum skóla­stigum. Fjölga þurfi stöðu­gildum sál­fræð­inga á heilsu­gæslu­stöðum. „Við þurfum líka að efla þjón­ust­una um allt land og við megum ekki vera hrædd við nýjar útfærslur á þjón­ust­unni,“ segir í stefnu þeirra.

Píratar

„Heil­brigð­is­málin fyrst og fremst: Framsýn stjórn­völd tryggja að allir fái bestu mögu­legu heil­brigð­is­þjón­ustu þegar þörf krefur, óháð efna­hag og óháð búsetu,“ segir í stefnu Pírata.

Píratar líta svo á að öruggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu sé ekki til staðar fyrir alla fyrr en í fyrsta lagi að heilsu­gæsla sé í nærum­hverfi fólks, í öðru lagi að fólk geti sótt lækn­is­að­stoð þó það hafi ekki efni á því og í því þriðja að biðlistar séu ekki það langir að heilsa fólks sé í hættu.

Þau vilja setja af stað fag­lega, óháða stað­ar­vals­grein­ingu á helstu mögu­legum stað­setn­ingum nýja Land­spít­al­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Þeirri úttekt ætti að vera lokið innan árs og ætti að taka mið af svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og þróun íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu til fram­tíðar. Í kjöl­farið verði lands­mönnum falið að velja milli helstu val­kosta í vand­aðri við­horfskönnun eða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Framsóknarflokkurinn

Framsókn telur að almenn ein­ing ríki um að gera þurfi betur í heil­brigð­is­málum á Íslandi. Flokk­ur­inn segir að hann hafi staðið fyrir sam­þykkt heil­brigð­is­á­ætl­unar fyrir Ísland. Þrjú verk­efni þoli ekki bið: Hjúkr­un­ar­heim­ilum þurfi að fjölga, reisa þurfi þjóð­ar­sjúkra­hús og efla þurfi heilsu­gæslu. Þau vilja greina hvar brýn­asta þörfin sé fyrir grunn­þjón­ustu.

Þau benda á að kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga á Íslandi sé hærri en á Norð­ur­lönd­unum. Núver­andi kerfi sé íþyngj­andi sér­stak­lega ef fólk er búið að greiða hámark kostn­aðar vegna lækn­is­þjón­ustu og lyfja. Sameina þurfi þessi tvö kerfi. Framsókn seg­ist enn fremur vilja að tann­lækn­inga-, sál­fræði- og ferða­kostn­aður sjúk­linga falli undir greiðslu­þátt­töku­kerfið. Fram­tíð­ar­mark­mið sé að veikir borgi ekki.

Sál­fræði­þjón­ustu á að greiða niður strax, að þeirra mati. „Um 20 pró­sent barna og ung­menna hafa ein­hvern tíma fyrir 18 ára aldur þurft að leita aðstoðar vegna geð­rænna erf­ið­leika. Bregðast þarf snemma við þegar geð­rænir erf­ið­leikar gera vart við sig hjá börnum og full­orðnum. Framsókn vill fjölga sál­fræð­ingum í heilsu­gæsl­unni og að sál­fræði­þjón­usta verði nið­ur­greidd og verði hluti af greiðslu­þátt­töku­kerf­inu eins og önnur heil­brigð­is­þjón­usta.“

Þau segja jafn­framt að geð­lækna vanti á heil­brigð­is­stofn­anir. Framsókn vilji fjölga geð­læknum á heil­brigð­is­stofn­unum víðs­vegar um landið og létta álag­inu af Land­spít­al­anum. Hörmu­legt sé að horfa upp á að stór hluti af ungu fólk glími við geð­ræna erf­ið­leika. Geð­læknum þurfi að fjölga strax.

Að end­ingu telur Framsókn að fram­tíð­ar­staður Land­spít­al­ans sé ekki við Hring­braut. Þrátt fyrir að fram­kvæmdir við Hring­braut klárist þurfi að huga tím­an­lega að því að nýr spít­ali verði byggður á nýjum stað sem rúmi allar deildir, m.a. geð­deild, en það sé ekki í boði við Hring­braut. Sjúk­lingar þurfi betri aðstöðu og horfa þurfi bæði til lík­am­legra og and­legra veik­inda. Starfs­fólk þurfi betri aðstöðu.

Vinstri græn

VG telur að sál­fræði­þjón­usta eigi að vera nið­ur­greidd eins og önnur heil­brigð­is­þjón­usta og að tryggja eigi slíkra þjón­ustu í öllum fram­halds­skólum nem­endum að kostn­að­ar­lausu.

Á heima­síðu Vinstri grænna koma auk þess fram að fjöldi ann­arra heil­brigðistengdra mála sem flokk­ur­inn leggur áherslu á. Á meðal þeirra eru þau að auka þurfi fram­lög rík­is­ins til heil­brigð­is­þjón­ustu þannig að þau verði sam­bæri­leg við það sem ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum, að setja þurfi kraftí að ljúka við bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Hring­braut og efla um leið sjúkra­flutn­inga og sjúkra­flug um land allt.

Þá skuli stefnt að því að öll heil­brigð­is­þjón­usta á sjúkra­húsum og heilsu­gæslu­stöðvum verði gjald­frjáls og draga mark­visst úr kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga á kjör­tíma­bil­inu. Styrkja þurfi heilsu­gæsl­una, ekki síst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þannig að hún verði alltaf fyrsti við­komu­stað­ur­inn.

Þá sé stór­átaks þörf í geð­heil­brigð­is­málum, tryggja þurfi fíklum við­un­andi með­ferð­ar­úr­ræði með sam­vinnu dóms-, félags- og heil­brigð­is­kerfis og að not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð þurfi að verða raun­veru­legt val fyrir þá sem það kjósa og tími til kom­inn að festa það verk­efni í sessi með lögum.

Björt framtíð

Björt fram­tíð seg­ist vilja nýjan Land­spít­ala og nýtt sjúkra­hótel. Þau vilja bygg­ingju með­ferð­ar­kjarna við Hring­braut sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi áætlun og hefja starf­semi nýs sjúkra­hót­els. Þau vilja jafn­framt að heilsu­gæsla um land allt verði styrkt sem fyrsti við­komu­stað með fjölgun sál­fræð­inga.

Þau telja mik­il­vægt að tryggja skuli aukna vellíðan og betri geð­heilsu barna og ung­menna og virk­ari sam­fé­lags­þátt­töku ein­stak­linga sem glíma við geð­rask­anir til skemmri eða lengri tíma.

Jafn­framt álítur Björt fram­tíð mik­il­vægt að heil­brigð­is­þjón­ustan tryggi aðgengi að þjón­ustu og ráð­gjöf sem felur í sér fjöl­breyti­lega þjón­ustu allra heil­brigð­is­stétta og hæfir ein­stak­lingum best hverju sinni.

Björt fram­tíð seg­ist leggja áherslu á for­varnir og með­ferð sem mið­ast við að efla lífs­gæði, sjálf­stæði, val og ábyrgð hvers ein­stak­lings. Við lýð­heilsu sé átt við aðgerðir sem miða að því að við­halda og bæta heil­brigði, líðan og aðstæður ein­stak­linga.

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjáf­stæð­is­flokk­ur­inn seg­ist ætla að halda vel utan um eldri kyn­slóð­ina og gera sér­stakt átak í að fjölga hjúkr­un­ar­heim­ilum. „Við ætlum að styrkja heima­þjón­ust­una og gera sér­stakt átak í fjölgun hjúkr­un­ar­heim­ila. Þrír millj­arðar á ári munu renna úr Þjóð­ar­sjóði í það átak á næstu árum,“ segir í stefnu þeirra.

Þau telja að styrkja þurfi stöðu Land­spít­al­ans sem rann­sókna- og kennslu­sjúkra­hús. Þau segj­ast vilja efla fjar­heil­brigð­is­þjón­ustu og nýta upp­lýs­inga- og sam­skipta­tækni betur.

Í stefnu þeirra á Betra Ísland segja þau að fjár­hags­að­stæður fólks megi ekki vera nokkrum hindrun í að leita sér lækn­inga og ná bata. Nýju greiðslu­þátt­töku­kerfi hafi verið komið á, þar sem sett hefur verið þak á kostnað ein­stak­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og börn eiga kost á gjald­frjálsri þjón­ustu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur mik­il­vægt að lækka kostnað sjúk­linga enn frekar.

Þau segj­ast enn fremur vilja ljúka fram­kvæmd geð­heil­brigð­is­stefn­unnar og fylgja henni eftir. Greina verði og takast á við vanda­mál á fyrstu stigum og tryggja aðgengi allra að sál­fræði­þjón­ustu, óháð búsetu. Leggja þurfi aukna áherslu á for­varnir og auð­velda heilsu­gæsl­unni að sinna frum­þjón­ustu við fólk með geð­ræn vanda­mál. Sér­stak­lega þurfi að huga að brýnni þörf ung­menna á þessu sviði.

Samfylkingin

Sam­fylk­ingin seg­ist vilja að opin­ber hluti heil­brigð­is­þjón­ust­unnar verði gjald­frjáls í það minnsta Land­spít­al­inn. Það kosti 6 millj­arða að gera hann gjald­frjálsan en hægt sé að vinna það í skrefum á næstu árum að lækka gjöldin. Hinn hlut­inn væri heilsu­gæslan en það kosti 1 millj­arð á ári.

Flokkur fólks­ins hefur ekki skilað inn stefnu­málum sínum á síð­una og áherslur Dögunar vantar varð­andi heil­brigð­is­málin.

Tekið skal fram að þessi listi er ekki tæm­andi. Á næstu dögum mun Kjarninn einnig vera með umfjöllun um önnur mál sem varða atvinnu­vegi og auð­lindir, umhverf­is­mál, dóm­stóla, stjórn­ar­skrá og lýð­ræði.

25.10.2017 kl. 11:20.

Frétta­skýr­ing­unni var breytt eftir athuga­semd frá Vinstri grænum sem báðu um að fleiri stefnu­málum þeirra yrði bætt við. Þau stefnu­mál höfðu ekki verið sett inn á Betra Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár