Rósa Björk Brynjólfsdóttir, annar þeirra þingmanna Vinstri grænna sem greiddi atkvæði gegn stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar, segir virða lýðræðislega niðurstöðu flokksráðsins og styður ráðherralista Vinstri grænna.
[links]Andrés Ingi Jónsson, hinn þingmaður flokksins serm studdi ekki stjórnarsamstarfið, studdi einnig ráðherralistann á þingflokksfundi Vinstri grænna í morgun.
Rísa greinir frá því í stöðuuppfærslu á Facebook í dag þótt stjórnarsáttmálinn sé að mörgu leyti ágætur þá finnist henni að í hann vanti veigamikil atriði sem hafa verið í stefnu Vinstri grænna um árabil. „En allt snýst þetta um traust en mig skortir einfaldlega traust á fólki í samstarfsflokkinum til að styðja þetta verkefni eins og ég hef áður sagt. En þrátt fyrir skoðun mína og fleiri félaga í VG, þá virði ég lýðræðislega niðurstöður flokksráðsins. Á þingflokksfundi okkar í dag, studdi ég ráðherralista VG og fagna því í dag að í annað sinn í 99 ára sögu fullveldisins sest kona í forsætisráðherrastól og óska Katrínu innilega til hamingju með það.
[adspot]Áskoranirnar eru aldeilis margar og strembnar framundan í íslenskum stjórnmálum en svo ég tali nú fyrir sjálfa mig, þá ætla ég að einbeita mér að því að vinna vel að málum í þinginu sem snúast um jafnrétti kynjanna, loftslags-og umhverfismál, utanríkismál með áherslu á mannúð og frið og málefni útlendinga. Svo fylgi ég auðvitað áfram sannfæringu minni þegar kemur að afstöðu til mála - hvaðan sem þau koma - líkt og öllum þingmönnum ber að gera.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir