Stjórnarandstaðan tekur að sér nefndaformennsku

Stjórn­ar­and­staðan mun taka að sér for­mennsku í þeim þrem­ur fasta­nefnd­um Alþingis sem rík­is­stjórn­in bauð þeim. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir fund­uðu um málið í morg­un.

Stjórn­ar­and­staðan hef­ur ákveðið að taka að sér for­mennsku í þeim þrem­ur fasta­nefnd­um Alþing­is sem rík­is­stjórn­in bauð þeim. Þær eru stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins, vel­ferðar­nefnd og um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir fund­uðu um málið í morg­un.

Frá þessu er greint í frétt mbl.is.

Gunn­ar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, stað­festi þetta í sam­tali við mbl.is. Miðflokk­ur­inn tek­ur við for­mennsku í um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd, Sam­fylk­ing­in í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd og Pírat­ar í vel­ferðar­nefnd. Tveir síðar­nefndu flokk­arn­ir ætla hins veg­ar að skipt­ast á nefnd­ar­for­mennsku á miðju kjör­tíma­bil­inu, segir í frétt­inni.

„Við ákváðum að taka þess­ar nefnd­ir sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir skömmt­uðu okk­ur en við erum auð­vitað ósátt við það að ekk­ert annað var til umræðu. Það var nóg af fögr­um orðum en síðan bara orðin tóm. Við óskuðum eft­ir því að fá fjórðu nefnd­ina eða fá að skipta á nefnd­um en það var ekki hægt,“ segir hann.

Segir jafn­framt í frétt­inni að ekki hafi verið gengið end­an­lega frá for­mennsku í þrem­ur alþjóða­nefnd­um sem stjórn­ar­and­stöð­unni býðst né til­nefn­ingu henn­ar í ákveðin emb­ætti vara­for­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár