Fjármagnstekjuskattur verður hækkaður og fæðingarorlof lengt

Í stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar kemur fram að það eigi að stofna stöð­ug­leika­sjóð og gera hvít­bók um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Málefni Seðla­bank­ans verða áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og nefnd skipuð um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, verður næsti forsætisráðherra þjóðarinnar ef stjórnarsáttmálinn verður samþykktur á morgun.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, verður næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar ef stjórn­ar­sátt­mál­inn verður sam­þykktur á morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­magnstekju­skattur verður hækk­aður, hvít­bók verður skrifuð um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, fæð­ing­ar­or­lof lengt og greiðslur til þeirra sem það taka hækk­aðar, komu- og brott­far­ar­gjöld verða lögð á og gistin­átta­gjald mun renna óskert til sveit­ar­fé­laga. Stofn­aður verður stöð­ug­leika­sjóður, sem kall­aður verður Þjóð­ar­sjóður, og skip­aðar þverpóli­tískar nefndir um end­ur­skoðun á stjórn­ar­skrá og um hvort þurfi að end­ur­skoða útlend­inga­lögin. Þetta eru á meðal þeirra atriða sem er að finna í stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Það vekur athygli að í þeim sátt­mála sem kynntur hefur verið þing­mönnum verð­andi stjórn­ar­flokka er ekk­ert minnst á ramma­á­ætlun, sem var deilu­mál milli for­manna flokk­anna þriggja sem standa að rík­is­stjórn­inni á meðan að við­ræður þeirra stóðu yfir. Þar er heldur ekk­ert fjallað um hvort og þá hvernig eigi að ráð­stafa því fé sem nú liggur í bönkum í eigu rík­is­ins og sumir við­mæl­endur Kjarnans sem hafa séð sátt­mál­ann telja að það vanti mjög upp á að þær tekju­öfl­un­ar­leiðir sem röt­uðu í hann dugi fyrir þeirri útgjalda­aukn­ingu sem stefnt er að.

Seðlabankamál verða hjá Katrínu

Sátt­mál­inn verður lagður fyrir flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna á morgun. Vinstri græn munu svo halda þing­flokks­fund á fimmtu­dags­morgun verði hann sam­þykktur þar sem gerð verður nán­ari grein fyrir ráð­herra­skipan flokks­ins og annarri verka­skipt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar. Síðan er gert ráð fyrir að rík­is­ráðs­fundur verði hald­inn síð­degis á fimmtu­dag og nýja rík­is­stjórnin taki þá við.

Enn liggur ekki nið­ur­neglt fyrir hvaða flokkur fær hvaða ráðu­neyti en sam­komu­lag ríkir um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái fimm ráðu­neyti, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þrjú og Vinstri græn þrjú auk þess sem búist er við því að Stein­grímur J. Sig­fús­son verði for­seti Alþingis.

Katrín verður for­sæt­is­ráð­herra og nær öruggt er að Bjarni Bene­dikts­son verði fjár­mála­ráð­herra. Eitt af þeim málum sem tek­ist var á um í við­ræðum flokk­anna þriggja var hvar mál­efni Seðla­banka Íslands ættu að vera en nú liggur fyrir að þau verða áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Katrín mun því skipa næsta seðla­banka­stjóra, en skip­un­ar­tími Más Guð­munds­sonar rennur út á kjör­tíma­bil­inu.

Þjóðarsjóður verður til

Þær tekju­öfl­un­ar­leiðir sem m.a. er minnst á í sátt­mál­anum eru hækkun fjár­magnstekju­skatts sem á að skila 2,5 millj­örðum króna á ári í rík­is­kass­ann. Þá á að leggja á komu- og brott­far­ar­gjöld í stað þess að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu, líkt og síð­asta rík­is­stjórn ætl­aði að gera. Gistin­átta­gjald á að renna óskipt til sveit­ar­fé­laga og vera ákveðið hlut­fall af kostn­aði við gist­ingu. Þannig greiði þeir sem vilji lúx­us­gist­ingu fleiri krónur í gjaldið en þeir sem kjósi að gista í tjaldi á tjald­svæði.

Fjallað er um vaxta- og hús­næð­is­bætur og breyt­ingar á greiðslum til þeirra sem taka fæð­ing­ar­or­lof. Þá á einnig að lengja orlofið en Vinstri græn lögðu til að mynda fram frum­varp fyrr á þessu ári um að lengja það úr níu mán­uðum í tólf í tveimur þrepum. Sú leng­ing átti þá að vera að fullu komin til fram­kvæmda 2019.

Til stendur að stofna stöð­ug­leika­sjóðs, sem mun kall­ast þjóð­ar­sjóður. Inn í hann eiga að renna til dæmis arð­greiðslur úr orku­fyr­ir­tækjum. Þá á að skrifa hvít­bók um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og stuðla að gagn­sæi í eign­ar­haldi fjár­mála­fyr­ir­tækja. Ekkert er hins vegar sér­tækt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, um hvað eigi að gera með það fé sem liggur inni í bönkum í eigu rík­is­ins.

Þverpólitískar nefndir skipaðar

Aðgerðir í loft­lags­málum eru sagðar vera mjög í anda þeirra sem þegar liggja fyrir. Athygli vekur að ekk­ert var fjallað um ramma­á­ætlun, sem segir til um hvaða virkj­un­ar­kosti eigi að vernda og hverja eigi að nýta, í þeim sátt­mála sem við­mæl­endur Kjarnans sáu.

Þá sé lítið fjallað um hvernig rekstr­ar­form þyki æski­leg­ust í heil­brigð­is­kerf­inu og almennt orða­lag um Borg­ar­línu, sem er sam­göngu­fram­kvæmd sem öll sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggja mik­inn þunga á.

Enginn flokk­anna þriggja sem nú taka við völdum hefur verið yfir sig áhuga­samur um að ráð­ast í stór­felldar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar. Nið­ur­staða þeirra mála, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, í sátt­mál­anum er að skipa þverpóli­tíska nefnd um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár. Önnur þverpóli­tísk nefnd verður einnig skipuð til að fara yfir lög um útlend­inga­mál til að kanna hvort að þeim þurfi að breyta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár