Stjórnarandstöðunni boðin formennska í þremur nefndum

Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG hitti Guðna Th. Jóhann­es­son í morgun og fékk hún form­legt umboð til að mynda rík­is­stjórn.

Katrín Jakobsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson.
Katrín Jak­obs­dóttir og Guðni Th. Jóhann­es­son. Mynd: RÚV/skjáskot

Formaður Vinstri grænna, Katrín Jak­obs­dóttir, hitti for­set­ann á Bessa­stöðum í morgun en þau áttu boð­aðan fund kl. 10:30. Á þeim fundi fékk Katrín form­legt umboð til að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum.

Katrín sagði eftir fund­inn að þau hefðu farið yfir málin og að hún hefði gefið for­set­anum skýrslu. Sam­eig­in­leg nið­ur­staða þess­ara þriggja flokka hafi verið sú að Katrín fái umboðið og verði for­sæt­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn.

Hún sagði að stjórn­ar­and­stöð­unni hefði verið boðin for­mennska í þremur nefndum, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, vel­ferð­ar­nefnd og umhverfis- og sam­göngu­nefnd. Svar hefði ekki enn borist við því.

Þing­flokks­fundur VG verður á fimmtu­dag­inn þar sem end­an­lega verður gengið frá mál­inu. Frekari upp­lýs­ingar um ráð­herra­skipan mun liggja fyrir þegar rík­is­stjórn verður kynnt. Þetta kom fram í máli Katrínar.

Katrín trúir því að Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn séu til­búin að breyta vinnu­brögðum á Alþingi ef marka megi við­ræður þeirra. Fjár­laga­frum­varpið mun vera sett fram fyrir ára­mót en hugs­an­lega önnur mál, segir hún. Mjög lík­legt sé að þing­hald verði milli jóla og ára­móta.

Stjórn mynduð eins fljótt og auðið er

Guðni Th. sagði eftir fund­inn að hann hefði veitt Katrínu umboð til stjórn­ar­mynd­unar með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Hann sagði að eng­inn einn hefði ráðið för af þeim þremur flokks­for­mönnum og þess vegna hefði eng­inn fengið umboðið hingað til. Vænt­an­legur for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, hefði aftur á móti fengið umboðið núna til að mynda stjórn, enda vænt­an­legur for­sæt­is­ráð­herra í nýrri stjórn.

Aðspurður hvenær stjórn yrði form­lega mynduð sagði Guðni Th. að það yrði eins fljótt og auðið er, hugs­an­leg á fimmtu­dag­inn.

Stofnanir flokkanna verða að samþykkja myndunina

Kjarninn greindi frá því í gær að flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna verði kall­aðar saman á morgun mið­viku­dag til að bera undir þær stjórn­ar­sátt­mála. Ef allar flokks­stofn­anir flokk­anna þriggja sam­þykkja myndun rík­is­stjórn­ar­innar mun hún verða form­lega mynduð annað hvort á fimmtu­dag eða laug­ar­dag. 

Föstu­dag­ur­inn 1. des­em­ber, full­veld­is­dagur þjóð­ar­inn­ar, þykir ekki koma til greina vegna þess að for­seti Íslands er ekki við­lát­inn til að halda fyrsta rík­is­ráðs­fund nýrrar rík­is­stjórnar á þeim degi vegna emb­ætt­is­skyldna.

Fyrsta mál sem hin nýja rík­is­stjórn mun leggja fram verða fjár­lög og það er ekki hægt að gera fyrr en hún hefur verið form­lega mynd­uð. Auk þess þarf fram­lagn­ing fjár­laga að ganga í gegnum ákveð­inn feril áður en hægt er að leggja þau fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár