Flokksráð Vinstri grænna búið að samþykkja myndun nýrrar ríkisstjórnar

Flokks­ráð Vinstri grænna er búið að sam­þykkja stjórn­ar­sátt­mála kom­andi rík­is­stjórnar. 81 pró­sent sagði já. Því er leiðin greið fyrir Katrínu Jak­obs­dóttur að mynda stjórn­ina form­lega á morgun.

Flokks­ráð Vinstri grænna sam­þykkti nú í kvöld að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Stjórn­ar­sátt­máli vænt­an­legrar rík­is­stjórnar var kynntur á fundi á Grand hótel í kvöld og svo var kosið um rík­is­stjórn­ar­sam­starf sem myndað yrði um þann sátt­mála. 81 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já við samn­ingnum.

Alls geiddu 93 atkvæði og af þeim sögðu 75 já. 15 sögðu nei og þrír seðlar voru auðir. Katrín Jak­obs­dóttir þakk­aði fund­ar­mönnum í kjöl­farið fyrir góðar og hrein­skiptar umræður og mik­il­væg rök með og á móti. Í til­kynn­ingu kemur fram að nokkrir félags­menn hafi kvatt Vinstri græn vegna sam­starfs­ins. Hátt í 200 manns sóttu fund­inn í kvöld.

Andrés Ingi Jóns­son og Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­menn Vinstri grænna, greindu frá því fyrr á fund­inum að þau styðji ekki rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Andrés Ingi sagði í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi flokks­ins í kvöld, þar sem hann færði rök fyrir ákvörðun sinni um að styðja ekki stjórn­ar­sam­starfið, að hann ótt­ist að flokk­ur­inn yrði of „samdauna“ sam­starfs­flokk­un­um, og gæti ekki haft nægi­lega mikil áhrif.

Hann sagði auk þess að margt í stjórn­ar­sátt­mál­anum væri of líkt því sem frá­far­andi rík­is­stjórn hafi verið með í sínum sátt­mála, og það sé ekki eitt­hvað sem Vinstri græn geti sætt sig við.

Í ræðu sinni sagði hann að text­inn sem tengd­ist umfjöllun um skatta­mál hefði allt eins geta komið frá Við­skipta­ráði en Vinstri græn­um.

Sjálf­stæð­is­menn sam­þykktu stjórn­ar­sam­starfið ein­róma fyrir sitt leyti fyrr í kvöld. Mið­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins er enn að funda um mál­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár