Ný könnun: Langflestir vilja Katrínu sem forsætisráðherra

Katrín Jak­obs­dóttir nýtur yfir­burð­ar­stuðn­ings í starf for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt könnun sem stuðn­ings­menn hennar hafa látið fram­kvæma. Íbúar í Garðabæ og á Reykja­nesi vilja frekar Bjarna Bene­dikts­son.

Ný könnun Zenter um við­horf lands­manna til þess hver ætti að verða næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar sýnir að 49,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu vilja fá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, í það hlut­verk. Þegar öll svör voru skoðuð hafði Katrín einnig mikla yfir­burði en 43,6 pró­sent allra sem svör­uðu vildu hana sem næsta for­sæt­is­ráð­herra.

Könnunin, sem var gerð dag­anna 10-21. nóv­em­ber, var gerð fyrir stuðn­ings­hóp Katrínar. Í henni voru 2.048 manns spurðir: „Hvern eft­ir­far­andi myndir þú vilja sjá sem næsta for­sæt­is­ráð­herra Íslands?“ og gátu svar­endur valið úr hópi for­ystu­manna íslenskra stjórn­mála­flokka. Svar­endur voru 1.061 og svar­hlut­fall því 52 pró­sent.

Sá sem næst oft­ast var nefndur af þeim sem tóku afstöðu var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Alls vildu 20,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu fá hann í starfið. Þar á eftir kom Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins (10,2 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu).

Alls vildu 7,6 pró­sent að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, myndi taka að sér starfið en aðrir for­menn eða for­mannsí­gildi nutu minni stuðn­ings.

Katrín vinsælust hjá öllum tekjuhópum

Katrín nýtur meiri stuðn­ings hjá konum en körlum og yngra fólk er hall­ara undir hana en það sem eldra er. Þá nýtur hún meiri stuðn­ings á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni. Vert er að taka fram að Katrín nýtur þó mest stuðn­ings í hlut­verkið hjá báðum kynjum og öllum ald­urs­hópum.

Bjarni nýtur meiri stuðn­ings en Katrín í starf for­sæt­is­ráð­herra í tveimur byggð­ar­kjörnum, ann­ars vegar í Garðabæ (þar vilja 48 pró­sent íbúa að Bjarni verði for­sæt­is­ráð­herra) og á Reykja­nesi (þar vildu 37,8 pró­sent Bjarna en 34,3 pró­sent Katrínu).

Katrín nýtur minnst stuðn­ings í starfið hjá atvinnu­rek­endum en samt vilja fleiri slíkir hana en Bjarna. Athygli vekur að stuðn­ingur við Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra eykst eftir því sem mennt­un­ar­stig verður hærra.

Þá styðja tekju­lægri hóp­arnir mun frekar Katrínu í starfið en tekju­hærri hóp­arnir, þótt hún njóti mest stuðn­ings allra stjórn­mála­leið­toga í öllum tekju­hópum ein­stak­linga. Bjarni nýtur mun meiri stuðn­ings hjá efstu tekju­hóp­unum, óháð því hvort um sé að ræða per­sónu­legar tekjur eða tekjur heim­ilis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár