Ný fjárlög munu verða með mun minni afgangi og fjármálaáætlun verður tekin upp

Fyrir liggur hvaða vænt­an­legi stjórn­ar­flokkur fær hvaða ráðu­neyti. Fjár­mála­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar verður tekin upp og útgjöld aukin umtals­vert með sjálf­bærum tekju­stofnum. Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi áætlun áttu útgjöld að aukast yfir 200 millj­arða.

Bjarni Benediktsson mun snúa aftur í fjármála- og efnahagsráðuneytið eftir stutta dvöl í forsætisráðuneytinu. Hann mun leggja fram ný fjárlög og bera ábyrgð á framlagningu nýrrar fjármálaáætlunar til fimm ára.
Bjarni Bene­dikts­son mun snúa aftur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eftir stutta dvöl í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Hann mun leggja fram ný fjár­lög og bera ábyrgð á fram­lagn­ingu nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar til fimm ára. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Vænt­an­legur afgangur af nýju fjár­laga­frum­varpi nýrrar rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem nú er unnið að, mun verða mun minni en þeir 44 millj­arðar króna sem síð­asta rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar ætl­aði að skila í afgang. Fimm ára fjár­mála­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar, sem var lögð fram í mars á þessu ári og sam­þykkt 1. júní, verður tekin upp og end­ur­skoðuð með það í huga að auka útgjöld rík­is­sjóðs umfram það sem hún gerði ráð fyrir, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

[links]Sú fjár­mála­á­ætlun gerði ráð fyrir að heild­ar­út­gjöld myndu vaxa um 208 millj­arða króna yfir allt tíma­bilið og frum­gjöld sem nemur 223 millj­örðum króna. Stærstu útgjalda­lið­irnir áttu að heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­mál.

Ekkert er fjallað sér­tækt um hvernig sú mikla fjár­fest­ing sem ætluð er til lengri tíma í t.d. heil­brigðis- og mennta­málum verður fjár­mögnum í fyr­ir­liggj­andi stjórn­ar­sátt­mála vænt­an­legrar rík­is­stjórnar. Það þarf að búa til sjálf­bæra tekju­stofna til að standa undir þeirri fjár­fest­ingu. Vilji er til þess innan þeirra flokka sem standa að rík­is­stjórn­inni að lækka eigið fé í þeim bönkum sem ríkið á og greiða það út til að fjár­fest Í t.d. inn­viða­upp­bygg­ingu. Það fé nýt­ist þó fyrst og fremst í ein­skiptis­kostnað, t.d. við bygg­ingu vega eða borun jarð­ganga, ekki við fram­tíð­ar­rekstur stórra ein­inga innan stjórn­kerf­is­ins á borð við Lands­spít­ala eða skóla­kerf­is­ins.

Búið að ákveða hvernig ráðuneytin skiptast

Verka­skipt­ing í rík­is­stjórn­inni, sem verður mynduð á morgun sam­þykki flokks­stofn­anir stjórn­ar­sátt­mál­ann í kvöld og þing­flokkar skipan rík­is­stjórnar í fyrra­málið, liggur ekki alveg fyrir. Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að Vinstri græn muni þó taka for­sæt­is­ráðu­neytið, heil­brigð­is­ráðu­neytið og umhverf­is­ráðu­neytið. Ljóst er að Katrín verður for­sæt­is­ráð­herra og búist er við því að Svandís Svav­ars­dóttir verði heil­brigð­is­ráð­herra. Stein­grímur J. Sig­fús­son verður for­seti Alþingis en mis­vísandi skila­boð ber­ast um hver muni setj­ast í stól umhverf­is­ráð­herra. Þar koma til greina Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Ari Trausti Guð­munds­son og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mun fá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið. Í það mun setj­ast Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður flokks­ins.

Lilja Alfreðs­dóttir mun lík­leg­ast verða mennta­mála­ráð­herra og til við­bótar fær Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn félags­mála­ráðu­neytið. Þar er talið lík­leg­ast að Þórunn Egils­dóttir muni setj­ast.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun því halda þeim ráðu­neytum sem hann er nú þegar með utan þess sem hann hefur frá sér mennta­mála­ráðu­neytið. Líklegt er talið að Kristján Þór Júl­í­us­son verði færður um set, vænt­an­lega í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið, og Bjarni Bene­dikts­son verður fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son verður þá áfram utan­rík­is­ráð­herra, Sigríður Andersen áfram ráð­herra inn­an­rík­is­mála og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir áfram ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar. Jón Gunn­ars­son þykir lík­leg­astur til að detta út úr rík­is­stjórn­inni.

Hart verður tek­ist á um þær fimm nefnd­ar­for­mennskur sem stjórn­ar­flokk­arnir munu fá, en stjórn­ar­and­staðan mun fá for­mennsku í þremur nefndum. Hjá Sjálf­stæð­is­flokki eru tveir odd­vitar án ráð­herra­emb­ættis auk þess sem einn ráð­herra mun missa sæti sitt í rík­is­stjórn. Hjá Vinstri grænum verða tveir til þrír odd­vitar án ráð­herra­emb­ættis en ólík­legt verður að telj­ast að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir fái veg­tyllu í ljósi and­stöðu hennar við stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar. Auk þess liggur enn ekki fyrir hvort hún muni greiða atkvæði með stjórn­ar­sátt­mál­anum. Hjá Fram­sókn­ar­flokknum verða að minnsta kosti tveir odd­vitar án ráð­herra­emb­ættis.

Helstu atriði sáttmálans opinberuð í gær

Kjarninn greindi frá helstu atriðum stjórn­ar­sátt­mál­ans í gær. Þar kom fram að fjár­magnstekju­skattur verður hækk­að­ur um tvö pró­sentu­stig sem á að skila um 2,5 millj­örðum króna í auknar skatt­tekjur. Gerð verður hvít­bók um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, fæð­ing­ar­or­lof lengt og greiðslur til þeirra sem það taka hækk­að­ar. Komu- og brott­far­ar­gjöld verða lögð á og gistin­átta­gjald mun renna óskert til sveit­ar­fé­laga.

Stofn­aður verður stöð­ug­leika­sjóð­ur, sem kall­aður verður Þjóð­ar­sjóð­ur, og skip­aðar þverpóli­tískar nefndir um end­ur­skoðun á stjórn­ar­skrá og um hvort þurfi að end­ur­skoða útlend­inga­lög­in.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár