Forsetinn búinn að boða Katrínu á Bessastaði á morgun

Katrín Jak­obs­dóttir mun fara á fund Guðna Th. Jóhann­es­sonar í fyrra­málið klukkan 10:30.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur boðað Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, á fund sinn á Bessa­stöðum á morgun, þriðju­dag, klukkan 10:30. Þar mun Katrín vænt­an­lega fá form­legt umboð til mynd­unar rík­is­stjórnar.

[links]Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag verða flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna verði kall­aðar saman á mið­viku­dag til að bera undir þær stjórn­ar­sátt­mála. Ef allar flokks­stofn­anir flokk­anna þriggja sam­þykkja myndun rík­is­stjórn­ar­innar mun hún verða form­lega mynduð annað hvort á fimmtu­dag eða laug­ar­dag. Föstu­dag­ur­inn 1. des­em­ber, full­veld­is­dagur þjóð­ar­inn­ar, þykir ekki koma til greina vegna þess að for­seti Íslands er ekki við­lát­inn til að halda fyrsta rík­is­ráðs­fund nýrrar rík­is­stjórnar á þeim degi vegna emb­ætt­is­skyldna.

Fyrsta mál sem hin nýja rík­is­stjórn mun leggja fram verða fjár­lög og það er ekki hægt að gera fyrr en hún hefur verið form­lega mynd­uð. Auk þess þarf fram­lagn­ing fjár­laga að ganga í gegnum ákveð­inn feril áður en hægt er að leggja þau fram.

[adspot]Því herma heim­ildir Kjarn­ans að búist sé við að þing verði ekki kallað saman fyrr en í fyrsta lagi á fimmtu­dag í næstu viku, eða 7. des­em­ber. Það mun ein­ungis ganga eftir ef að rík­is­stjórn nýja mun leggja fram fjár­laga­frum­varp síð­ustu rík­is­stjórnar með nýjum for­mála þar sem farið yrði yfir áherslur nýrrar rík­is­stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár