Ríkisstjórn verður formlega mynduð á fimmtudag eða laugardag

Rík­is­stjórn­ar­myndun er á loka­metr­unum. Fundað verður með þing­flokkum og stjórn­ar­and­stöðu í dag og flokks­stofn­unum um miðja viku. Stjórnin tekur lík­lega form­lega við á fimmtu­dag eða laug­ar­dag og þing verður kallað saman undir lok næstu viku.

Flokk­arnir þrír sem hafa verið í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum und­an­farnar vikur mun hitta þing­flokka sína í dag til að fara yfir stöðu mála í við­ræð­unum. Þar verður stjórn­ar­sátt­máli þó ekki lagður fram til kynn­ingar, þrátt fyrir að vinna við hann sé mjög langt komin. Enn á eftir að ákveða hvernig verka­skipt­ing verður á milli flokk­anna, þ.e. hver fær hvaða ráðu­neyti og fasta­nefndir þings­ins til að stýra. Þó er gengið út frá því í allri vinn­unni að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, verði for­sæt­is­ráð­herra.

Eftir þing­flokks­fund­ina stendur til að hitta full­trúa vænt­an­legrar stjórn­ar­and­stöðu. Heim­ildir Kjarnans herma að flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna verði kall­aðar saman um miðja viku. Þannig stendur til að mynda til að kalla flokks­ráð Vinstri grænna saman síð­degis á mið­viku­dag og nið­ur­staða þess ætti að liggja fyrir á mið­viku­dags­kvöld.

Ef allar flokks­stofn­anir flokk­anna þriggja sam­þykkja myndun rík­is­stjórn­ar­innar mun hún verða form­lega mynduð annað hvort á fimmtu­dag eða laug­ar­dag. Föstu­dag­ur­inn 1. des­em­ber, full­veld­is­dagur þjóð­ar­innar, þykir ekki koma til greina vegna þess að for­seti Íslands er ekki við­lát­inn til að halda fyrsta rík­is­ráðs­fund nýrrar rík­is­stjórnar á þeim degi vegna emb­ætt­is­skyldna.

Fyrsta mál sem hin nýja rík­is­stjórn mun leggja fram verða ný fjár­lög og það er ekki hægt að gera fyrr en hún hefur verið form­lega mynduð. Auk þess þarf fram­lagn­ing fjár­laga að ganga í gegnum ákveð­inn feril áður en hægt er að leggja þau fram. Því herma heim­ildir Kjarnans að búist sé við að þing verði ekki kallað saman fyrr en á fimmtu­dag í næstu viku, eða 7. des­em­ber

Heim­ildir Kjarnans herma að allar líkur séu á því að af myndun stjórn­ar­innar verði þrátt fyrir að for­menn flokk­anna þriggja: Katrín, Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son, eigi enn eftir að ná lend­ingu í nokkrum stórum ágrein­ings­málum. Þau sem helst hafa verið nefnd í því sam­hengi eru skatta­mál og ramma­á­ætlun.

Þá hafa verið mis­mun­andi skoð­anir á því hvort að mál­efni Seðla­banka Íslands eigi að fara aftur til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, þar sem Bjarni mun að öllum lík­indum setj­ast, eða hvort þau eigi að vera áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hjá Katrínu. Starf seðla­banka­stjóra verður aug­lýst til umsóknar á kjör­tíma­bil­inu og gengið er út frá því að Már Guð­munds­son muni ekki sækj­ast eftir því að verða skip­aður aftur. Því þarf að skipa nýjan mann, eða konu, í þessa miklu valda­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár