Ásmundur Einar nýr félagsmálaráðherra – Jón Gunnarsson missir ráðherrastól

Tillaga um ráð­herra­skipan Fram­sókn­ar­manna var sam­þykkt á þing­flokks­fundi í hádeg­inu. Allir verð­andi ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks eru nú þegar ráð­herrar. Sex karlar verða í rík­is­stjórn­inni en fimm konur.

Ásmundur Einar Daðason verður næsti félags­mála­ráð­herra Íslands. Í sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráðu­­neytið mun setj­­­ast Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins. Lilja Alfreðs­dóttir mun verða mennta­­mála­ráð­herra. Þetta var ákveðið á þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins núna í hádeg­inu.

[links]

Heim­ildir Kjarnans herma að Jón Gunn­ars­son hafi missti ráð­herra­stól sinn en að öðru leyti verði ráð­herra­lið Sjálf­stæð­is­flokks eins mannað. Krist­ján Þór Júl­í­us­­son verður færður um set í sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neyt­ið, og Bjarni Bene­dikts­­son, for­maður flokks­ins, verður fjár­­­mála- og efna­hags­­mála­ráð­herra. Guð­laugur Þór Þórð­­ar­­son verður áfram utan­­­rík­­is­ráð­herra, Sig­ríð­ur And­er­­sen áfram ráð­herra dóms­mála og Þór­­dís Kol­brún Reyk­­fjörð Gylfa­dóttir áfram ráð­herra ferða­­mála, iðn­­aðar og nýsköp­un­­ar. Jón Gunn­­ar­s­­son þykir lík­­­leg­astur til að detta út úr rík­­is­­stjórn­­inni.

Fyrr í dag var greint frá því að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, fram­kvæmda­stjóri Land­vernd­ar, verður næsti umhverf­is­ráð­herra þjóð­ar­inn­ar. Hann mun sitja sem slíkur fyrir hönd Vinstri grænna þrátt fyrir að vera ekki þing­maður flokks­ins.

[adspot]

Svan­dís Svav­ars­dóttir verður næsti heil­brigð­is­ráð­herra þjóð­ar­innar og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, for­sæt­is­ráð­herra. Stein­grímur J. Sig­fús­son verður for­seti Alþing­is.

Í rík­is­stjórn­inni munu því sitja sex karlar og fimm konur. Eini flokk­ur­inn sem verður með fleiri konur í ráð­herra­liði sínu eru Vinstri græn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár