Guðmundur Ingi verður umhverfisráðherra

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, verður ráð­herra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, verður næsti umhverf­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Hann mun sitja sem slíkur fyrir hönd Vinstri grænna þrátt fyrir að vera ekki þing­maður flokks­ins.

Svandís Svav­ars­dóttir verður næsti heil­brigð­is­ráð­herra þjóð­ar­innar og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Stein­grímur J. Sig­fús­son verður for­seti Alþingis.

[links]

Í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið mun setj­ast Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Lilja Alfreðs­dóttir mun lík­leg­ast verða mennta­mála­ráð­herra og til við­bótar fær Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn félags­mála­ráðu­neyt­ið. Þar er talið lík­leg­ast að Þór­unn Egils­dóttir eða Ásmundur Einar Daðason muni setj­ast.

[adspot]

Lík­legt er talið að Krist­ján Þór Júl­í­us­son verði færður um set, vænt­an­lega í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­ið, og Bjarni Bene­dikts­son verður fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son verður þá áfram utan­rík­is­ráð­herra, Sig­ríður And­er­sen áfram ráð­herra inn­an­rík­is­mála og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir áfram ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­un­ar. Jón Gunn­ars­son þykir lík­leg­astur til að detta út úr rík­is­stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár