Andrés Ingi studdi ráðherralista Vinstri grænna

Andrés Ingi Jónsson, sem kaus gegn stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna í gær, segir að hann muni „leggja mín lóð á vog­ar­skál­arnar innan þing­flokks Vinstri grænna til þess að okkar mál­efni nái fram að ganga.“

Andrés Ingi Jónsson, sem ásamt Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur studdi ekki stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, studdi ráð­herra­lista flokks­ins á þing­flokks­fundi í morgun.

[links]

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Andrés að hann muni, í sam­ræmi við sam­þykkt flokks­ráðs Vinstri grænna í gær „leggja mín lóð á vog­ar­skál­arnar innan þing­flokks Vinstri grænna til þess að okkar mál­efni nái fram að ganga. Eins og gefur að skilja eftir þá gagn­rýni sem ég hef haft uppi á sam­starf stjórn­ar­flokk­anna mun ég vera gagn­rýnin – en upp­byggi­leg – rödd innan hóps­ins og reyna að teygja rammann enn lengra í átt að því sem Vinstri græn standa fyrir.

Og mikið rosa­lega er gaman að Katrín Jak­obs­dóttir sé að verða for­sæt­is­ráð­herra!“

[adspot]

Andrés Ingi sagði í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi flokks­ins í gær­kvöld, þar sem hann færði rök fyrir ákvörðun sinni um að styðja ekki stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að hann ótt­ist að flokk­ur­inn verði of „samdauna“ sam­starfs­flokk­un­um, og geti ekki haft nægi­lega mikil áhrif.

Hann sagði auk þess að margt í stjórn­ar­sátt­mál­anum væri of líkt því sem frá­far­andi rík­is­stjórn hafi verið með í sínum sátt­mála, og það sé ekki eitt­hvað sem Vinstri græn geti sætt sig við.

Í ræðu sinni sagði hann að text­inn sem tengd­ist umfjöllun um skatta­mál hefði allt eins geta komið frá Við­skipta­ráði en Vinstri græn­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár