Páll Magnússon styður ekki ráðherraskipan formanns síns

Í annað sinn á tveimur árum hefur odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi ákveðið að styðja ekki ráð­herra­lista flokks­ins. Hann fékk ekki ráð­herramb­ætti.

Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, studdi ekki ráð­herra­skipan flokks síns. Hann seg­ist þó styðja rík­is­stjórn­ina og að hann hafi greitt atkvæði með stjórn­ar­sátt­mál­anum.

[links]

Páll var mjög ósáttur með að hafa ekki fengið ráð­herra­emb­ætti í síð­ustu rík­is­stjórn og lét þá óánægju mjög í ljós opin­ber­lega. Í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag opin­berar hann að sú óánægja sé síst minni nú þegar verið sé að mynda nýja stjórn án þess að hann fái ráð­herra­emb­ætti.

Þar segir Páll: „Í annað sinn á innan við ári hefur for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú gengið fram­hjá Suð­ur­kjör­dæmi þegar kemur að ráð­herra­skipan í rík­is­stjórn sem flokk­ur­inn á aðild að. Þetta ger­ist þrátt fyrir að kjör­dæmið sé annað höf­uð­vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á land­inu.

[adspot]

Ég mót­mælti því harð­lega í sam­tali við for­mann­inn í morgun að hlutur kjör­dæm­is­ins skuli þannig vera fyrir borð bor­inn og til­kynnti honum að af þess­ari ástæðu gæti ég ekki stutt þann ráð­herra­lista sem hann lagði fyrir þing­flokk­inn.

Áréttað skal að ég greiddi atkvæði með stjórn­ar­sátt­mál­anum og styð rík­is­stjórn­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár