Staða stjórnarflokkanna nú sterkari en hún var hálfu ári eftir kosningarnar 2017

Rúmt hálft ár er liðið af öðru kjör­tíma­bili þar sem rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur situr að völdum á Íslandi. Staða sumra stjórn­mála­flokka hefur breyst umtals­vert á fjórum árum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni haustið 2017. Flokkar þeirra hafa nánast skipt um fylgi á síðustu fjórum árum.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í kosn­inga­bar­átt­unni haustið 2017. Flokkar þeirra hafa nán­ast skipt um fylgi á síð­ustu fjórum árum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rúmt hálft ár er liðið af öðru kjör­tíma­bili þar sem rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur situr að völdum á Íslandi. Staða sumra stjórn­mála­flokka hefur breyst umtals­vert á síð­ustu fjórum árum.

Samkvæmt könnun Gallup, sem sýndi fylgi stjórn­mála­flokka í mars­mán­uði, mæld­ist fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja; Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna alls 52,1 pró­sent um sex mán­uðum eftir að kosið var síð­ast.

Fyrsta rík­is­stjórn þess­ara flokka var mynduð eftir kosn­ingar í lok októ­ber 2017. Sex mán­uðum eftir að þær voru yfir­staðnar mæld­ist sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja 49 pró­sent, sem þýddi að minna en helm­ingur þjóð­ar­innar sagð­ist vilja kjósa þá á þeim tíma­punkti.

Alls sögð­ust 58,2 pró­sent kjós­enda styðja rík­is­stjórn­ina í lok apr­íl­mán­aðar 2018 en í nýj­ustu könnun Gallup, sem sýndi stöð­una sex mán­uðum eftir síð­ustu þing­kosn­ingar sem leiddu til þess að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið var end­ur­nýjað, mæld­ist stuðn­ing­ur­inn við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur 61 pró­sent.

Þessar tölur benda til þess að stjórnin standi styrk­ari fótum þegar sex mán­uðir eru liðnir af öðru kjör­tíma­bili hennar við völd en hún gerði þegar sami tími var lið­inn af fyrsta valda­tíma­bili hennar.

Vert er að taka fram að könnun sem Maskína birti í vik­unni sem var að líða sýnir að staða stjórn­ar­flokk­anna hafi versnað umtals­vert allra síð­ustu daga, eftir að hneyksl­is­mál tengd banka­sölu og Bún­að­ar­þingi komu upp á yfir­borðið. Í þess­ari sam­an­tekt er hins vegar ein­ungis stuðst við nið­ur­stöður úr könn­unum Gallup.

Nýtt valdajafnvægi

Valda­jafn­vægið innan rík­is­stjórn­ar­innar hefur þó breyst á þessum tíma. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur í síð­ustu kosn­ingum og fjölg­aði þing­mönnum sínum um fimm í 13. Þing­manna­fjöldi Sjálf­stæð­is­flokks­ins stóð í stað, og jókst reyndar um einn eftir kosn­ingar þegar Birgir Þór­ar­ins­son hopp­aði um borð frá Mið­flokknum. Vinstri græn töp­uðu þremur þing­mönnum frá kosn­ing­unum 2017 en tveir þeirra, Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, yfir­gáfu flokk­inn reyndar á kjör­tíma­bil­inu.

[adspot]Þegar hálft ár var liðið af síð­asta kjör­tíma­bili var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn langstærsti flokkur lands­ins með 25,3 pró­sent fylgi. Hann mælist nú með 22,7 pró­sent. Vinstri græn voru stærri en Framsókn í apríl 2018 með 14,1 pró­sent fylgi á meðan að 9,6 pró­sent sögð­ust myndu kjósa Framsókn. Í dag hefur dæmið snú­ist við og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með nán­ast tvö­falt það fylgi sem hann mæld­ist með í apríl 2018, eða 18 pró­sent, á meðan að Vinstri græn hafa dalað og njóta stuðn­ings 11,4 pró­sent kjós­enda.

Samfylkingin á mun verri stað

Þegar hálft ár var liðið af síð­asta kjör­tíma­bili virt­ist það fyrst og síð­ast vera Sam­fylk­ingin sem var að vaxa skarpt á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Hún hafði fengið 12,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 en mæld­ist með 17,7 pró­sent fylgi í lok apríl 2018. Enginn flokkur hafði bætt jafn miklu við sig og hún á fyrstu sex mán­uðum kjör­tíma­bils­ins.

Nú er staðan önnur. Sam­fylk­ingin dal­aði skarpt í fylgi þegar leið á síð­asta kjör­tíma­bil og end­aði með því að fá ein­ungis 9,9 pró­sent atkvæða. Hún hefur ekki hresst mikið síðan þá og mælist nú með 11,2 pró­sent fylgi, sem er enn minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017.

Píratar eru sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem bætt hefur mestu við sig á þessu kjör­tíma­bili sam­kvæmt könnun Gallups en flokk­ur­inn mælist nú með 11,9 pró­sent fylgi eftir að hafa fengið 8,6 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár