Byggja upp traust með því að miðla upplýsingum milli almennings og stjórnvalda

Til­gangur vefs­ins Betra Ísland er að skapa umræðu­grund­völl milli stjórn­mála­manna og fólks­ins í land­inu og að byggja upp traust þar á milli. Fram­kvæmda­stjóri vefs­ins skorar á öll fram­boð sem enn eru ekki búin að setja inn stefnur að taka þátt.

Ný vef­síða hefur nú litið dags­ins ljós sem ber nafnið Betra Ísland. Til­gang­ur­inn er að tengja saman almenn­ing og þing­menn, hvetja til góðrar rök­ræðu og að fá fólk til að tala saman og byggja upp traust. Þetta segir Róbert Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri Íbúa ses. Hann segir að það taki tíma að byggja upp vef með þessum hætti en hann sé þó að smella saman.

Vefurinn er tengdur inn á Kosn­inga­mið­stöð Kjarnans þar sem finna má hinar ýmsu upp­lýs­ingar um fram­bjóð­endur, nýj­ustu kosn­inga­spána og umfjall­anir.

Píratar, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ing eru búin að setja stefnur flokk­anna inn á vef­inn og segir Róbert að til standi hjá VG og Mið­flokknum að setja sínar stefnur inn seinna í dag. Vonast hann til að hinir flokk­arnir fylgi á eftir.

Nýta netið til að koma hugmyndum á framfæri

Róbert segir að hug­myndin hafi komið upp og henni hrundið af stað nokkrum vikum eftir efna­hags­hrunið 2008. For­sprakkar hennar hafi velt því fyrir sér hvernig hægt væri að nýta netið til að koma hug­myndum frá almenn­ingi og fólk­inu í land­inu til stjórn­mála­manna. Útkoman hafi verið slíkur umræðu­vett­vangur.

Hug­mynda­fræði vefs­ins er sú sama og hjá Betri Reykja­vík þar sem íbúar borg­ar­innar geta tekið þátt í umræðum og jafn­vel haft áhrif á ákvarð­ana­töku stjórn­mála­manna. „Við viljum gefa almenn­ingi sterk­ari rödd inn í stjórn­kerf­inu,“ segir Róbert um til­gang vefs­ins. Hann bendir á að hér áður fyrr hafi fólk mætt á kjör­staði og kosið full­trúa í fjögur ár í senn. Hann segir að þetta kerfi sé úrelt og að gott sé fyrir þjóð­fé­lagið að almenn­ingur komi að ákvarð­ana­töku í gegnum kjör­tíma­bilið, ekki bara í kringum eða rétt fyrir kosn­ingar.

Hugbúnaðurinn notaður um allan heim

Verk­efnið er ekki nýtt af nál­inni en vel hefur gengið að virkja almenn­ing á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu. Róbert segir að útgáfa af vefnum hafi verið notuð í um 20 öðrum löndum. Í Eist­landi hafi kerfið verið notað þegar for­seti lands­ins kall­aði eftir hug­myndum hvernig hægt væri að breyta lögum í land­inu eftir röð skandala. Hann lagði á end­anum fram fimmtán laga­frum­vörp eftir hug­mynda­vinnu frá almenn­ingi og sjö af þeim urðu að lögum.

Hug­bún­að­ur­inn var einnig not­aður á Möltu í kosn­ingum síð­asta sumar. Um 15 til 20 pró­sent íbúa á Möltu fóru á síð­una og yfir 2 pró­sent tóku beinan þátt í umræðum á henni.

Róbert segir að Betra Ísland byggi á opnum hug­bún­aði, þ.e. hver sem er geti nýtt hann og hafi margir unnið að því í sam­ein­ingu. Hann segir að borg­arar lands­ins vilji taka þátt í málum sem þá varða og því sem ger­ist í kringum þá. Þess vegna hafi íbúa­kosn­ingar verið vin­sælar. Mikil gróska sé í gras­rót­ar­vinnu sem þess­ari og áhugi. Það eigi ekki ein­ungis við um Ísland heldur úti um allan heim, eins og sýni sig í notkun hug­bún­að­ar­ins.

Vilja fá málefnalegar umræður

Vefurinn opn­aði fyrir tveimur vikum en aðstand­endur hans opn­uðu vef með sama sniði fyrir kosn­ing­arnar í fyrra. Að sögn Róbert gengur mun betur í ár að tengja saman fram­bjóð­endur og almenn­ing en um 15.000 manns hafa heim­sótt vef­inn síðan hann opn­aði.

Vefurinn gengur út á að fólk setji inn hug­myndir og rök með og á móti. Róbert segir að rök­ræð­urnar fari með öðrum hætti fram en til dæmis á Facebook. Ekki sé um spjall­þráð að ræða og með því að biðja fólk að setja fram mótrök við hug­myndir þá náist mál­efna­legri umræður.

Betra Ísland skorar á öll fram­boð sem enn eru ekki búin að setja inn stefnur að taka þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár