Helstu áherslur flokkanna í umhverfismálum

Flestir flokk­arnir sem bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum um helg­ina hafa sent inn stefnu­mál sín á vef­síð­una Betra Ísland. Kjarninn tók saman helstu áherslur flokk­anna í umhverf­is­málum.

Með auknum áhuga á umhverf­is­málum þykir alltaf mik­il­væg­ara og mik­il­væg­ara að stjórn­völd hafi skýra stefnu í umhverf­is­málum. En hverjar eru hug­myndir flokk­anna sem bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum um til dæmis frið­lýs­ingu svæða, einka­væð­ingu vatns og orku­stefnu?

Kjarninn tók saman helstu áherslu­mál í mála­flokknum en allir flokk­arnir nema einn hafa skilað inn stefnu­málum á Betra Ísland. Hægt er að taka þátt í umræð­unni á síð­unni sjálfri.

Á vef­síð­unni Betra Ísland er hægt að lesa um fleiri stefnu­mál flokk­anna og taka þátt í rök­ræðum.

Vinstri græn

Þau vilja auka til muna inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu, því mikið af mat skemmist í flutn­ingum, og efla fræðslu um mat­ar­sóun, bæði í skólum og stofn­unum. Einnig vilja þau skoða kosti þess að setja sér­stök gjöld á fyr­ir­tæki og stofn­anir sem henda mikið af mat.

Hefja þarf end­ur­skoðun raf­orku­samn­inga til stór­iðju með það að mark­miði að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, fækka meng­andi stór­iðju­verum, auka fjöl­breytni í iðn­aði og fjölga í hópi „grænna“ fyr­ir­tækja sem nota raf­orku á Íslandi, að þeirra mati.

Vinstri græn telja að allar stærri áætl­anir rík­is­ins, rekstur rík­is­stofn­ana, frum­vörp og þings­á­lykt­anir þurfi að meta með til­liti til umhverf­is­sjón­ar­miða, los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og auð­linda­nýt­ingar.

Jafn­framt þurfi að tryggja að gengið verði um nátt­úru­auð­lindir Íslands af ábyrgum hætti.

„Hverfum frá áformum um olíu­vinnslu, skiptum jarð­efna­elds­neyti út fyrir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa, bindum kolefni með mót­væg­is­að­gerðum og strikum frek­ari áform um meng­andi stór­iðju út af borð­inu,“ segir í áherslum þeirra.

Taka þurfi taf­ar­laust upp sams­konar reglur og gilda í Norð­ur­sjó og Eystra­salti um útblástur skipa á haf­svæð­inu umhverfis landið. Það þurfi að inn­leiða við­auka VI í MARPOL samn­ingnum og fylgja honum eftir með skil­grein­ingu ECA (Emission control area) svæðis. Þá þurfi að inn­leiða við­auka IV í Marpol um varnir gegn skólp­mengun frá skipum. Íslend­ingar eigi að stilla sér upp meðal fremstu þjóða við Norður Atl­ants­haf um að draga úr mengun af öllu tagi um allt Atl­ants­hafið.

Þau ítreka stefnu sína gegn plast­noktun og leggja til að plast­pokar verði bann­aðir á Íslandi og að mun strang­ari reglur verði settar um notkun plast­um­búða. Banna þurfi inn­flutn­ing og fram­leiðslu á vörum sem inni­halda örplast, svo sem snyrti- og hrein­læt­is­vörum á borð við and­lits­skrúbba, tann­krem og þvotta­efni.

Vinstri­hreyf­ingin telur að brýnt sé að bæta hreinsi­búnað frá­rennsl­is­stöðva á öllu land­inu og bæta eft­ir­fylgni reglna um förgun spilli­efna. Mik­il­vægt sé að öllu skólpi sé fargað á þann veg að ekki sé hætta á því að upp komi sjúk­dómar í fólki og dýrum. Plast­agnir frá hjól­börðum séu lík­lega langstærstu hluti örplasts­meng­unar og því sé mik­il­vægt að bæta einnig með­höndlun og og hreinsun ofan­vatns, til dæmis með blá­grænum lausnum og sett­jörnum til hreins­unar afrennslis af gatna­kerfi þétt­býl­is­staða.

Mik­il­vægt er, sam­kvæmt VG, að halda áfram að frið­lýsa vist­gerðir, jarð­minjar, óbyggð víð­erni og lands­lag sem og vernda líf­fræði­lega fjöl­breytni til að tryggja að sér­staða nátt­úru Íslands njóti verndar. Sveit­ar­fé­lög móti sér stefnu um nátt­úru­vernd og verndun líf­fræði­leg fjöl­breytni. Reykja­vík­ur­borg sam­þykkti stefnu um líf­fræði­lega fjöl­breytni í jan­úar 2016.

VG er mót­fall­inn meng­andi stór­iðju í Helguvík og krefst þess að hún verði stöðvuð. Efla þurfi eft­ir­lits­stofn­anir sem koma að umhverf­is­málum. Þau segj­ast muni verja hags­muni íbúa á svæð­inu og tryggja öryggi og vel­ferð þeirra með því að berj­ast gegn og stöðva alla meng­andi stór­iðju í Helguvík og um land allt.

VG telur mik­il­vægt að bæta veru­lega íviln­anir mið­aðar að því að stór­efla líf­ræna ylræktun á Íslandi. Æskilegt sé að Íslend­ingar nýti þá orku sem við búum yfir, bæði jarð­hita og raf­orku, fyrir ylræktun og almennt sjálf­bær­ari land­búnað. Auka þurfi vit­und um tengsl fram­leiðslu­kerfa mat­væla og þau áhrif sem þau hafa á umhverfi sitt, þar með talin hlýn­un­ar­á­hrif. Þá sé mik­il­vægt að auka fram­leiðslu og neyslu á inn­lendu græn­meti og draga úr inn­flutn­ingi á kjöti, sem hefur stórt kolefn­is­fót­spor.

Stemma þurfi stigu við mat­væla­sóun með því að í fyrsta lagi auka til muna inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu, í öðru lagi banna stór­mörk­uðum að henda mat, sem hefur t.d. verið gert í Frakk­landi og í þriðja lagi að efla fræðslu um mat­ar­sóun, bæði í skólum og stofn­unum. „Til að tryggja mögu­leika okkar á fram­tíð hér á jörðu er mik­il­vægt að draga úr neyslu og hætta að nota fyr­ir­bæri á borð við neyslu­vísi­tölu til þess að mæla vel­megun.“

Draga þurfi úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda með því að hverfa frá olíu­vinnslu og hefja þegar öfl­uga upp­bygg­ingu inn­viða til að skipta jarð­efna­elds­neyti út fyrir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa í sam­göngum og iðn­aði. Ísland eigi að beita sér fyrir því að jarð­efna­elds­neyti verði ekki unnið á Norð­ur­slóðum. Íslandi beri einnig að minnka losun frá stór­iðju og að taka þátt í fram­sæknum orku­skiptum í flugi og sigl­ingum. Skipulag þurfi að tryggja að almenn­ings­sam­göngur, hjól­reiðar og ganga verði raun­hæfir val­kostir.

Tryggja þurfi fræðslu um umhverf­is­mál á öllum skóla­stigum, á vett­vangi frjálsra félaga­sam­taka og aðila á vinnu­mark­aði. Kjörið sé að nýta kom­andi kjara­samn­inga til að inn­leiða aukna umhverf­is­vit­und, t.d. með sam­göngu­styrkjum og umhverf­is­fræðslu til starfs­manna. Vöktun og rann­sóknir sem stuðla að nátt­úru­vernd þurfi að styrkja til fram­tíðar. Nýta þurfi þá þekk­ingu og miðlun sem þegar er til staðar, hana þurfi að styrkja og auka, til dæmis með því að end­ur­vekja Umhverf­is­fræðslu­ráð.

Samfylkingin

Sam­fylk­ingin seg­ist ætla að skýra umboð stjórn­valda til að grípa inn í ef hætta stafar af ágangi ferða­manna, til að mynda með tíma­bundnum lok­unum eða tak­mörk­unum á umferð og fjölda ferða­manna inn á ákveðin svæði. Stjórn­völd verði að ákveða hvar eigi að byggja upp svæði, inn­viði og þjón­ustu og hvar ekki. Setja eigi stefnu í ferða­málum til næstu ára­tuga í sam­ráði við fólk og fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og bestu rann­sóknir.

Flokk­ur­inn vill taka höndum saman við sveit­ar­fé­lög lands­ins við upp­bygg­ingu kerfis almenn­ings­sam­gangna með rútum, hrað­lestum, samnýt­ingu bif­reiða­kosts, hjóla­stígum og göngu­stígum. Hefja þurfi sam­vinnu ríkis og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um lest­ar­sam­göngur sem tengj­ast Kefla­vík­ur­flug­velli og fjár­magna Borg­ar­línu.

Sam­fylk­ingin seg­ist ætla að gera vöktun og rann­sóknir á súrnun að for­gangs­verk­efni sem stjórn­völd beita sér fyrir á alþjóða­vett­vangi. Miða þurfi allar aðgerðir við nið­ur­stöður nýlegra rann­sókna á súrnun sjávar og hætta notkun jarð­efna­elds­neytis með orku­skiptum í bíla- og skipa­flot­anum. Binda þurfi gróð­ur­húsa­loft­teg­undir í gróðri og jarð­vegi með ræktun, vernd og end­ur­heimt vot­lendis og nýjum leiðum á borð við nið­ur­dæl­ingu og fram­leiðslu met­anóls úr koltví­sýr­ingi.

Alþýðufylkingin

Alþýðu­fylk­ingin bendir á að frá land­námi til 1998 hafi vatn verið félags­leg eign. Þau segja að með breyt­ingum á vatna­lögum 1998 og 2006 hafi það verið einka­vætt. Land­eig­andi eigi ekki að geta selt frá sér vatns­rétt­indin. Þau eigi að fylgja land­inu. Hvort sem það er yfir­borðs­vatn eða grunn­vatn, eigi hver sem er að hafa nýt­ing­ar­rétt, til dæmis til að vökva eða brynna dýrum.

Jafn­framt telja þau að þó tækni­lega sé ger­legt að leggja raf­magns­sæ­streng til Skotlands, eins og Stein­grímur J. beitti sér fyrir þegar hann var ráð­herra, eigi samt ekki að gera það. „Enda mundi hann bæði þrýsta á hækkun raf­magns­verðs á inn­an­lands­mark­aði og á meiri virkj­anir til að borga niður þá 1000 millj­arða sem er áætlað að hann mundi kosta.“

Framsóknarflokkurinn

Norð­ur­slóðir eru sér­stak­lega við­kvæmt svæði er varðar breyt­ingar í umhverfi þess. Framsókn seg­ist vilja setja aukið fjár­magn í rann­sóknir á svæð­inu og áhrifum plasts og súrn­unar sjávar á líf­ríki. Þess skuli þá vera gætt að aukin umsvif á svæð­inu stand­ist ýtr­ustu umhverfis­kröfur.

Þau benda einnig á að plast sé hættu­legt líf­rík­inu og eyð­ist seint í nátt­úr­unni. Því sé mik­il­vægt að draga úr notkun þess eins og hægt er. Framsókn seg­ist vilja skapa hvata til notk­unar umhverf­is­vænna umbúða, draga enn frekar úr notkun plast­poka, einnota plast­á­halda og auka kröfur um end­ur­vinnslu á plasti.

Mik­il­vægt sé að stjórn­völd beiti sér fyrir því að ná lofts­lags­mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins til að tryggja að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5°C. Stjórn­völd skuli setja sér skýra stefnu í þessu málum þar sem mark­miðið er kolefn­is­hlut­laust Íslands.

„Við viljum tryggja sann­gjarnan arð til þjóð­ar­innar af sam­eig­in­legum auð­lindum og að auð­linda­á­kvæði verði sett í stjórn­ar­skrá,“ segir í áherslum þeirra.

Björt framtíð

Björt fram­tíð leggur mikla áherslu á að stjórn­völd og sam­fé­lagið allt vinni saman að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í takt við skuld­bind­ingar Ísland í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu

Þau segja að það sé full­kom­lega eðli­legt að hið opin­bera sæki sér umtals­verðar tekjur til auð­linda­notk­unar sem hægt væri að nýta til dæmis til nauð­syn­legrar upp­bygg­ingar á innviðum ferða­þjón­ustu og byggða­styrk­ingar.

Einnig benda þau á að Ísland sé ríkt af auð­lindum. End­ur­nýj­an­lega orkan, nátt­úran, víð­ernin og fisk­ur­inn í sjónum eru Íslend­ingum gjöful. Umfram allt þurfi Íslend­ingar að passa upp á sjálf­bærn­ina við nýt­ingu á þessum auð­lindum. Fyrir umhverfið og fyrir kom­andi kyn­slóðir. Stefna Bjartrar fram­tíðar í auð­linda­málum sé því sam­tengd umhverf­is­stefn­unni.

Þau telja að ekki sé ásætt­an­legt að árið 2017 sé jarð­vegs­rof og illa farin vist­kerfi eitt stærsta lofts­lags­mál Íslands

Björt fram­tíð er alfarið á móti olíu­vinnslu á norð­ur­slóðum

Þau leggja áherslu á að ferða­þjón­ustan dafni í sátt og sam­lyndi við sam­fé­lagið, nátt­úru lands­ins og atvinnu­lífð. Til þess þurfi skýra fram­tíð­ar­sýn um sjálf­bærni í nýt­ingu nátt­úr­unnar, upp­bygg­ingu inn­viða og rekstr­ar­um­hverfi atvinnu­grein­ar­innar

Þau vilja tryggja fjár­magn til stefnu­mark­andi áætlun um nátt­úru­vernd. Björt fram­tíð seg­ist styðja stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs enda nauð­syn­legt að varð­veita nátt­úru­verð­mæti mið­há­lend­is­ins sem eru ein­stök á heims­vísu. Þau styðja því ein­dregið áform umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um stofnun þjóð­garða­stofn­unar.

Björt Framtíð telur nauð­syn­legt að fá fram heild­stæðar upp­lýs­ingar um nátt­úru­auð­lindir Íslands og ástand þeirra til að byggja undir stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að nýt­ing auð­linda til lands og sjávar verði ætíð í jafn­vægi þannig að kom­andi kyn­slóðir megi njóta sömu gæða og þær sem nú byggja landið. Þau styðja því ein­dregið áform umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um gerð hvít­bókar um nátt­úru­auð­lindir lands­ins.

Þau benda á að and­rúms­loft sé grunnur alls lífs og mik­il­vægt sé að vernda loft­gæði með öllum til­tækum ráðum. „Við getum dregið úr þeirri loft­mengun sem er af manna­völdum. Ómengað loft skiptir öllu máli,“ segja þau.

Sjálfstæðisflokkurinn

Þau segj­ast ætla að vera áfram í fremstu röð í umhverf­is­málum. Ísland sé til fyr­ir­myndar í umhverf­is­málum en þau geti gert betur. Þau ætli að fylgja eftir metn­að­ar­fullum mark­miðum í lofts­lags­málum og gæta jafn­vægis milli nýt­ingar og nátt­úru.

Píratar

Píratar vilja verndum við­kvæma nátt­úru mið­há­lend­is­ins. Mið­há­lendið sé ein dýr­mætasta perla lands­ins. Þar má finna eld­fjöll, jökla, vatns­miklar ár og fossa, lit­rík háhita­svæði, víð­feðm hraun og svartar sand­auðnir sem kall­ast á við við­kvæmar gróð­ur­vinjar. Saman mynda þessi nátt­úru­fyr­ir­bæri stór­brotnar lands­lags­heildir á einum stærstu víð­ernum Evrópu. Þessa þjóð­ar­ger­semi þurfi að vernda til fram­tíðar.

Þau vilja stuðla að raf­bíla­væð­ingu Íslands, meðal ann­ars með því að huga að innviðum og með fjár­hags­legum íviln­unum sem stefna að því að auka hlut­fall raf­bíla. Almenn orku­mála- og umhverf­is­stefna ætti að inni­halda mark­mið um raf­bíla­væð­ingu og gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að ná þeim mark­miðum.

Ísland verði leið­andi í lofts­lags­málum. Ísland taki skýra afstöðu gegn frek­ari olíu­leit og olíu­vinnslu í efna­hags­lög­sög­unni. Mengandi starf­semi greiði sér­staka meng­un­ar­rentu umfram hefð­bundna skatta. Hagrænir hvatar verði nýttir til þess að draga úr útstreymi meng­unar í umhverfið. Ísland verði leið­andi í lofts­lags­málum, grípi til aðgerða sem upp­fylla skil­yrði Par­ís­ar­samn­ings­ins og setji for­dæmi fyrir aðrar þjóðir að gera slíkt hið sama.

Flokkur fólks­ins hefur ekki skilað inn stefnu­málum sínum á síð­una og áherslur Dögunar, Við­reisnar og Mið­flokks­ins vantar varð­andi umhverf­is­mál.

Tekið skal fram að þessi listi er ekki tæm­andi. Á morgun mun Kjarninn einnig vera með umfjöllun um önnur mál sem snú­ast um dóm­stóla, stjórn­ar­skrá og lýð­ræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár