Helstu stefnumál flokkanna á einum stað - Hvernig sjá flokkarnir fyrir sér atvinnumál og nýtingu auðlinda?

Flestir flokk­arnir sem bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum um næstu helgi hafa sent inn stefnu­mál sín á vef­síð­una Betra Ísland. Kjarninn tók saman helstu áherslur flokk­anna í atvinnu- og auð­linda­málum.

Flokk­arnir ell­efu hafa mis­mun­andi sýn á hvernig bæta megi atvinnu­mál á Íslandi og hvernig nýt­ingu auð­linda eigi að vera háttað. Á vef­síð­unni Betra Ísland er hægt að lesa helstu stefnu­mál flokk­anna og taka þátt í rök­ræðum.

Til­gang­ur­inn með síð­unni er að tengja saman almenn­ing og þing­menn, hvetja til góðrar rök­ræðu og að fá fólk til að tala saman og byggja upp traust. Þetta segir Róbert Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri Íbúa ses. en lesa má frekar um verk­efnið í frétt Kjarnans um vef­síð­una. 

Kjarninn tók saman helstu áherslu­mál í mála­flokknum en allir flokk­arnir nema einn hafa skilað inn stefnu­málum á Betra Ísland. Hægt er að lesa um fleiri stefnu­mál og taka þátt í umræð­unni á síð­unni sjálfri.

Samfylkingin

Flokk­ur­inn vill búa Íslend­inga undir nýju tækni­bylt­ing­una. Þau segja að fjölga þurfi vel­laun­uðum störfum hér á landi og auka fjöl­breytni þeirra um allt land. Til þess þurfi að byggja atvinnu­lífið í enn frekara mæli á hug­viti, listum og nýsköpun.

Sú þróun sé líka nauð­syn­leg til þess að bregð­ast við þeirri öru þróun í tækni sem nú á sér stað um heim allan og er að gjör­breyta þeim störfum sem manns­höndin og hugur kemur að. Lyk­il­at­riði í þeim und­ir­bún­ingi sé stór­sókn í skóla­kerf­inu sem gerir Íslend­ingum kleift að vera virkir þátt­tak­endur í þess­ari fram­þróun.

Alþýðufylkingin

Þau telja að fiski­stofnar eigi að vera félags­leg eign. Veiði­heim­ildum eigi að úthluta til byggð­ar­lag­anna. Byggð­ar­lög sem eru með sterka útgerð og fisk­vinnslu eða eru nærri fiski­miðum eigi að njóta þess. Fisk­veiðar á verk­smiðju-skala, eins og tog­arar, eigi að borga fyrir veiði­leyfin. Veiðar á hand­verks-skala, eins og trillur, eigi ekki að þurfa að borga neitt heldur veiða frjálst.

Alþýðu­fylk­ingin vill félags­lega fjár­mála­þjón­ustu fyrir bændur. Þau segja að bóndi sem hefur búskap þurfi fyrst að kaupa jörð­ina sína, jafn­vel þótt hann erfi hana þurfi hann að kaupa systk­ini sín út. Til þess ætti hann að fá vaxta­laus lán frá félags­lega reknu fjár­mála­kerfi. Sama þegar hann þurfi að end­ur­nýja vélar hjá sér, húsa­kost eða annað sem krefst lán­töku.

Einnig vilja þau rýmkum reglu­gerðir um slát­ur­hús. Reglu­gerðir um slát­ur­hús eru fengnar frá ESB í gegn um EES. Fylk­ingin álítur sem svo að þær eigi kannski við úti í hinni stóru Evrópu en á Íslandi þýði þær að slát­ur­hús reki sig ekki nema þau séu stór, og landið beri ekki sér­lega mörg stór slát­ur­hús.

„Einu sinni var slát­ur­hús í svotil hverri sveit. voru kannski frysti­hús mestan part árs­ins en nýtt sem slát­ur­hús í nokkrar vikur á haustin. Í dag þarf að keyra með kindur o.fl. dýr í vögnum jafn­vel 400 kíló­metra eða meira. Nær þetta ein­hverri átt?“ spyr Alþýðu­fylk­ingin.

Miðflokkurinn

Þau ætla að lækka trygg­inga­gjald til sam­ræmis við atvinnustig því aukið svig­rúm fyr­ir­tækja komi öllu sam­fé­lag­inu til góða.

„Við ætlum að lækka trygg­inga­gjaldið enn meira fyrir fyrstu 10 starfs­menn fyr­ir­tækis til að koma til móts við minni fyr­ir­tæki og auð­velda nýsköp­unar- og sprota­fyr­ir­tækjum rekst­ur­inn.“

Viðreisn

Viðreisn seg­ist ætla að tryggja þjóð­ar­eign í fram­kvæmd. „Nytja­stofnar á Íslands­miðum eru sam­eign íslensku þjóð­ar­innar,“ segir í 1. gr. laga um stjórn fisk­veiða. Þau telja að þessa hug­mynd þurfi að tryggja í fram­kvæmd ef hún á ekki að vera orðin tóm. Það sé best gert með því að úthluta afla­heim­ildum til tak­mark­aðs tíma í senn. Tíma­bundna samn­inga megi end­ur­nýja og taka gjald fyrir, til dæmis með upp­boðum.

Framsóknarflokkurinn

Framsókn telur að neyt­endur eigi rétt á skýrum upp­lýs­ingum um upp­runa, fram­leiðslu­hætti, lyfja­notkun og umhverf­is­á­hrif. Þau segj­ast vilja fylgja fast eftir reglum um upp­runa­merk­ingar og tryggja að þær nái til allra mat­væla þar sem þau eru seld.

Tryggja þurfi nýsköpun og vöru­þróun í land­bún­aði til að fjöl­skyldu­rekstur í grein­inni verði hag­stæður. Framsókn vill skapa aðstæður fyrir frek­ari fram­þróun við end­ur­skoðun búvöru­samn­ing­anna 2019.

Þau benda á að grafal­var­leg staða sé í sauð­fjár­rækt vegna 30 pró­sent verð­lækk­unar á afurðum og lok­unar mark­aða erlendis. Þau segj­ast vilja auka stuðn­ing tíma­bundið til að hjálpa bændum að kom­ast yfir þennan hjalla og lög­leiða verk­færi til sveiflu­jöfn­unar svo að þessi staða komi ekki upp aftur. Sauð­fjár­rækt sé und­ir­staða dreifðra byggða víða um land.

Jafn­framt segja þau að ótrygg afhend­ing raf­orku hring­inn í kringum landið standi atvinnu­lífi fyrir þrifum, skapi mik­inn kostnað, valdi óþæg­indum í heim­il­is­rekstri og dag­legu lífi fólks. Framsókn vill tryggja raf­orku­ör­yggi í land­inu en þau segja að afhend­ing raf­orku sé ein af lyk­il­stoðum inn­viða í land­inu og þjóni bæði almenn­ingi og fyr­ir­tækjum. Framsókn vill flýta þrí­fösun raf­magns um land allt.

Framsókn seg­ist ekki vilja einka­væða Lands­virkjun. Almenn­ingur eigi að njóta hins mikla arðs sem Lands­virkjun muni skila um ókomin ár. Lands­virkjun gegni lyk­il­hlut­verki í nýt­ingu hreinna og end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa til fram­tíðar til hag­sældar fyrir íslenska þjóð.

Þau telja að vöxtur og við­gangur lax­eld­is­ins megi ekki ger­ast á kostnað nátt­úr­unnar eða villta íslenska laxa­stofns­ins. Framsókn vill ná sátt um upp­bygg­ingu og starf­semi fisk­eldis á Íslandi. Slík sátt náist aðeins með virku eft­ir­liti og rann­sóknum ásamt tryggu reglu­verki og vís­inda­legu áhættu­mati. Beita þurfi mót­væg­is­að­gerðum sem lág­marka umhverf­is­á­hrif af eld­inu og taka mið af bestu fáan­legu tækni.

Tekjur af komu­gjaldi skuli nýta til vernd­unar nátt­úr­unnar, nauð­syn­legrar upp­bygg­ingar inn­viða og til að bæta aðstöðu við ferða­manna­staði.

Framsókn telur ótíma­bært að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu. Við núver­andi aðstæður sé ótíma­bært að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu. Ferða­þjón­ustan sé gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein og víð­ast hvar í neðra þrepi. Framsókn vill verja sam­keppn­is­hæfni grein­ar­innar með því að hverfa frá áformum um hækkun virð­is­auka­skatts.

Þau segja að vegna þess að sveit­ar­fé­lög hafi ekki beinar tekjur af ferða­mönnum þá vilji þau að gistin­átta­gjald sé ákveðið hlut­fall af verði gist­ingar. Eðlilegt sé að hvert sveit­ar­fé­lag ráð­stafi því gistin­átta­gjaldi sem þar fellur til upp­bygg­ingar á innviðum sam­fé­lags­ins.

Vinstri græn

VG telur að aukin fjár­fest­ing í rann­sóknum og nýsköpun sé grund­vall­ar­at­riði til að tryggja vel­sæld sam­fé­lags­ins til fram­tíðar. Meðal þess sem þarf að gera sé að búa betur að verk­mennta­skólum og tryggja að fjár­mögnun íslenskra háskóla verði sam­bæri­leg við háskóla á Norð­ur­löndum.

Stórbæta þurfi aðstöðu ferða­manna og tryggja að ferða­þjón­usta og nátt­úru­vernd fari saman. Setja þurfi skýr mark­mið um vist­væna ferða­þjón­ustu og nýta enn betur mögu­leika á að tengja menn­ingu og ferða­þjón­ustu. Tryggja þurfi eðli­legt hlut­fall sveit­ar­fé­laga í tekjum af ferða­þjón­ustu.

Þau benda á að öfl­ugur inn­lendur land­bún­aður, með áherslu á nýsköpun og líf­ræna ræktun, sé und­ir­staða heil­næmrar og öruggrar mat­væla­fram­leiðslu í land­inu þar sem hagur bænda og neyt­enda fari saman.

Meg­in­mark­miðið með sterkri sjáv­ar­út­vegs­stefnu sé sjálf­bær nýt­ing fiski­stofn­anna, ábyrg umgengni um líf­ríki hafs­ins, sam­hengi í byggða­þróun og síð­ast en ekki síst að arð­ur­inn af auð­lind­inni renni til þjóð­ar­innar.

Píratar

Píratar vilja að gerð verði lang­tíma­á­ætlun um skipu­lag og upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu á Íslandi með umhverf­is­vernd í far­ar­broddi allra ákvarð­anna.

Skyn­sam­legur stuðn­ingur gagn­ist bæði bændum og neyt­endum End­ur­skoðum núver­andi stuðn­ings­kerfi til bænda, þar sem virkir bændur sem við­hafa við­ur­kenndar starfs­að­ferðir eigi rétt á grunn­stuðn­ingi sem tryggir afkomu­ör­yggi bænda.

Til að atvinnu­líf um allt land blóm­stri og allir njóti tæki­færa þurfi að upp­færa teng­ingar. „Tengjum Ísland með þriggja fasa raf­magni, betri sam­göngum milli lands­horna og virkri netteng­ingu um allt land. Píratar skilja að góð netteng­ing er grunn­stoð fyrir atvinnu­líf um allt land,“ segir í áherslum þeirra.

Þau segja að upp­bygg­ing ferða­þjón­ust­unnar krefj­ist skýrrar stefnu­mót­unar, þar sem sjálf­bærni og fag­mennska eru höfð að leið­ar­ljósi við upp­bygg­ingu á þjón­ustu, sam­göngum og aðbún­aði á við­komu­stöðum ferða­manna. Tryggja þurfi við­hald og upp­bygg­ingu á innviðum lands­ins sam­hliða auknum ferða­manna­straumi og dreifa álagi af við­kvæmum svæðum. Aukinn hluti hagn­aðar vegna ferða­þjón­ustu á hverjum stað verði eftir í nær­sam­fé­lag­inu.

Píratar vilja að hand­færa­veiðar verði gerðar frjálsar og aðgengi­legar þeim sem kjósa að stunda þær til atvinnu. Til­gang­ur­inn sé að stuðla að nýliðun og sjálf­bærri nýt­ingu sjávar ásamt kær­kominni búbót fyrir gjör­vallt landið. Kerfið verði ein­faldað og sveigj­an­leiki auk­inn til að auð­velda nýjum aðilum að stofna og reka útgerð. Hand­færa­veiðar skuli háðar skyn­sam­legum tak­mörk­unum og fjölda leyfa á ein­stak­linga, lög­að­ila og eftir teg­undum báta.

Íslenska ríkið, fyrir hönd þjóð­ar­innar, eigi að bjóða afla­heim­ildir upp til leigu á opnum mark­aði og skuli leigu­gjaldið renna í rík­is­sjóð. Skuli öll úrslit upp­boða vera opin­berar upp­lýs­ingar. Með þessum hætti væri jafn­ræði, nýliðun og sann­gjarn arður þjóð­ar­innar af fisk­veiði­auð­lind hennar tryggður.

Þau vilja lækka tolla á mat­væli og inn­flutn­ings­hömlur, aðrar en af heil­brigð­is­á­stæðum, í áföngum og fella að lokum niður.

Upphæðin sem fer í að nið­ur­greiða og styrkja land­bún­að­inn verði skipt niður jafnt á bændur lands­ins og greidd til þeirra beint sem laun. Þessi greiðsla verði að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum um lág­marks fram­leiðslu per býli á ári. Meg­in­at­riðið sé að bændur geti haldið áfram mat­væla­fram­leiðslu, fengið laun og auk þess selt afurðir sínar án þess að hafa áhyggjur af afkom­unni. Hluti af hug­mynd­inni er einnig að skoða mögu­leik­ann á að afnema toll­vernd sem myndi þá hækka bænda­launin.

Björt framtíð

Björt fram­tíð seg­ist vilja nýta betur þá orku sem Íslend­ingar vinni í stað þess að virkja.

Ísland gæti þannig orðið braut­ryðj­andi í sjálf­bærri og vist­vænni fisk­eld­is­tækni.

Flokkur fólks­ins hefur ekki skilað inn stefnu­málum sínum á síð­una og áherslur Dögunar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins vantar varð­andi atvinnu­vegi og auð­lindir.

Tekið skal fram að þessi listi er ekki tæm­andi. Á næstu dögum mun Kjarninn einnig vera með umfjöllun um önnur mál sem varða umhverf­is­mál, dóm­stóla, stjórn­ar­skrá og lýð­ræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár