Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 9 árum.

Menntamálaráðherra sakaður um ritskoðunartilburði – Björg segir sig úr stjórn RÚV

Siða­regl­ur sem banna starfs­mönn­um RÚV að tjá sig um „um­deild mál“ á sam­fé­lags­miðl­um voru ekki born­ar und­ir stjórn RÚV.

Menntamálaráðherra sakaður um ritskoðunartilburði – Björg segir sig úr stjórn RÚV

Björg Eva Erlendsdóttir, stjórnarmaður í RÚV og fyrrverandi stjórnarformaður, fullyrðir að Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hafi misnotað nýgerðan þjónustusamning við Ríkisútvarpið til að réttlæta eigin ritskoðunartilburði. Björg lagði fram bókun á stjórnarfundi þar sem samningurinn er gagnrýndur harðlega en sat hjá þegar greidd voru atkvæði um hann. Hún hyggst hætta í stjórninni á aðalfundi síðar mánuðinum. 

Í nýjum siðareglum starfsmanna Ríkisútvarpsins sem gengið hafa í gildi er meðal annars kveðið á um að „starfsfólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, fréttatengt efni og dagskrárgerð“ megi ekki taka opinberlega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélagsumræðunni, þar á meðal á samfélagsmiðlum. 

„Menntamálaráðherra hefur misnotað nýgerðan þjónustusamning til að réttlæta eigin ritskoðunartilburði. Það er háalvarlegt,“ skrifar Björg Eva á Facebook-síðu sinni. „Grimm ritskoðun ríkisstjórnarfulltrúa gagnvart RÚV frekar en efni þjónustusamningsins sjálfs, varð til þess að ég samþykkti hann ekki. Siðareglurnar voru ekki bornar undir stjórn.“ 

Í bókun sem hún lagði nýverið fram á stjórnarfundi fullyrðir hún að um niðurskurðarsamning sé að ræða „þar sem stjórnvöld ákveða að draga úr almennri þjónustu fjölmiðilsins á flestum sviðum og veikja meðal annars fréttaþjónustu, eins og síst skyldi“. Þá segir Björg að með eyrnamerkingum á fjárframlögum til RÚV hafi  stjórnarmeirihlutinn á Alþingi tekið sér dagskrárvald og hlutast til um ritstjórn. Auk þess hafi stjórnvöld gert sitt ýtrasta til að ala á tortryggni í garð RÚV t.d. með ákvæðum í samningum sem kveða á um endurskoðun fréttareglna og hlutleysiskrafna. 

Loks segir í bókun Bjargar: „Eftir víðfrægar árásir fjölmargra stjórnarliða úr báðum ríkisstjórnarflokkunum á Ríkisútvarpið er algjörlega skýrt að ekki vakir fyrir stjórnvöldum að búa Ríkisútvarpinu lífvænlegt umhverfi, hvorki með þjónustusamningi né öðrum rammaskilyrðum fjölmiðilsins. Í mínum augum er þjónustusamningurinn nauðarsamningur þar sem stjórnendum RÚV var stillt upp við vegg, eftir fjölmörg svikin fyrirheit og þeir látnir skera niður eina ferðina enn, án nokkurrar tryggingar fyrir því að þar með væri fjölmiðillinn kominn á lygnan sjó. Ekki þjónar neinum tilgangi að axla þá ábyrgð með þeim, eða taka mark á samningnum stjórnarmeirihlutans yfirleitt. Því sit ég hjá og kveð í leiðinni stjórn og stjórnendur Ríkisútvarpsins, með von um betri tíð og bættan hag Ríkisútvarpsins í framtíðinni.“

Uppfært 15. apríl, kl. 14:50
Í tilkynningu frá Guðlaugi G. Sverrissyni, stjórnarformanni RÚV kemur fram að Björg Eva hafi sagt frá því fyrr á árinu að hún ætlaði að hætta í stjórn á næsta aðalfundi Ríkisútvarpsins vegna þess að hún hygðist taka við starfi framkvæmdastjóra þingflokks Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. „Aðrar skýringar á ósk hennar að hætta í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. eru því nýjar fréttir,“ skrifar Guðlaugur. Rétt er að taka fram að siðareglurnar voru samdar af hópi starfsmanna Ríkisútvarpsins og kom menntamálaráðherra ekki að þeim. Áður kom fram í fréttinni að Björg Eva hefði lagst gegn þjónustusamningnum á stjórnarfundi. Svo nákvæmni sé gætt er rétt að geta þess að hún sat hjá þegar greidd voru atkvæði um samninginn en gagnrýndi samninginn í bókun sem hún lagði fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

RÚV

Útvarpsstjóri mótmælti mögulegum 388 milljóna niðurskurði hjá RÚV
FréttirRÚV

Út­varps­stjóri mót­mælti mögu­leg­um 388 millj­óna nið­ur­skurði hjá RÚV

Stefán Ei­ríks­son út­varps­stjóri brást illa við mögu­leg­um nið­ur­skurði hjá Rík­is­út­varp­inu á fjár­lög­um fyr­ir næsta ár. Þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálm­ur Árna­son, vildi taka fé af RÚV og styrkja N4 og var þetta rætt inn­an fjár­laga­nefnd­ar. Stefán vill ekki ræða sam­töl sín við Lilju Al­freðs­dótt­ur ráð­herra en seg­ist standa vörð um RÚV á hverj­um degi.

Mest lesið

Lifum á tímum mikilla upplýsinga en aldrei verið óupplýstari
5
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Lif­um á tím­um mik­illa upp­lýs­inga en aldrei ver­ið óupp­lýst­ari

Geir Gunn­ar Markús­son nær­ing­ar­fræð­ing­ur seg­ir að auk­in tíðni lífs­stíls­sjúk­dóma kalli á heil­næm­ara fæði, meiri hreyf­ingu, næg­an svefn og streitu­minni lífs­stíl. Hann tel­ur að fæða okk­ar í dag sé að mörgu leyti verri en fyr­ir um 30 ár­um og að við höf­um flækt mataræð­ið. Þrátt fyr­ir mik­ið magn upp­lýs­inga þá gæti mik­ill­ar upp­lýs­inga­óreiðu þeg­ar kem­ur að nær­ingu. Geir Gunn­ar vill að fólk borði morg­un­mat til að stuðla að jafn­ari blóð­sykri og orku út dag­inn en morg­un­mat­ur­inn er á veru­legu und­an­haldi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu