Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela

Eftir að suð­ur­a­fríski dóm­ar­inn Navi Pillay hlaut frið­ar­verð­launin sagði for­maður norsku nefnd­ar­innar að alþjóð­legir dóm­stólar ættu að skera úr um málið. Pillay fór fyrir rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að þjóð­ar­morð hefði átt sér stað á Gaza.

Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela
For­mað­ur­inn Jorgen Watne Frydnes er for­maður norsku nóbels­nefnd­ar­innar. Mynd: Jonathan Mazin / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0)

Nóbels­nefndin sem útnefnir frið­ar­verð­launa­hafa seg­ist ekki taka afstöðu til þess hvort Ísrael hafi framið þjóð­ar­morð á Gaza. Yfir­lýs­ingin kom eftir að nefndin heiðr­aði suð­ur­a­fríska dóm­ar­ann Navi Pillay, sem fór fyrir rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna sem taldi ásak­an­irnar á rökum reistar. 

„Þetta er skýrsla hennar, skýrsla nefnd­ar­innar, og auð­vitað berum við mikið traust til fag­mennsku hennar og heil­inda. En þetta er starf rann­sókn­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ sagði Jorgen Watne Frydnes, for­maður norsku Nóbels­nefnd­ar­innar, við AFP þegar hann var beð­inn um að tjá sig.

Hann sagði að það væri alþjóð­legra dóm­stóla að skera úr um málið og lagði áherslu á að Nóbels­nefndin „er ekki dóm­stóll­inn“.

Pillay fór fyrir óháðri alþjóð­legri rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um hernumdu palest­ínsku svæðin. Nefndin talar ekki í nafni Sam­ein­uðu þjóð­anna og komst í fyrra að þeirri nið­ur­stöðu að þjóð­ar­morð ætti sér stað …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár