Hæstiréttur: Adolf ekki lagður í einelti

Hæsti­réttur sýkn­aði RÚV af kröfu Adolfs um bætur vegna ein­eltis og ólög­mætrar upp­sagnar. Áður hafði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sak­fellt RÚV og dæmt til að greiða Adolfi 2,2 millj­ónir króna í bætur.

Hæstiréttur: Adolf ekki lagður í einelti
Adolf Ingi Erlings­son. Starfaði sem íþrótta­f­rétta­maður á RÚV þangað til að honum var sagt upp í nóv­em­ber 2013. Hæsti­réttur sýkn­aði RÚV af skaða- og miska­bótum kröfum fyrr í dag. Mynd: Radio Iceland

Hæsti­réttur sýkn­aði RÚV í dag í skaða­bóta­máli Adolfs Inga Erlings­sonar, fyrr­ver­andi íþrótta­f­réttam­ans RÚV, vegna ólög­mætrar upp­sagnar og ein­eltis á vinnu­stað. Hér­aðs­dómur hafði áður dæmt RÚV til að greiða Adolf Inga 2,2 millj­ónir króna í skaða­bætur.

Adolf fór fram á rúmar 10 millj­ónir króna í bætur með máli sem höfðað var í febr­úar 2016. Hann hafði starfað fyrir RÚV frá árinu 1991 þangað til að honum var sagt upp störfum þann 27. nóv­em­ber 2013.  Í kjöl­far Evr­ópu­móts­ins í hand­knatt­leik 2010 til­kynnti Kristín Hálf­dán­ar­dóttir, íþrótta­stjóri RÚV, að breyt­ingar yrðu á verk­efnum Adolfs. Með þeim var hann að miklu leyti tek­inn úr reglu­legum verk­efnum í sjón­varpi, svo sem dag­skrár­gerð og lýs­ingu á kapp­leikjum en þess í stað­inn var honum falið að skrifa fréttir á vef­síðu RÚV. Þá var Adolf færður frá öðrum íþrótta­f­rétta­mönnum á starfs­stöð vef­frétta­manna. Kristín var ráðin í starf íþrótta­stjóra eftir stuttan feril í íþrótta­f­rétta­deild­inni en hún hafði áður starfað í bók­halds­deild RÚV.

Taldi sig niðurlægðan með breytingunum

Í kjöl­far þess kvart­aði Adolf undan ein­elti en honum fannst að með breyt­ing­unum væri verið að setja hann til hliðar og nið­ur­lægja með því að úti­loka hann frá verkum sem hann hafði sinnt lengi. Fundaði mannauðs­stjóri RÚV með Adolfi og Kristínu, fyrst hvoru í sínu lagi en síðan saman.

Nið­ur­staða fund­ar­ins var að þau þyrftu bæði að leggja sitt af mörkum til að bæta sam­starfið og sam­skiptin. Þá taldi mannauðs­stjór­inn að Adolf gætti bætt úr sam­starfs- og sam­skipta­örð­ug­leikum milli hans og starfs­manna, stund­vísi og vinnu­brögð við vinnslu og lýs­ingu íþrótta­f­rétta.

Í kjöl­farið var gert munn­legt sam­komu­lag við Adolf um að hann myndi halda vakta­á­lags­greiðslum þrátt fyrir að hið nýja starfs­fyr­ir­komu­lag hans inni­héldi ekki slíkar vaktir. Adolf hélt því fram að þær greiðslur hefðu fallið niður af óút­skýrðum ástæðum en Kristín taldi hið munn­lega sam­komu­lag aðeins hafa átt að ná til verk­efna í sjón­varpi á meðan hann sinnti þeirri starfs­skyldu.

Þá sagði Adolf sig hafa þurft að bera harm sinn í hljóði vegna ein­eltis Krist­ínar því hann ótt­að­ist um starfs­ör­yggi sitt. Vanlíðan hans hefði fljót­lega farið að bitna á fjöl­skyldu­lífi hans og hann hefði þurft að leita sér fag­að­stoðar af því til­efni.

Ósamræmi í vitnisburði starfsmanna RÚV

Í nóv­em­ber 2013 voru kynntar aðhalds­að­gerðir sem grípa þyrfti til í því skyni að bæta rekstur RÚV. Nokkrum dögum síðar var Adolf einn margra sem sagt var upp störfum.

Fyrir hér­aðs­dómi sagði Kristín að hún gæti ekki lagt mat á með hvaða hætti yrði ákveðið hverjum skyldi sagt upp í hóp­upp­sögn­inni þar sem hún hefði ekki komið að ákvörð­un­inni um að Adolf Ingi væri meðal þeirra sem sagt var upp með neinum hætti. Óðinn Jónsson, þáver­andi frétta­stjóri RÚV, sagði hins vegar að byggt hefði verið á mati næstu yfir­manna og í til­viki Adolfs hefði það byggst á mati Krist­ínar og Einars Örns Jóns­sonar, vara­í­þrótta­stjóra RÚV.

Adolf byggði skaða­bóta­kröfu sína á því að RÚV bæri fébóta­á­byrgð vegna sak­næmrar hátt­semi og aðgerð­ar­leysi starfs­manna vegna ein­eltis, ítrek­aðra mein­gerða og ólög­mætrar upp­sagnar.

Niðurstöðu héraðsdóms snúið við

Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að hvorki til­högun lýs­inga íþrótta­kapp­leikja né breyt­ingar á starfstil­högun Adolfs gætu hafa falið í sér ein­elti. Þá taldi dóm­ur­inn að þó ekki hefði verið staðið við sam­komu­lag um óbreytt launa­kjör Adolfs gæti það heldur ekki falið í sér ein­elti, enda hefðu mál­efna­leg sjón­ar­mið getað búið þeim að baki.

Hér­aðs­dómur taldi að aðgerð­ar­leysi RÚV um að kanna hvort fótur væri fyrir ávirð­ingum Krist­ínar í hans garð hafi verið til þess fallin að gera lítið úr honum og teld­ist til ein­eltis. Hæsti­réttur hafn­aði þessi og taldi að ágallar á með­ferð kvört­unar Adolfs um ein­elti gæti ekki eitt og sér falið í sér ein­elti.

Hér­aðs­dómur hafði einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fram­ganga starfs­manna RÚV gagn­vart Adolf, sem starfað hafði hjá RÚV í rúma tvo ára­tugi, hefði falið í sér ólög­mæta mein­gerð gegn æru og per­sónu hans og ætti hann því rétt á miska­bótum. Hæsti­réttur hafn­aði þessu taldi að þeir ágallar sem hefðu verið á ein­elt­is­máli Adolfs yrðu ekki taldir svo alvar­legir eða þess eðlis að miska­bóta­á­byrgð yrði felld á RÚV vegna þeirra.

Loks var nið­ur­staða dóms­ins sú að mál­efna­legar ástæður hefðu legið að baki upp­sögn Adolfs. Óumdeilt væri að honum hefði verið sagt upp vegna aðhalds­að­gerða í rekstri RÚV og hefði upp­sögnin verið liður í hóp­upp­sögn af því til­efni. Aftur snéri Hæsti­réttur við nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms en í dómi hér­aðs­dóms var talið að upp­sögnin væri ólög­mæt vegna þess að mál­efna­legar ástæður hefðu ekki legið að baki upp­sögn Adolfs og ætti hann því rétt til skaða­bóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

RÚV

FréttirRÚV

Útvarps­stjóri mót­mælti mögu­legum 388 millj­óna nið­ur­skurði hjá RÚV

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri brást illa við mögu­legum nið­ur­skurði hjá Rík­is­út­varp­inu á fjár­lögum fyrir næsta ár. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálmur Árnason, vildi taka fé af RÚV og styrkja N4 og var þetta rætt innan fjár­laga­nefndar. Stefán vill ekki ræða sam­töl sín við Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra en seg­ist standa vörð um RÚV á hverjum degi.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár