Mörður má ekki mæta á stjórnarfund RÚV

Mörður Árnason var beð­inn að mæta ekki á stjórn­ar­fund vegna meints van­hæfis. Hefur gagn­rýnt ummæli stjórn­ar­for­manns og for­manns fjár­laga­nefndar opin­ber­lega.

Mörður Árnason, stjórn­ar­maður hjá Rík­is­út­varp­inu, hefur verið beð­inn um mæta ekki á stjórn­ar­fund RÚV núna síð­degis vegna meints van­hæfis. Guð­laugur G. Sverr­is­son, stjórn­ar­for­maður RÚV, sendi Merði erindi þess efnis í dag og vís­aði í athuga­semd frá Fjöl­miðla­nefnd. Mörður er vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar en sam­kvæmt lögum eru kjörnir full­trúar ekki kjör­gengir í stjórn Rík­is­út­varps­ins. Mörður segir tíma­setn­ing­una mjög sér­kenni­lega, en hann hefur setið í stjórn Rík­is­út­varps­ins síðan í jan­úar. „Ég hef ekki ennþá svarað þessu erindi stjórn­ar­for­manns og er að kanna hvernig þetta mál stendur,“ segir Mörður í sam­tali við Stundina. „Ég hef ekki þann skiln­ing að ég sé kjör­inn full­trúi sam­kvæmt þessum lögum. Ég hef hins vegar setið á þingi síðan ég var kosin í þessa stjórn, í viku í febr­úar.“

Mörður seg­ist hafa fullan skiln­ing á því að fólk vilji fara var­lega í þessum efnum enda sé þetta ákvæði í lögum af ástæðu. „Það er hins vegar sér­kenni­legt að Fjöl­miðla­nefnd skuli ekki hafa upp­götvað þetta, hvorki í jan­úar þegar ég var kosin né í febr­úar þegar ég sat á þingi, heldur núna í 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skýrsla um rekstur RÚV

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár