Almannatengslafyrirtæki falið að vekja athygli á RÚV-skýrslu

KOM fékk verk­efnið og mennta­mála­ráðu­neytið borgar. Stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins var aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar. Friðjón Frið­jóns­son, starfs­mað­ur­inn sem sendi út frétta­til­kynn­ing­una, var aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar.

Almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM var falið að boða fjöl­miðla á kynn­ing­ar­fund um skýrslu nefndar Eyþórs Arnalds um rekstur Rík­is­út­varps­ins í síð­ustu viku.

Samkvæmt árs­reikn­ingi KOM fyrir árið 2014 er Magnús Ragn­ars­son, sem hætti sem aðstoð­ar­maður Illuga í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sama ár, stjórn­ar­maður í fyr­ir­tæk­inu. Þá er hann stjórn­ar­for­maður þess sam­kvæmt gild­andi skrán­ingu í hluta­fé­lags­skrá. 

Friðjón R. Frið­jóns­son, almanna­teng­ill og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum sem gegndi um tíma starfi aðstoð­ar­manns Bjarna Bene­dikts­sonar á síð­asta kjör­tíma­bili, sendi út frétta­til­kynn­ing­una um kynn­ing­ar­fund­inn fyrir hönd nefnd­ar­innar.

Eyþór Arnalds segir í sam­tali við Stundina að nefnd­inni hafi sjálfri verið falið að standa að kynn­ingu á efni skýrsl­unnar. Fyr­ir­tækið KOM hafi verið fengið til verks­ins, enda sé það með aðsetur í sömu bygg­ingu og Eyþór starfar, og mennta­mála­ráðu­neytið greiði fyrir þjón­ust­una. 

Kynningin vandlega skipulögð

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, gerði kynn­ingu RÚV-skýrsl­unnar að umtals­efni í pistli um helg­ina. „Á fimmtu­dag var kynnt skýrsla um RÚV. Í aðdrag­and­anum var upp­lýs­ingum úr henni lekið í valda fjöl­miðla og kynn­ing hennar vand­lega skipu­lögð af almanna­tengsla­full­trúa sem vinnur mikið fyrir helstu leik­endur í Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrif­aði hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skýrsla um rekstur RÚV

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár