Segist ekki hafa „haft mikið aðgengi að nefndinni og drögum skýrslunnar”

Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365 miðla, hafnar full­yrð­ingum um að hann hafi verið „því sem næst full­gildur með­limur“ Eyþórs­nefnd­ar­innar í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Fullyrt er á vef Kvenna­blaðs­ins að sam­kvæmt heim­ildum innan úr stjórn­kerf­inu hafi Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365 miðla, komið umtals­vert að vinnu nefndar Eyþórs Arnalds, sem nýverið skil­aði skýrslu um fjár­hag Rík­is­út­varps­ins. 

„Ég átti einn fund með Svan­birni Thorodd­sen nefnd­ar­manni og einn síma­fund með nefnd­inni,“ skrifar Sævar í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. „Jafn­framt óskaði nefndin eftir stað­fest­ingu á að rétt væri farið með gögn sem 365 hafði útvegað eftir fyr­ir­spurnir nefnd­ar­innar. Heim­ildir Kvenna­blaðs­ins eru skv. fram­an­sögðu rangar.“ 

Í skýrslu Eyþórs­nefnd­ar­innar er rekstur RÚV bor­inn saman við rekstur 365 miðla. Stundin hefur heim­ildir fyrir því að tals­vert hafi verið um óform­leg sam­skipti milli Sævars Freys og nefnd­ar­manna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skýrsla um rekstur RÚV

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár