Menntamálaráðherra sakaður um ritskoðunartilburði – Björg segir sig úr stjórn RÚV

Siða­reglur sem banna starfs­mönnum RÚV að tjá sig um „umdeild mál“ á sam­fé­lags­miðlum voru ekki bornar undir stjórn RÚV.

Menntamálaráðherra sakaður um ritskoðunartilburði – Björg segir sig úr stjórn RÚV

Björg Eva Erlends­dóttir, stjórn­ar­maður í RÚV og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður, full­yrðir að Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi mis­notað nýgerðan þjón­ustu­samn­ing við Rík­is­út­varpið til að rétt­læta eigin rit­skoð­un­ar­til­burði. Björg lagði fram bókun á stjórn­ar­fundi þar sem samn­ing­ur­inn er gagn­rýndur harð­lega en sat hjá þegar greidd voru atkvæði um hann. Hún hyggst hætta í stjórn­inni á aðal­fundi síðar mán­uð­inum. 

Í nýjum siða­reglum starfs­manna Rík­is­út­varps­ins sem gengið hafa í gildi er meðal ann­ars kveðið á um að „starfs­fólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð“ megi ekki taka opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni eða umdeild mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, þar á meðal á sam­fé­lags­miðlum. 

„Mennta­mála­ráð­herra hefur mis­notað nýgerðan þjón­ustu­samn­ing til að rétt­læta eigin rit­skoð­un­ar­til­burði. Það er háal­var­legt,“ skrifar Björg Eva á Facebook-síðu sinni. „Grimm rit­skoðun rík­is­stjórn­ar­full­trúa gagn­vart RÚV frekar en efni þjón­ustu­samn­ings­ins sjálfs, varð til þess að ég sam­þykkti hann ekki. Siða­regl­urnar voru ekki bornar undir stjórn.“ 

Í bókun sem hún lagði nýverið fram á stjórn­ar­fundi full­yrðir hún að um nið­ur­skurð­ar­samn­ing sé að ræða „þar sem stjórn­völd ákveða að draga úr almennri þjón­ustu fjöl­mið­ils­ins á flestum sviðum og veikja meðal ann­ars frétta­þjón­ustu, eins og síst skyldi“. Þá segir Björg að með eyrna­merk­ingum á fjár­fram­lögum til RÚV hafi  stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Alþingi tekið sér dag­skrár­vald og hlut­ast til um rit­stjórn. Auk þess hafi stjórn­völd gert sitt ýtrasta til að ala á tor­tryggni í garð RÚV t.d. með ákvæðum í samn­ingum sem kveða á um end­ur­skoðun frétta­reglna og hlut­leys­iskrafna. 

Loks segir í bókun Bjargar: „Eftir víð­frægar árásir fjöl­margra stjórn­ar­liða úr báðum rík­is­stjórn­ar­flokk­unum á Rík­is­út­varpið er algjör­lega skýrt að ekki vakir fyrir stjórn­völdum að búa Rík­is­út­varp­inu líf­væn­legt umhverfi, hvorki með þjón­ustu­samn­ingi né öðrum ramma­skil­yrðum fjöl­mið­ils­ins. Í mínum augum er þjón­ustu­samn­ing­ur­inn nauð­ar­samn­ingur þar sem stjórn­endum RÚV var stillt upp við vegg, eftir fjöl­mörg svikin fyr­ir­heit og þeir látnir skera niður eina ferð­ina enn, án nokk­urrar trygg­ingar fyrir því að þar með væri fjöl­mið­ill­inn kom­inn á lygnan sjó. Ekki þjónar neinum til­gangi að axla þá ábyrgð með þeim, eða taka mark á samn­ingnum stjórn­ar­meiri­hlut­ans yfir­leitt. Því sit ég hjá og kveð í leið­inni stjórn og stjórn­endur Rík­is­út­varps­ins, með von um betri tíð og bættan hag Rík­is­út­varps­ins í fram­tíð­inni.“

Uppfært 15. apríl, kl. 14:50
Í til­kynn­ingu frá Guðlaugi G. Sverris­syni, stjórn­ar­for­manni RÚV kemur fram að Björg Eva hafi sagt frá því fyrr á árinu að hún ætl­aði að hætta í stjórn á næsta aðal­fundi Rík­is­út­varps­ins vegna þess að hún hygð­ist taka við starfi fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs. „Aðrar skýr­ingar á ósk hennar að hætta í stjórn Rík­is­út­varps­ins ohf. eru því nýjar fréttir,“ skrifar Guð­laugur. Rétt er að taka fram að siða­regl­urnar voru samdar af hópi starfs­manna Rík­is­út­varps­ins og kom mennta­mála­ráð­herra ekki að þeim. Áður kom fram í frétt­inni að Björg Eva hefði lagst gegn þjón­ustu­samn­ingnum á stjórn­ar­fundi. Svo nákvæmni sé gætt er rétt að geta þess að hún sat hjá þegar greidd voru atkvæði um samn­ing­inn en gagn­rýndi samn­ing­inn í bókun sem hún lagði fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

RÚV

FréttirRÚV

Útvarps­stjóri mót­mælti mögu­legum 388 millj­óna nið­ur­skurði hjá RÚV

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri brást illa við mögu­legum nið­ur­skurði hjá Rík­is­út­varp­inu á fjár­lögum fyrir næsta ár. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálmur Árnason, vildi taka fé af RÚV og styrkja N4 og var þetta rætt innan fjár­laga­nefndar. Stefán vill ekki ræða sam­töl sín við Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra en seg­ist standa vörð um RÚV á hverjum degi.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár