Starfandi stjórnarformaður kallaði RÚV „ofsalega hrokafullt fyrirtæki“ og fagnar skýrslu Eyþórsnefndar

Guð­laugur G. Sverr­is­son stýrir stjórn­ar­fundi RÚV á fimmtu­dag­inn þar sem tekin verður afstaða til skýrslu Eyþórs­nefndar og athuga­semda RÚV. Hann hefur gagn­rýnt harð­lega umfjöllun RÚV um Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Guð­laugur G. Sverr­is­son er nú starf­andi for­maður stjórnar Rík­is­út­varps­ins og tekur við af Ingva Hrafni Ósk­ars­syni sem sagði sig úr stjórn­inni í gær. Guð­laugur gegnir for­manns­hlut­verk­inu þar til nýr for­maður verður skip­aður og mun stýra fundi stjórn­ar­innar sem fram fer á fimmtu­dag­inn. 

Þá verður rætt um skýrsl­una sem nefnd Eyþórs Arnalds vann um rekstur Rík­is­út­varps­ins. Rík­is­út­varpið gerði fjöl­margar athuga­semdir við skýrsl­una sem ekki voru teknar til greina. Líklegt er, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að á fund­inum verði ákveðið með hvaða hætti stjórnin bregð­ist við skýrsl­unni, svo sem hvort tekið verði undir þær athuga­semdir sem gerðar voru við hana. 

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag seg­ist Guð­laugur Sverr­is­son fagna vinnu Eyþórs­nefnd­ar­innar. „Sem stjórn­ar­maður er ég ánægður með skýrsl­una og tel að hún aðstoði við rekst­ur­inn,“ segir hann og bætir við: „Þó að ég sé ekki sáttur við allt það sem þar kemur fram þá er hún mjög gott gagn 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skýrsla um rekstur RÚV

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár