Kjörin formaður bæjarstjórnar þvert á fyrirheit um að draga úr störfum

Theódóra S. Þor­steins­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, var í síð­ustu viku kjörin for­maður bæj­ar­stjórnar Kópavogs. Fyrr á árinu sagð­ist hún myndu draga úr störfum sínum hjá bæj­ar­fé­lag­inu. Laun Theódóru nema rúmum 2,2 millj­ónum króna sem kjör­inn full­trúi á Alþingi og í sveit­ar­stjórn.

Kjörin formaður bæjarstjórnar þvert á fyrirheit um að draga úr störfum
Theódóra S. Þor­steins­dóttir Gegnir þing­mennsku fyrir Bjarta fram­tíð sam­hliða því að vera for­maður bæj­ar­stjórnar Kópavogs. Mynd: Pressphotos / Geiri

Theódóra S. Þor­steins­dóttir, þing­maður Bjartrar Fram­tíðar, var í síð­ustu viku end­ur­kjörin for­maður bæj­ar­ráðs í Kópavogi. Þrátt fyrir að þing­mennska sé álitin vera fullt starf ákvað Theódóra að gegna bæði þing­mennsku og sitja í bæj­ar­stjórn Kópavogs á sama tíma. Þá var hún kjörin vara­maður í öld­unga­ráði Kópa­vogs­bæjar.

Þegar Stundin leit­aði svara hjá Theódóru í jan­úar um hvort hún teldi þetta rétt­læt­an­legt, út frá stöðu hennar og skyldum sem þing­maður, að sinna öðrum stöðum sam­hliða, sagð­ist hún myndu draga úr skyldum sínum hjá Kópa­vogsbæ.

„Ég er að fóta mig í þessu og sjá hvernig þetta gengur upp.  Ég hugsa að ég dragi svo sem eitt­hvað úr,“ sagði Theódóra.

Þá sagði Theódóra að hún myndi draga sig úr nefnd­ar­störfum „Ég mun klár­lega draga mig úr nefnd­ar­störfum og segja mig úr stjórnum. Við erum að fara yfir þau mál hér í Kópavogi. Ég vil samt sem áður klára kjör­tíma­bilið sem full­trúi í bæj­ar­stjórn Kópavogs, enda var ég kjörin til fjög­urra ára,“ sagði Theodóra við DV í jan­úar.

Theódóra hefur ekki dregið úr starf­skyldum sínum á sveit­ar­stjórn­ar­stigi umfram það að gefa ekki kost á sér á ný í stjórn Isavia á aðal­fundi félags­ins í lok mars. Hún var end­ur­kjörin for­maður bæj­ar­stjórnar í síð­ustu viku og er enn for­maður skipu­lags­ráðs bæj­ar­ins. Seta í bæj­ar­stjórn Kópa­vogs­bæjar er metin sem 33 pró­sent staða, for­mennska í bæj­ar­ráði er 45 pró­sent staða og svo eru greiðslur fyrir að sitja í nefndum. Þá er 15 pró­sent álag á þing­far­ar­kaup fyrir for­menn þing­flokka. Þannig er Theodóra í hátt í 200 pró­sent stöðu fyrir hið opin­bera á launum frá almenn­ingi.

Jafnréttismál

Theódóra sagði það vera jafn­rétt­is­mál að hún fengi að gegna starfi bæj­ar­full­trúa sam­hliða þing­mennsku. „Mér fannst það sama eiga að gilda um um konur,“ sagði Theódóra og vís­aði þannig til fyrri for­dæma þess að kjörnir full­trúar hafi starfað bæði á lands­vísu og á sveit­ar­stjórn­ar­stigi.

Hún sagði að þing­menn­irnir Gunnar Birg­is­son, Ármann Kr. Ólafsson og Birkir Jón Jónsson hefðu einnig setið í bæj­ar­stjórn sam­hliða þing­mennsku. „Ég kynnti mér þetta sér­stak­lega fyrir kosn­ingar og fór yfir sög­una hér í Kópavogi. Það eru fjöl­margir bæj­ar­full­trúar hér í gegnum tíð­ina sem hafa verið þing­menn og bæj­ar­full­trúar. Og jafn­vel for­menn bæj­ar­ráðs. Þetta voru, held ég, allt karl­menn. Mér fannst það sama eiga að gilda um konur. Mig langar til þess að vera hér áfram bæj­ar­full­trúi. Það er bara eins og allir aðrir. Mér finnst það bara út frá jafn­ræði. Þegar ein­hver getur verið læknir eða skóla­stjóri eða hvað sem er, í 100 pró­sent starfi, finnst mér það alveg eiga við það að vera þing­maður. Það er auð­vitað þannig að ráð­herrar eru í 100 pró­sent starfi sem ráð­herrar og líka þing­menn. Og ég tal­aði alveg skýrt um þetta fyrir kosn­ingar. Ég var marg­spurð að þessu,“ sagði hún í sam­tali við Stundina.

Tekjur Theódóru hækk­uðu um 186 þús­und krónur á mán­uði með ákvörðun bæj­ar­stjórnar Kópavogs um 26 pró­senta launa­hækkun bæj­ar­full­trúa í febr­úar. Eftir launa­hækk­un­ina námu tekjur Theódóru þannig 2,4 millj­ónum króna og voru til jafns við tekjur Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands. Í lok mars lét Theódóra hins vegar af störfum sem stjórn­ar­maður Isavia fyrir hönd Kópa­vogs­bæjar og lækk­uðu laun hennar við það um 160 þús­und krónur. 

Laun þingmanna og bæjarfulltrúa hækkað mikið

Laun þing­manna voru hækkuð langt umfram hækkun almennrar launa­vísi­tölu á kjör­dag, 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hækkunin hefur verið rök­studd með því að þing­menn hafi orðið eftir á í kjara­þróun. Hins vegar sýnir sam­an­burður þing­far­ar­kaups við þróun launa­vísi­tölu að þing­menn hafa hækkað 28 pró­sentu­stigum meira í launum en almenn­ingur síð­ustu tíu árin. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, ákvað að gefa launa­hækk­un­ina til góð­gerð­ar­mála og

skor­aði á þing­menn að „vinda ofan af“ hækk­un­inni. „Ég bað ekki um þessa kaup­hækkun. Ég vissi ekki af þess­ari kaup­hækkun. Ég þarf ekki þessa kaup­hækkun. Margir þing­menn hafa lýst andúð sinni á þess­ari ákvörðun kjara­ráðs. Ég vænti þess að þingið vindi þá ofan af þess­ari ákvörðun,“ sagði hann.

Þingmenn urðu ekki við þeirri áskorun, en for­sætis­nefnd Alþingis ákvað að end­ur­skoða veru­legar end­ur­greiðslur á kostn­aði til þing­manna þess í stað sem varð til þess að laun þing­manna lækk­uðu um rúmar hund­rað þús­und krónur á mán­uði.

Á fundi bæj­ar­stjórnar Kópavogs í síð­ustu viku var þannig ljóst að Theódóra hugð­ist ekki draga úr starf­skyldum sínum í Kópavogi umfram það að hætta í stjórn Isavia og munu laun hennar því nema rúmum 2,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár