Bjarni firrir sig ábyrgð á ákvörðun sinni

Bjarni Bene­dikts­son gegndi starfi dóms­mála­ráð­herra þegar Robert Downey fékk upp­reist æru og ber ábyrgð sam­kvæmt stjórn­ar­skrá.

Bjarni firrir sig ábyrgð á ákvörðun sinni
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Segist enga aðkomu hafa átt að máli Roberts Downey. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra neitar því að hafa átt aðkomu að því þegar dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður fékk upp­reist æru. Hann lagði engu að síður sjálfur fram til­lög­una sem starf­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og ber ábyrgð á mál­inu sam­kvæmt 14. grein stjórn­ar­skár­innar, þar sem segir: „Ráð­herrar bera ábyrgð á stjórn­ar­fram­kvæmdum öllum“.

„Nei, ég tók við nið­ur­stöðu úr ráðu­neyt­inu sem hafði fengið sína hefð­bundnu með­ferð,“ sagði Bjarni í við­tali við RÚV þegar hann var spurður hvort hann hefði átt aðkomu að mál­inu. Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreið­ars­son, fékk upp­reist æru í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Bjarni gegndi stöðu dóms­mála­ráð­herra á meðan Ólöf Nordal var í veik­inda­leyfi og þegar Robert Downey fékk upp­reist æru. Mála­flokk­ur­inn heyrir undir dóms­mála­ráðu­neytið og fer ráð­herr­ann með ákvörð­un­ar­vald yfir umsóknum um upp­reist æru. Þá bera ráð­herrar, en ekki starfs­menn ráðu­neyt­is­ins, ábyrgð sam­kvæmt 14. grein stjórn­ar­skár­innar á öllum stjórn­ar­fram­kvæmdum ráðu­neyt­is­ins.

Þannig var aðkoma Bjarna, sem starf­andi dóms­mála­ráð­herra, lyk­il­þáttur í veit­ingu upp­reistar æru til Roberts. Bjarni kvitt­aði upp á veit­ingu upp­reistar æru og ber laga­lega ábyrgð á stjórn­ar­at­höfn­inni.

Forseti Íslands vís­aði til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í rök­stuðn­ingi fyrir því að hann veitti upp­reist æru. Þá hafði hann verið gagn­rýndur af þol­anda í mál­inu, Nínu Rún Bergs­dóttir, sem sagði for­seta Íslands hafa brugð­ist sér og vilja rök for­set­ans fyrir því að veita mann­inum upp­reist æru. „Ákvörð­unin er tekin í ráðu­neyt­inu. Þetta er allt form­legs eðlis - arfur frá lið­inni tíð,“ sagði Guðni, sem taldi sig ekki geta hafn­aði því að veita upp­reist æru, þar sem ráð­herrar fram­kvæmi vald for­seta sam­kvæmt stjórn­ar­skrá.

Því liggur fyrir að aðrir innan ráðu­neyt­is­ins en ráð­herra sjálfur tóku ákvörð­un­ina, sam­kvæmt orðum Bjarna, en sam­kvæmt stjórn­ar­skrá ber ráð­herra ábyrgð­ina. 

Robert Downey,dæmdur kyn­ferð­is­af­brota­maður, hlaut lög­manns­rétt­indi á ný í síð­ustu viku.

Fyrir helgi varð ljóst að Róbert Árni, dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður, myndi end­ur­heimta lög­manns­rétt­indi sín í krafti „óflekk­aðs mann­orðs“, eftir að Hæsti­réttur féllst á þá kröfu hans. Forsenda þess var að honum var veitt upp­reist æra.

Samkvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur árið 2007 nýtti Róbert sér yfir­burði sína til að tæla fjórar ungar stúlkur til sín. Þrjár þeirra voru fimmtán ára og ein fjórtán ára. Hann beitti pen­inga­greiðslum og blekk­ingum, þótt­ist meðal ann­ars vera 17 ára piltur að nafni Rikki.

Í dómi hér­aðs­dóms, sem má lesa hér, koma fram ein­beittar aðferðir manns­ins til að tæla ungar stúlkur. Þá kemur fram að hann hafði skrifað 335 kven­mansnöfn hjá sér, að því er virð­ist í þeim til­gangi að reyna að tæla stúlk­urnar. „Þá hefur verið rituð lög­reglu­skýrsla vegna skoð­unar á minn­is­bók sem var hald­lögð á heim­ili ákærða undir núm­er­inu G-06. Fram kemur að á bak­hlið for­síðu­blaðs sé m.a. ritað ,,bestur2000@hotmail.com”. Í bók­inni séu 44 blöð. Á 32 fyrstu síð­unum séu rituð 335 kven­mannsnöfn með ýmist eða bæði síma­númer og net­póst­föng. Athygli veki að við umrædd kvennöfn sé víða að sjá skráðar tölur sem ætla megi að vísi á aldur stúlkn­anna.“

Róbert Árni kallar sig Robert Downey í dag. Hann hefur búið erlendis und­an­farin ár. Þaðan hefur hann varað sér­stak­lega við straumi inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda til Íslands. „Halda stjórn­mála­menn og fylgj­endur þess­arar hæl­is­leit­enda­stefnu að þess­ari flóð­bylgju linni, þegar búið er að koma þessum hópi hæl­is­leit­enda fyrir í löndum Evrópu?“ spurði hann á Facebook, eftir að hópur Íslend­inga tók sig saman og bauðst til að hýsa hæl­is­leit­endur frá Sýrlandi. „Þvert á móti verður það hvatn­ing til ann­arra íbúa í þessum löndum hæl­is­leit­anda að komst inn í vel­ferð­ar­kerfi vest­ur­landa á kostnað skatt­borgar­anna. Flóð­bylgj­urnar koma til með að verða stærri, tíð­ari og skað­væn­legri þegar fram í sækir, þar til tekið verður á þessum málum af fullri alvöru og á raun­hæfan hátt og fólk­inu gert kleift að lifa á sínum heima­slóðum á mann­sæm­andi hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár