„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ sat fund með namibísku mútuþegunum

Samherji segir að fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hafi farið til Namibíu og gert úttekt á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Um er að ræða Jón Óttar Ólafsson, sem var rek­inn frá Sér­stökum sak­sókn­ara fyrir brot í starfi. Sam­herj­a­skjölin sýna að hann var fullur þátt­tak­andi í starf­sem­inni, fund­aði með Þor­steini Má Bald­vins­syni og namibísku mútu­þeg­unum og fékk afrit af póstum um milli­færslur til skatta­skjóls.

„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ sat fund með namibísku mútuþegunum
Jón Óttar Ólafsson og Bern­hardt Esau Maðurinn sem Samherji segir hafa rann­sakað málin árið 2016 hitti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, sem Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari segir að hafi þegið mútur frá Samherja. Jón Óttar er lengst til vinstri á mynd­inni, en Atli Þór Ragn­ars­son og Jóhannes til hægri.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður fyrr­ver­andi Jón Óttar Ólafsson sat fundi með namibískum mútu­þegum Samherja og fékk afrit af tölvu­póstum þar sem rætt var um greiðslur í skatta­skjól. For­svars­menn Samherja segja hann hafa farið til Namibíu árið 2016 til að taka starf­sem­ina í gegn. Hann var þvert á móti í innsta hring Namib­íu­veið­anna og starf­aði með Jóhann­esi Stef­áns­syni, sem síðar gerð­ist upp­ljóstr­ari, að verk­efnum þar sem kvóti hafði feng­ist frá namibískum yfir­völdum með mútu­greiðslum.

Í yfir­lýs­ingu áður en umfjöllun Stund­ar­innar, RÚV, Wikileaks og Al Jazeera fór í loftið héldu for­svars­menn Samherja því fram að fyr­ir­tækið hefði farið eftir öllum lögum og reglum í Namibíu. Var í því sam­hengi sér­stak­lega nefnt að Jón Óttar, sem áður starf­aði hjá sér­stökum sak­sókn­ara sem rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, hefði rann­sakað starf­sem­ina á vett­vangi.

„Það sem við teljum rétt að koma á fram­færi á þessum tíma­punkti er að þegar við urðum þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namibíu sendum við fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann hjá sér­stökum sak­sókn­ara til Namibíu,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni og er þar átt við Jón Óttar og Jóhannes. „Eftir nokk­urra mán­aða vinnu hans var nið­ur­staðan að segja umræddum starfs­manni upp störfum án tafar vegna óásætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­unar. Mikill tími hefur farið í að ná tökum á rekstr­inum en starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi hefur sam­hliða, beint og ásamt sam­starfs­mönnum sínum, kraf­ist hárra fjár­hæða frá Samherja.“

Sam­herj­a­skjölin, sem Stundin hefur undir höndum, sýna hins vegar glöggt að Jón Óttar var hátt settur starfs­maður við Namib­íu­út­gerð Samherja. Í maí árið 2016 snæddi hann til dæmis með Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, um borð í tog­ara Samherja, Heinaste.

Jón Óttar sat meðal ann­ars fund um starf­sem­ina með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, Baldvini syni hans, Aðal­steini Helga­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Kötlu Seafood, Örnu Bryndísi Baldvins McClure, yfir­lög­fræð­ingi Samherja, og Jóhann­esi. Fund­ur­inn var hald­inn 11. apríl 2016 og hann sóttu einnig namibísku þre­menn­ing­arnir James og Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala, sem allir hafa þegið mútur frá fyr­ir­tæk­inu til að greiða aðgang að fisk­veiði­kvóta. Samkvæmt fund­ar­gerð var rætt um starf­sem­ina í Namibíu, yfir­vof­andi leið­toga­kjör í SWAPO flokknum í Namibíu sem þeir eru allir með­limir í og vænt­an­legar þing­kosn­ingar í lok árs 2019. Einnig var talað um verk­efni í Angóla og Suður-Afríku.

Þre­menn­ing­arnir komu til Íslands á árs­há­tíð Samherja sem haldin var í Íþrótta­höll­inni á Akureyri tveimur dögum áður, þann 9. apríl, og greiddi Samherji fyrir þá flug og hótel í tengslum við kom­una á árs­há­tíð­ina.

Í skjali til und­ir­bún­ings fyrir fund­inn með þre­menn­ing­unum er fjallað um sýn þeirra á fram­tíð mála í Namibíu, en ekki skráð hvaða Íslend­ingar fengu það í sínar hendur.

„Þeir hafa lagt mikið í að koma okkur þangað sem við erum (breytt lögum og farið með það í gegnum þingið),“ segir í skjal­inu. „Þetta er að sjálf­sögðu póli­tískt. Það er margt búið að ger­ast á bak­við tjöldin. Við erum í dag með 3ja stærsta kvót­ann ekki af ástæðu­lausu [sic].“

„Það er margt búið að ger­ast á bak­við tjöldin. Við erum í dag með 3ja stærsta kvót­ann ekki af ástæðu­lausu“

Þá er lýst póli­tísku mik­il­vægi mann­anna, en James er stjórn­ar­for­maður rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor og Sacky var á þessum tíma rík­is­sak­sókn­ari, en síðar dóms­mála­ráð­herra Namibíu. „Þeir vilja vinna með okkur en tím­inn er á þrotum,“ segir enn­fremur. „Ef þeir fara óánægðir frá Íslandi þá er sam­starf­inu lokið og þá er betra að segja það strax.“

Eftir að Jóhannes hætti hjá fyr­ir­tæk­inu í júlí 2016 héldu mútu­greiðsl­urnar áfram. Síðustu milli­færsl­urnar sem heim­ildir eru fyrir eru frá því í byrjun þessa árs, frá 9. og 31. jan­úar 2019 en þá var Jóhannes búinn að setja sig í sam­band við Wikileaks út af Namib­íu­mál­inu með það fyrir augum að upp­lýsa um milli­færsl­urnar. 

Vann náið með uppljóstraranum

Úr fund­ar­gerðJón Óttar starf­aði með Jóhann­esi upp­ljóstr­ara að verk­efnum sem tengd voru mútu­greiðsl­unum.

Í fund­ar­gerð frá 28. júní 2016 kemur fram að Jón Óttar hafi aðstoðað Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara við ákveðna þætti sem varðar Angóla­verk­efnið svo­kall­aða. Verk­efnið snérist um mis­notkun á milli­ríkja­samn­ingum á milli tveggja Afr­íku­landa, Namibíu og Angóla, til að tryggja félagi í eigu Samherja kvóta í Namibíu sem ekki var talið verj­andi að yrði gef­inn út ein­hliða í Namibíu. Þá kemur einnig fram að hann hafi hjálpað við Fishcor verk­efnið, sem snéri að kvóta sem Samherji fékk frá rík­is­fyr­ir­tæk­inu Fishcor, sem James Hatuikulipi, einn af namibískum mútu­þegum Samherja, var stjórn­ar­for­maður hjá.

Í fund­ar­gerð­inni segir einnig að Jón Óttar sé „byrj­aður að bakka upp“ Jóhannes í vinnu við lobbí­isma. Þar eru nefndar leiðir til hags­muna­gæslu, meðal ann­ars að halda sam­bandi við þá sem skipta máli, bjóða ráð­herr­anum um borð í skip Samherja og til Íslands. Loks unnu Jóhannes og Jón Óttar hlið við hlið að fyr­ir­hug­aðri útgerð Samherja í Suður-Afríku sem ekk­ert varð að lokum úr, en hafði verið rædd með Þor­steini Má og þre­menn­ing­unum eftir árs­há­tíð­ina.

Glæpa­sagna­höf­undurJón Óttar Ólafsson er fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og hefur skrifað glæpa­sögur um löggur sem liggja á hleri.

Í tölvu­póst­sam­skiptum má einnig sjá að Jón Óttar fékk afrit af póstum þar sem fjallað var um greiðslur sem renna áttu í skatta­skjólið Máritíus. Einn póst­anna sendir Ingvar Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri Esju Shipping á Kýpur, til Jóhann­esar og Jóns Óttars og fjallar hann um greiðslu upp á 41 milljón króna til félags Samherja, Mermaria Invest­ments á Máritíus.

Samherji tók hluta af hagn­að­inum af fisk­veiðum sínum í Namibíu út úr land­inu í gegnum lág­skatta­svæðið Kýpur og skatta­skjól eins og Marshall-eyjar og Máritíus til að koma sér undan því að greiða lög­bundna skatta og gjöld til namibísks sam­fé­lags. Mermaria Invest­ments gerði samn­ing við útgerð Samherja í Namibíu, Arcticnam Fishing, árið 2014 um að fá greiddar 5 pró­sent af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins sem sér­leyf­is­gjöld (e. royalty). Samtals námu greiðsl­urnar til félags­ins um 640 millj­ónum króna á þremur árum.

Jón Óttar Ólafsson starf­aði áður hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, en var rek­inn þaðan árið 2012 fyrir meint brot á þagn­ar­skyldu. Var hann kærður í mál­inu, en rík­is­sak­sókn­ari taldi það ekki nægj­an­legt til sak­fellis og lét það falla niður árið 2013. Hann hefur einnig skrifað tvær glæpa­skáld­sögur sem heita Hlustað og Ókyrrð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár