Drengur með fjölþættan vanda var látinn yfirgefa búsetuúrræðið Vinakot án rökstuðnings sumarið 2017, þrátt fyrir miklar framfarir í hegðun hans þar. Drengurinn var sendur heim til móður sinnar, týndist í kjölfarið og lenti á útigangi í fimm daga, gekk svo berserksgang í matvöruverslun og var vistaður í fangaklefa. Hegðun og aðstæður drengsins versnuðu til muna við flutninginn úr Vinakoti, að mati Barnaverndarstofu.
Þetta kemur fram í samskiptum móðurinnar við Barnaverndarstofu, sem Stundin hefur undir höndum. Einnig varð misbrestur á flutningi máls drengsins á milli barnaverndarnefnda Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, sem Barnaverndarstofa telur hafa verið í andstöðu við barnaverndarlög. Drengurinn varð fyrir alvarlegri líkamsárás á tímabilinu, en bauðst engin þjónusta vegna þessa misbrests.
Stundin hefur áður fjallað um mál drengsins, en hann glímir við fjölþættan vanda sem veldur því meðal annars að hann ræður illa við …




















































Athugasemdir