Mynd: Heiða Helgadóttir

Sendur heim í hefndarhug

Erna Marín Bald­urs­dóttir vill að yfir­völd axli ábyrgð á hrotta­legri lík­ams­árás sonar síns. Í fjöl­mörg ár hefur hún barist fyrir við­eig­andi þjón­ustu fyrir son sinn, sem á við fjöl­þættan vanda að stríða og ræður illa við félags­legar aðstæður.

„Það er nákvæm­lega þetta sem ég hef verið hrædd um að muni ger­ast í hvert ein­asta skipti sem dreng­ur­inn yfir­gefur heim­ilið,“ segir Erna Marín Bald­urs­dóttir, móðir sextán ára gam­als drengs, sem varð fyrir hrotta­legri lík­ams­árás við Glæsibæ fyrr í mán­uð­inum og skil­inn eftir hálf með­vit­und­ar­laus í blóði sínu. 

Sonur hennar glímir við fjöl­þættan vanda sem veldur því meðal ann­ars að hann ræður illa við félags­legar aðstæður. Hann hefur flakkað á milli með­ferð­ar­úr­ræða barna­verndar í mörg ár en ekk­ert opin­bert úrræði er í boði fyrir börn með hans vanda. Þegar lík­ams­árásin varð stóð honum engin þjón­usta til boða þar sem fjöl­skyldan var nýflutt til Reykja­víkur frá Hafn­ar­firði. „Þetta er ein­stak­lingur sem þarf á stuðn­ingi að halda nán­ast allan sól­ar­hring­inn og skýran ramma, en hann var ekki með neinn stuðn­ing þegar hann varð fyrir árásinni. Það stopp­aði allt þegar við fluttum á milli bæj­ar­fé­laga um mán­aða­mótin októ­ber-nóv­em­ber. Það var allt stopp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár