Ólétta konan sem var flutt úr landi er verkjuð og á leiðinni á spítala

Albanska konan sem var send úr landi í fyrr­inótt er verkjuð og á leið­inni á spít­ala í Albaníu. Hún var send í nítján klukku­stunda flug þrátt fyrir að læknir mælti gegn því að færi í löng flug. Konan skildi sím­ann sinn eftir á Íslandi og vin­kona hennar leitar hennar.

Ólétta konan sem var flutt úr landi er verkjuð og á leiðinni á spítala

Albönsk kona sem gengin er 36 vikur á leið og var send úr landi í gær­morgun er mjög verkjuð og leið­inni á spít­ala í Albaníu. „Mér líður ekki vel eins og er og er á leið­inni á spít­ala,“ segir hún í sam­tali við Stundina. Hún kom til heima­lands­ins Albaníu seint í gær­kvöldi eftir nítján tíma ferða­lag en læknir á kvenna­deild Land­spít­al­ans hafði mælt gegn því að hún færi í langt flug þar sem hún væri að glíma við stoð­kerf­is­vanda­mál.

Leitar fregnaMorgane Priet Maheo hjá sam­tök­unum Réttur barna á flótta og vin­kona albönsku kon­unnar, hefur reynt að fá fregnir af henni síð­ast­lið­inn sól­ar­hring.

Morgane Priet Maheo hjá sam­tök­unum Réttur barna á flótta og vin­kona albönsku kon­unnar, hefur áhyggjur af heilsu hennar. Konan átti sitt fyrra barn á 36. viku með­göngu með keis­ara­skurði. „Ég var að hringja til þess að reyna að ná sam­bandi við hana vegna þess að ég er með smá áhyggjur. Ég er bara að reyna að fá fréttir,“ sagði Morgane í sam­tali við Stundina í gær, en þá hafði hún allan dag­inn reynt að fá fregnir af því hvar konan væri nið­ur­komin og hver staða hennar væri.

Hringdi hún meðal ann­ars ítrekað í síma kon­unnar í þessum til­gangi. Eftir nokkrar hring­ingar svar­aði hins­vegar maður sem hafði verið nágranni hennar á gisti­heim­il­inu þar sem hún hafði haldið til ásamt unnusta sínum og barni. „Hann sagði að hún hefði skilið sím­ann sinn eftir,“ sagði Morgane sem á erfitt með að átta sig á því hvers­vegna hún hafi ákveðið að  taka sím­ann ekki með sér. „Hún skildi sím­ann sinn eftir á hót­el­inu, sem er skrítið, þar sem hún er með fullt af myndum inni í sím­anum,“ segir Morgane. 

Reyndi að fá fréttir

Íslenskir lög­reglu­menn úr stoð­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdu kon­unni, sem er gengin 36 vikur á leið, úr landi í gær­morgun með flug­vél Icelandair, ásamt unnusta hennar og tveggja ára barni. Ekki var tekið til­lit til vott­orðs frá lækni á kvenna­deild Land­spít­al­ans þar sem fram kom að hún væri slæm af stoð­kerf­is­verkjum og gæti átt erfitt með langt flug. Sjón­ar­vottar á vegum No Borders sam­tak­anna og sam­tök­unum Réttur barna á flótta fengu ekki að vera við­staddir á meðan fólkið pakk­aði niður í töskur í fylgd lög­reglu­manna.

Morgane fór með kon­unni í skoðun hjá Mæðra­vernd á mánu­dags­kvöld en var hins­vegar ekki við­stödd þegar lög­reglu­menn tóku fjöl­skyld­una af gisti­heim­il­inu þar sem þau höfðu haldið til síð­ast­liðin mánuð. Hún reyndi í allan gær­dag að fá fregnir af því hvar fjöl­skyldan væri nið­ur­komin og hringdi meðal ann­ars þýska rík­is­lög­reglu­stjóra­emb­ætt­iðí þeim til­gangi. Þar var henni hins­vegar tjáð að það væri ekk­ert á skrá um að komið hefði verið með albanska rík­is­borg­ara til lands­ins. Líkt og fram hefur komið milli­lenti fjöl­skyldan í Berlín í gær, áður en þau héldu ferð­inni áfram til Vín­ar­borgar í Aust­ur­ríki og þaðan til Albaníu, en ferða­lagið tók nítján klukku­stundir.

Stundin greindi frá því í gær að þýskir lög­reglu­menn hefðu tekið á móti fjöl­skyld­unni í Berlín. Sjón­ar­vottur lýsti því hvernig íslenskir lög­reglu­menn fylgdu fjöl­skyld­unni um borð í vél­ina á Leifstöð á undan öðrum far­þegum. Þá fylgdu þeir þeim til móts við þýska lög­reglu­menn sem tóku á móti þeim í Berlín.

„Ég tékk­aði mig bara inn eins og venju­legur maður og þegar kom að því að fara inn í vél­ina þá sá ég að það var ein­hver seinkun. Allt í einu birt­ast lög­reglu­menn með tvo full­orðna ein­stak­linga og eitt barn á milli sín og fara fram fyrir röð­ina og beint inn í vél. Ég pældi ein­hvern veg­inn ekk­ert í þessu og vissi í raun­inni ekk­ert hvað væri að ger­ast, en tók nátt­úru­lega eftir þessu eins og aðrir,“ sagði far­þeg­inn sem átt­aði sig síðar á því að um væri að ræða fólkið sem fjallað hefur verið um í fréttum.

Útlend­inga­stofnun hefur stað­hæft að konan hafi verið ferða­fær, sam­kvæmt vott­orði frá lækni á heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í vott­orði læknis á kvenna­deild Land­spít­al­ans kemur hins­vegar fram að konan sé „slæm af stoð­kerf­is­verkjum í baki og ætti erfitt með langt flug.“

Fylgdust með atburðarrásinni

No Borders sam­tökin hafa fylgt mál­inu eftir frá upp­hafi og flutt fregnir af atburð­ar­rásinni. Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir, með­limur sam­tak­anna, fór upp á spít­ala þegar hún fékk fregnir af því sem væri að ger­ast. Þegar hún kom á vett­vang þá var lög­reglan nýfarin, en henni tjáð að lög­reglu­ljósin hefðu blikkað lengi vel fyrir utan gluggan á meðan verið var að skoða kon­una. „Starfs­mönn­unum og kon­unni fannst þetta mjög óhuggu­legt og lýstu yfir óþæg­indum varð­andi þetta, að það væri beðið svona fyrir utan glugg­ann á meðan hún væri þarna með bumb­una úti og mæli­tækin á sér,“ segir Elínborg Harpa í sam­tali við Stundina.

Vott­orðið veitti vonKatrín Alda Ámunda­dóttir, með­limur No Borders, hefur fylgst náið með atburða­rásinni.

Elínborg seg­ist hafa verið von­góð um að brott­vísun yrði frestað, eftir að þau voru komin með vott­orð í hend­urnar þar sem fram kom að konan gæti átt erfitt með langt flug. „Þrátt fyrir að hafi séð Útlend­inga­stofnun og stoð­deild lög­regl­unnar gera alls­konar hluti, sem geta ein­hvern­veg­inn ekki átt að vera hluti af verk­lag­inu þeirra, þá ein­hvern veg­inn svona trúði ég þí samt að þetta gæti breytt ein­hverju.“

Katrín Alda Ámunda­dóttir, annar með­limur No Borders, sem fylgd­ist náið með atburð­ar­rásinni, tekur undir með Elín­borgu um að vott­orðið hafi veitt ákveðna von. „Sérstak­lega í ljósi þess að hún hafði ekki séð neinn annan lækni í ein­hvern tíma og því hefði eng­inn annar getað gefið út „fit to fly“ vott­orð,“ segir Katrín Alda í sam­tali við Stundina. Annað hafi hins­vegar komið á dag­inn þegar í ljós kom að lög­reglan hafi fengið annað vott­orð frá lækni sem konan hafði ekki verið í sam­bandi við.

Hún segir aðgerðir lög­regl­unnar því miður ekki koma henni eða félögum þeirra svo mikið á óvart. „Hreint út sagt þá kom það mörgum okkar ekk­ert sér­lega á óvart þar sem við höfum horft upp á ýmis­legt sem lög­reglan gerir á vegum Útlend­inga­stofn­unnar. Þetta var hins vegar mjög gróft dæmi um þessa vald­nýðslu sem á sér oft stað.“

Sem fyrr segir þá er konan nú tals­vert verkjuð og á leið­inni á spít­ala í Albaníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár