Réttlæta aðkast gegn múslimum: „Kærum okkur ekki um íslamska menningu“

Þjóð­ern­is­sinnar líta á árás­ina í Breið­holti sem rétt­mæt varn­ar­við­brögð í menn­ing­ar­stríði.

Réttlæta aðkast gegn múslimum: „Kærum okkur ekki um íslamska menningu“
Linkind í útlend­inga­málum mót­mælt Mynd teng­ist frétt ekki beint en var tekin árið 2016 þegar fjöldi fólks safn­að­ist saman á Aust­ur­velli og mót­mælti nýjum útlend­inga­lögum sem sögð voru liðka um of fyrir komu inn­flytj­enda til Íslands. Mynd: Pressphotos.biz

Vakur, sam­tök þjóð­ern­is­sinna sem reka áróður gegn inn­flytj­endum og fjöl­menn­ingu og beita sér fyrir hertri inn­flytj­enda­stefnu, halda því fram að aðkast sem þrjár erlendar konur urðu fyrir við versl­un­ar­kjarna í Breið­holti hafi ekk­ert með hatur eða hat­urs­glæpi að gera.

„Meiri hluti Íslend­inga kærir sig ekki um íslamska menn­ingu. Þeir hafa fullan rétt á því og þeir hafa fullan rétt á því að láta þá skoðun sína í ljós,“ segja sam­tökin á Facebook.

„Múslimar sem koma hingað sem „flótta­menn“ eða „hæl­is­leit­endur“ „í leit að alþjóð­legri vernd“ eiga ekki að sýna fyr­ir­litn­ingu sína á Íslend­ingum með því að spíg­spora síðan um í búrkum. Við kærum okkur ekki um íslamska menn­ingu á Íslandi.“

Miðlæg rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur nú til skoð­unar hvort fram­inn hafi verið hat­urs­glæpur þegar ráð­ist var á þrjá inn­flytj­endur á mánu­dag.

Þórunn Ólafs­dóttir, sem á sýr­lenskan mann og þekkir til máls­ins, lýsti atvikum með eft­ir­far­andi hætti á Facebook í gær: „Fjöl­skyldan var á leið út úr versl­un­inni þegar kona veitt­ist að þeim, fyrst með ókvæð­is­orðum en svo bætti hún í og hrækti á þau og gerði til­raunir til að rífa í hijab kvenn­anna, sem er þekkt aðferð hat­urs­glæpa­manna til að nið­ur­lægja múslima.“

Vakur, sam­tök um evr­ópska menn­ingu, hafa und­an­farin ár flutt umdeilda fyr­ir­les­ara til lands­ins, rekið hræðslu­á­róður í anda kyn­þátta­hyggju á Facebook og beint spjótum að hæl­is­leit­endum.

Sig­ur­freyr Jónasson, yfir­lýstur fas­isti, hefur umsjón með Facebook-síðu sam­tak­anna. Hann kom við sögu í frétt Stund­ar­innar í vor vegna skipu­lagn­ingar á kynn­ing­ar­fundi vegna nám­skeiðs í vopna­burði. Við­mæl­andi Stund­ar­innar sem hugð­ist sækja nám­skeiðið eftir að hafa fengið ábend­ingu um það frá Sig­ur­frey, sagð­ist vilja und­ir­búa sig ef til átaka kæmi milli Íslend­inga og flótta­manna.

Í gær birti Vísir.is frétt þar sem rætt var við Eyrúnu Eyþórs­dóttur, aðjúnkt í lög­reglu­fræði við Háskól­ann á Akureyri og fyrr­ver­andi yfir­mann hat­urs­glæpa­deildar lög­reglu. Fjallað var um hat­urs­glæpi almennt en einnig sér­stak­lega um atvikið í Breið­holti. Vakur brást við með færslu á Facebook þar sem tekin er afger­andi afstaða með þeim sem láta í ljós andúð á múslimum og íslamskri menn­ingu. Af sam­heng­inu má ráða að sam­tökin telji aðkastið sem múslim­arnir urðu fyrir í Breið­holti hafa verið rétt­læt­an­legt í ljósi klæða­burðar kvenn­anna. Um sé að ræða varn­ar­við­bragð Íslend­inga við eins konar inn­rás íslamskrar menn­ingar.

26 manns hafa „lækað“ færslu Vakurs á Facebook en sams konar sjón­ar­mið hafa birst víða í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla og á sam­fé­lags­miðlum. „Það á fyrst og fremst að banna þessi höf­uð­föt,“ segir einn þeirra sem leggja orð í belg. „Mér finnst þetta bara í lagi eins og staðan er í dag,“ segir annar.

Þórunn Ólafs­dóttir, sem hefur starfað með flótta­mönnum á Íslandi og í Grikk­landi, sagði í pistli sínum á Facebook í gær að því miður væri ekki hægt að líta á ofbeldið sem inn­flytj­end­urnir urðu fyrir í Breið­holti sem ein­angrað til­vik.

„Sam­hengið er miklu, miklu stærra. Hat­urs­orð­ræðu, ras­isma og íslamó­fó­bíu hefur vaxið fiskur um hrygg í sam­fé­lag­inu okkar und­an­farin miss­eri. Sú ógn­væn­lega þróun á sér margar skýr­ingar og fjöl­margir sem bera þar mikla ábyrgð – stjórn­mála­fólk, fjöl­miðlar og fólkið sem veitir þessum hug­myndum braut­ar­gengi og fjöld­inn sem lætur þær óáreittar. Hvernig sam­fé­lag viljum við eig­in­lega vera?“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgangur þjóðernishyggju

Sigrar pastelrasista í Svíþjóð: Fóru frá jaðrinum í ríkisstjórnarsamstarf
GreiningUppgangur þjóðernishyggju

Sigrar pastel­ras­ista í Svíþjóð: Fóru frá jaðr­inum í rík­is­stjórn­ar­sam­starf

Ferðalag sænska stjórn­mála­flokks­ins Sví­þjóð­ar­demókrata frá því að vera jað­ar­flokkur í sænskum stjórn­málum yfir í að vera sam­starfs­flokkur rík­is­stjórn­ar­innar er ein­stakt segir stjórn­mála­skýr­andi. Flokk­ur­inn hefur náð að straum­línu­laga sig og fjar­lægja sig frá nasískri og rasískri for­tíð sinni þannig að fimmti hver Svíi kýs nú flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár