Sendiherra Póllands kvartar undan „falsfrétt“ í bréfi til forseta Íslands og forsætisráðherra

Gerard Pokruszynski, sendi­herra Íslands á Póllandi, fer fram á að Stundin biðji Pólverja afsök­unar á frétta­flutn­ingi af sjálf­stæð­is­göngu.

Sendiherra Póllands kvartar undan „falsfrétt“ í bréfi til forseta Íslands og forsætisráðherra
Fánar á lofti Pólski þjóð­fán­inn var mest áber­andi í göng­unni en um 200 þús­und manns tóku þátt.

Gerard Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi, hefur sent bréf á skrif­stofu  for­seta Íslands, skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herra og rit­stjórn Stund­ar­innar, þar sem hann kvartar undan frétt Stund­ar­innar vegna sjálf­stæð­is­göng­unnar sem fram fór í Varsjá síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Óánægður með umfjöllun Sendi­herra Póllands er óánægður með umfjöllun Stund­ar­innar um þátt­töku öfga­hægri­manna í sjálf­stæð­is­göng­unni í Varsjá. Hann vil að fjöl­mið­ill­inn biðji sam­landa hans afsök­unar.

Segir sendi­herr­ann að grein­ar­höf­undur hafi þar sakað alla Pólverja „sem elska föð­ur­landið“ um að vera fas­ista og/eða nas­ista með skrifum sínum. Þá seg­ist hann von­ast til þess þetta muni ekki valda „alvar­legum afleið­ingum“ í sam­skiptum Íslend­inga og Pólverja. „Ég vona að þetta mun ekki valda alvar­legum afleið­ingum og muni ekki byggja upp tregðu á milli sam­landa okkar,“ skrifar Pokruszynski sem segir frétt Stund­ar­innar um göng­una hafa verið „fals­frétt“ og fer fram á að blaðið biðji pólsku þjóð­ina hans afsök­unar. 

Stundin fjall­aði um sjálf­stæð­is­göng­una, sem fram fór í Varsjá síð­ast­liðin sunnu­dag í til­efni af hund­rað ára afmæli sjálf­stæðis Póllands. Í umfjöll­un­inni, sem byggði meðal ann­ars á frétta­flutn­ingi alþjóð­legra fjöl­miðla á borð við New York Times, Guardian og Al Jazeera, kom fram að for­seti Póllands, for­sæt­is­ráð­herra og aðrir helstu leið­togar lands­ins, hefðu mar­sérað um götur Varsjár í fylgd þjóð­ern­is­sinn­aðra hópa sem hafa verið skil­greindir sem fasískir og/eða nýna­sískir. Þessi hópar hafa skipu­lagt og sam­ein­ast í sjálf­stæð­is­göng­unni þann 11. nóv­em­ber ár hvert allt frá árinu 2010. Gagn­rýnendur hafa bent á að með því að taka þátt í sam­eig­in­legri göngu með öfga­hægri­mönnum, hafi pólsk stjórn­völd í raun veitt þessum hópum ákveðið lög­mæti.

Sjálf­stæð­is­gangan hefur vakið athygli alþjóð­legra fjöl­miðla á borð við Al Jazeera, BBC og Euronews. „Pólskir ráða­menn mar­séra með þjóð­ern­issinnum á full­veld­is­dag­inn,“ segir í fyr­ir­sögnum Al jazeera, U.S. News og Fox News á meðan The Times of Israel og New York Times leggja áherslu á að pólskir ráða­menn hafi tekið þátt í göng­unni með öfga­hægri­mönnum. „Þjóð­ern­is­sinnar sem kveiktu í blysum og héldu uppi merkjum fas­ista mar­sér­uðu á sama tíma og pólskir stjórn­mála­menn,“ segir í frétt Guardian.

Gangan áður verið haldin af öfgahópum

Pokruszynski gagn­rýnir frétt Stund­ar­innar fyrir að leggja áherslu á þátt­töku þess­ara öfga­hópa í atburð­inum þegar meir­hluti þátt­tak­enda hafi verið venju­legir borg­arar. „Þess vegna er ég hissa að höf­undur greinar notar orðin „nas­istar“ og „fas­istar“ yfir alla þá sem elska föð­ur­landið,“ skrifar Pokruszynski í kvört­un­ar­bréf­inu sem hann sendi á rit­stjórn Stund­ar­innar. Þá sendi hanna afrit af bréf­inu á skrif­stofu for­seta Íslands og sem og á skrif­stofu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. 

 „Ég vona að þetta mun ekki valda alvar­legum afleið­ingum og muni ekki byggja upp tregðu á milli sam­landa okkar“

Í athuga­semd sem rit­stjórar Stund­ar­innar birta við bréf sendi­herr­ans, kemur fram að umfjöllun Stund­ar­innar hafi byggt á fréttum helstu fjöl­miðla heims um sam­neyti æðstu stjórn­valda í Póllandi við öfga­þjóð­ern­is­hreyf­ingar í tengslum við sjálf­stæð­is­göng­una. Hvergi hafi verið nefnt að skil­grein­ingin „nýnas­isti“ eða „fas­isti“ ætti við um „alla þá sem elska föð­ur­landið“. Þá sé umfjöll­unin ekki afstaða íslensku þjóð­ar­innar, heldur sé um að ræða eina frétt frá einum fjöl­miðli „í margradda lýð­ræð­is­sam­fé­lagi“.

Leið­togar mar­séra með öfga­hægr­inuNew York Times lagði á það áherslu í sinni umfjöllun að leið­togar Póllands hefðu mar­sérað um götur Varsjár með öfga­hægri­mönnum

„Sérstök ákvörðun for­seta Póllands um að stofna til fjölda­göngu sam­hliða og sam­ferða göngu öfga­þjóð­ern­is­sinna hefur þær afleið­ingar að í skiln­ingi margra sé verið að sam­þykkja útlend­inga­hatur og öfga­sinn­aða hug­mynda­fræði. Á hinn bóg­inn má það skilja sem svo, eins og for­seti Póllands hefur boðað, að stærri ganga hafi verið til­raun til að sam­eina þjóð­ina,“ skrifar rit­stjóri Stund­ar­innar. Óháð skiln­ingnum sé stað­reyndin sú að for­seti og for­sæt­is­ráð­herra Póllands hafi kosið að stofna til fjölda­göngu um Varsjá á sömu leið og sama tíma og árlega hefur verið haldin ganga á vegum öfga­hópa, þar sem slag­orð gegn útlend­ingum og boð­skapur nýfas­isma hefur fram að þessu verið áber­andi og til umfjöll­unar um allan heim.“

Myndbönd og myndir af táknum fasista

Sendi­herra Póllands segir að svo virð­ist sem lýs­ingar af atburðum séu hafðar eftir fólki „sem hafði það mark­mið að lýsa við­burð­inum sem birt­ing­ar­mynd þjóð­ern­is­stefnu“. Í þessu sam­hengi bendir hann á mynd sem Stundin birti með frétt­inni af með­limum ítölsku fas­ista­sam­tak­anna Forza Nuova sem héldu uppi fánum sam­tak­anna í göng­unni, og heldur því fram að hún hafi verið tekin á mót­mælum í Róm á síð­asta ári. Þau orð hans stang­ast á við upp­lýs­ingar af mynda­veit­unni Shutterstock, en þar má finna fjölda mynda af með­limum hreyf­ing­ar­innar með slíka fána á lofti á sjálfri sjálf­stæð­is­göng­unni þann 11. nóv­em­ber, auk þess greint er frá því í alþjóð­legum fjöl­miðlum að með­limir sam­tak­anna hafi verið á meðal göngu­manna og birtar myndir af þeim.

Ítalskir öfga­mennMeðlimir ítölsku nýfas­ista­sam­tak­anna Forza Nuova létu til sýn taka á göng­unni, en leið­togi þeirra sam­taka skil­greinir sig sem fas­ista.

Sjálf­stæð­is­gangan hefur aldrei verið stærri en um það bil 200 þús­und manns tóku þátt að þessu sinni, þar á meðal fjöl­skyldu­fólk. Það eru mun fleiri en fyrir ári síðan þegar 60 þús­und manns tóku þátt, en þá var Vice á meðal þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðum um göng­una sem ein­hverja stærstu sam­komu þjóð­ern­is­sinna og öfga­hægri­manna í gjörvöllum heim­inum á okkar tímum. Á meðal þeirra öfga­hópa sem tóku þátt í göng­unni í ár auk Forza Nuova voru með­limir Róttæku þjóð­ern­is­hreyf­ing­ar­innar, ONR, sem hefur ítrekað verið tengd við fas­isma og nýnas­isma. Daily Mail greinir frá því að göngu­menn hafi meðal ann­ars hrópað slag­orð á borð við „Banda­ríkin, heims­veldi hins illa“ og „Pólland, hvítt og kaþ­ólskt.“ Þá heyr­ast göngu­menn kyrja, í mynd­bandi sem birt er með frétt Daily Mail: „Dauða fyrir óvini rík­is­ins“. 

Kenndir við nýnas­ismaMeðlimir rót­tæku þjóð­ern­is­hreyf­ing­ar­innar, ONR, veif­uðu grænum fánum með merkjum sínum, en sam­tökin hafa verið kennd við nýnas­isma.

„Vandamál í sam­skiptum þjóða eru ekki ein­stakir blaða­menn, eins og sendi­herra Póllands vísar hér til, heldur fremur hug­mynda­fræði útlend­inga­andúðar, valda­sam­þjöpp­unar og öfga­þjóð­ern­is­hyggju sem hvetur til jað­ar­setn­ingar fólks eftir þjóð­erni, kyn­hneigð, trú eða kyn­þætti, og lamar gagn­rýna þjóð­fé­lags­um­ræðu í nafni þjóð­arstolts,“ segir í svari rit­stjóra Stund­ar­innar. Frétt Stund­ar­innar hefur verið upp­færð með þeim hætti að hug­tak­inu „ný-nas­istar“ hefur verið skipt út fyrir hug­takið „ný-fas­istar“, þótt fjöl­mörg dæmi séu um að fyrr­nefnt hug­tak sé notað yfir til­tekna öfga­þjóð­ern­is­sinna í Póllandi, sem meðal ann­ars afneita því að hel­förin hafi átt sér stað.

Sendiherrar stíga fram

Blaða­menn án landamæra, Amnesty International og Freedom House eru á meðal þeirra sem hafa bent á það hvernig pólsk stjórn­völd hafa þrengt að tján­ingar- og fjöl­miðla­frelsi í land­inu eftir að þjóð­ern­is­sinn­aði hægri­flokk­ur­inn Lög og rétt­læti komst þar til valda árið 2015. Þannig sé rík­is­sjón­varp lands­ins til að mynda komið algjör­lega undir hæl flokks­ins og útvarpi og sjón­varpi stefnu hans í einu og öllu. Þá eru fréttir alþjóð­legra fjöl­miðla um stöð­una í Póllandi jafn­vel teknar sér­stak­lega fyrir í rík­is­sjón­varp­inu og þær sagðar dæmi um „fals­fréttir“. Blaða­maður Al Jazeera hefur meðal ann­ars fengið að kenna á þessu, en honum barst fjöld­inn allur af óþægi­legum skila­boðum eftir að umfjöllun hans hafði verið tekin fyrir með þessum hætti í rík­is­sjón­varpi Póllands. 

Gerðu sam­komu­lagSendi­herra Póllands segir göng­una að það hafi mest­megnis verið „venju­legir borg­arar“ sem tóku þátt í göng­unni. Gagn­rýnendur hafa bent á að með því að taka þátt í sam­eig­in­legri göngu með öfga­hægri­mönnum, hafi pólsk stjórn­völd í raun veitt þessum hópum ákveðið lög­mæti.

Þá virð­ast fleiri sendi­herrar lands­ins á erlendri grundu hafi tekið upp þá stefnu að gagn­rýna umfjall­anir um Pólland í fjöl­miðlum utan land­stein­anna. Hag­fræð­ing­ur­inn og nóbels­verð­launa­haf­inn Paul Krugman skrif­aði grein í New York Times í ágúst síð­ast­liðnum þar sem hann gagn­rýndi þró­un­ina í Póllandi harð­lega og tengdi það sem væri að ger­ast við fas­isma. Sendi­herra Póllands í Banda­ríkj­unum tók sig til og svar­aði Krugman með þeim orðum að umfjöllun hans væri algjör fjar­stæða. Þar sagð­ist hann ekki geta tekið þeirri sögu­skoðun Krugmans að Pólland hefði verið eða væri á fasískri veg­ferð, „ekki einu sinni sem lélegum brand­ara“. Í þessu sam­hengi rifj­aði hann upp að Pólland hefði verið fyrsta landið sem hefði þurft að verj­ast inn­rásum nas­ista í seinni heims­styrj­öld­inni. Stundin hefur fengið ábend­ingar um að sendi­herrar í löndum Evrópu hafi verið að bregð­ast við nei­kvæðum frétta­flutn­ingi með svip­uðum hætti und­an­farin miss­eri.

Féll niður um 29 sæti

Í grein­ingu Freedom House á stöðu fjöl­miðla­frelsis í Póllandi kemur fram að landið hafi á árinu 2016 farið frá því að vera ríki þar sem fjöl­miðla­frelsi ríki að fullu, yfir í að vera ríki þar sem slíkt frelsi fyr­ir­finn­ist ein­ungis að hluta til. Óþol stjórn­valda gagn­vart sjálf­stæðri og gagn­rýn­inni blaða­mennsku, gróf afskipti af mál­efnum opin­berra fjöl­miðla, tak­mark­anir á tján­ing­ar­frelsi þegar kemur að sögu Pólland og sjálfs­mynd, eru sér­stak­lega nefndar sem ástæður fyrir þeirri sjálfs­rit­skoðun og pólarís­er­ingu sem átt hefur sér stað.

Paul KrugmanPaul Krugman skrif­aði nýlega grein um ískyggi­lega þróun í Póllandi en sendi­herra Póllands í Banda­ríkj­unum svar­aði með grein þar sem hann sagð­ist ekki einu sinni geta tekið skrif­unum sem lélegum brand­ara.

Freedom House bendir á að ný fjöl­miðla­lög hafi tekið gildi í jan­úar 2016 en þau gerðu fjár­mála­ráð­herra lands­ins kleift að skipa stjórn­endur pólska rík­is­sjón­varps­ins. Mann­rétt­indasmatökin Amnesty International benda á það í grein­ingu sinni  að fjár­mála­ráð­herr­ann hefði beitt vald sínu til þess að reka fjöl­marga yfir­menn opin­berra fjöl­miðla. Þá kemur fram að í októ­ber 2016 hefði verið búið að segja upp 234 blaða­mönnum sem störf­uðu á rík­is­fjöl­miðlum.

Pólland féll um heil 29 sæti á lista Blaða­manna án landamæra  um fjöl­miðla­frelsi árið sem rík­is­stjórn­ar­flokkur Laga og rétt­lætis tók við völdum í land­inu árið 2015. Landið var í 18 sæti á list­anum árið 2015 en var komið niður í 47 sæti árið 2016 en landið er nú í 58 sæti á list­anum. Í umfjöllun sam­tak­anna um stöðu fjöl­miðla í Póllandi í dag, kemur fram að rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn sæki að fjöl­miðla­frelsi lands­ins úr öllum áttum. Þannig hafi rík­is­sjón­varp­inu verið breytt í „áróð­urs­vélar stjórn­valda.“

Sakaður um að móðga pólsku þjóðina

Samkvæmt grein­ingu Blaða­manna án landa­mæri reka nýjir stjórn­endur rík­is­fjöl­miðl­anna hik­laust þá blaða­menn sem neita að fylgja flokkslín­unni. Samtökin nefna sér­stak­lega mál rann­sókn­ar­blaða­manns­ins Tomasz Piatek sem sat í marga mán­uði undir hót­unum um að vera leiddur fyrir her­dóm­stól fyrir að gagn­rýna tengsl varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins við rúss­nesku leyni­þjón­ust­una. Þá reyndi útvarps­ráð lands­ins, sem sam­tökin segja vera undir hæl stjórn­valda, að sekta einka­reknu stöð­ina TVN fyrir að flytja fréttir af gagn­rýni á stjórn­völd í tengslum við umfjöllun þeirra um mót­mæli árið 2016. Sektin var dregin til baka í kjöl­far gagn­rýni frá alþjóða­sam­fé­lag­inu.

Í des­em­ber reyndu rík­is­stjórn­ar­flokkur Laga og rétt­lætis að tak­marka aðgengi blaða­manna að þing­hús­inu en hættu við eftir mikla and­stöðu stjórn­ar­and­stöðu og almenn­ings. Þá hafa skrif­stofur opin­berra stofn­anna sagt upp áskriftum af fjöl­miðlum sem stjórn­völd telja andsnúin sér auk þess sem rík­is­fyr­ir­tæki aug­lýsa í fjöl­miðlum hlið­hollum stjórn­inni.

Freedom House bendir einnig á að rík­is­stjórnin hafi unnið að því að grafa undan þeim sem haldi því fram að Pól­verjar hafi með ein­hverjum hætti komið að voða­verkum nas­ista í seinni heims­styrj­öld­inni. Þannig sætti sagn­fræð­ing­ur­inn Jan Gross undir ávirð­ingum um að hann hefði móðgað pólsku þjóð­ina á opin­berum vett­vangi með því að skrifa blaða­grein þar sem fram kom að Pól­verjar hefðu drepið fleiri gyð­inga en nas­ista. Sak­sókn­arar spurðu Gross spjör­unum úr í fimm klukku­stunda mara­þon yfir­heyrslu vegna þessa auk þess sem for­set­inn Andrzej Duda íhug­aði að draga heið­urs­orðu sem hann var sæmdur árið 1996 til baka.

„Algjörlega fordæmalaust“

Aðgerðir pól­skra ráða­manna gegn frjálsum og gagn­rýnum fjöl­miðlum birt­ist með ýmsum hætti. Í nýlegri umfjöllun Nefndar til verndar blaða­mönnum, CPJ,  kemur fram að rík­is­stjórn­ar­flokkur Laga og rétt­lætis hafi tekið yfir opin­bera fjöl­miðla, hótað blaða­mönnum mál­sóknum, minnkað aðgengi þeirra að opin­berum starfs­mönnum og þrengt að gagn­rýnum einka­reknum miðlum með því að stýra aug­lýs­ingum og áskriftum í aðrar áttir. „Blaða­menn á opin­berum fjöl­miðlum eru undir stans­lausum póli­tískum þrýst­ingi, þeir þurfa að fara var­lega varð­andi hvað þeir segja, hverjum þeir bjóða í við­töl. Það sem er að eiga sér stað er algjör­lega for­dæma­laust,“ sagði Krzysztof Bobinski, stjórn­ar­maður í pólskum blaða­manna­sam­tökum, á fyreir­lestri í Gdansk síð­ast­lið­inn febr­úar.

„Það sem er að eiga sér stað er algjör­lega for­dæma­laust“

Þá kemur fram að margir blaða­menn lands­ins ótt­ist að rík­is­stjórnin muni þrengja ennþá frekar að einka­reknum miðlum fyrir þing­kosn­ing­arnar sem munu fara fram á næsta ári. Það sé til að mynda gert með fjölda mál­sókna á hendur þeim, en margir ótt­ast að breyt­ingar stjórn­valda á dóm­stólum lands­ins, muni hafa áhrif á slíka dóma. Dæmi eru um mál sem nú eru rekin fyrir pólskum dóm­stólum þar sem blaða­menn geta átt yfir höfði sér nokk­urra ára fang­els­is­dóma fyrir skrif sín.

Argentínskum fjölmiðli stefnt 

Í byrjun árs sam­þykkti pólska þingið nýtt laga­frum­varp sem gerir það refsi­vert að saka pólsku þjóð­ina, eða pólska ríkið, um að hafa borið ábyrgð á hel­för­inni, en allt að þriggja ára fang­els­is­vist liggur við brot­inu. Stuttu síðar tóku pólsk félaga­sam­tök sig saman og stefndu argentíska fjöl­miðl­inum Pagina 12 daily fyrir að hafa með umfjöllun sinni um hel­för­ina brotið gegn lög­unum, að því er Reuters greindi frá. Þar sögðu tals­menn fjöl­mið­ils­ins þetta vera til­raun til rit­skoð­unar sem ógn­aði fjöl­miðla­frelsi um allan heim. 

Gerard Pokruszynski tók við sem sendi­herra Íslands á Póllandi, í byrjun árs, en hann hefur varið þessa nýju lög­gjöf í fjöl­miðlum. Þannig sagði hann í sam­tali við Frétta­blaðið í febr­úar síð­ast­liðnum að það særði Pólverja þegar því væri haldið fram að Pól­verjar hefðu með ein­hverjum hætti komið að hel­för­inni. „Nú var það bara að duga eða drep­ast. Þetta er okkar Rúbíkon. Það er ekki hægt að leyfa fólki að tala um „pólskar útrým­ing­ar­búðir“ lengur. Það er ekki rétt.“

Það er í því and­rúms­lofti sem rakið hefur verið hér að framan sem sjálf­stæð­is­göngur síð­ustu ára hafa stig­magn­ast, en eins og sjá má á eft­ir­far­andi áróð­urs­mynd­bandi öfga­hægri­manna, sem byggir á myndefni frá göng­unni árið 2015, má heyra hvernig ræðu­maður heldur ræðu yfir fund­ar­gestum þar sem hann sendir meðal ann­ars þau skila­boð til múslima að þeir eigi að koma sér í burtu þar sem Jesús sé kon­ungur þeirra sem þarna standi. Þá talar hann um að vinstri menn séu að reyna að eyði­leggja hina pólsku þjóð með áróðri sínum, en að þeim muni ekki takast það. Þá heldur annar ræðu­maður því fram að sharía lög verði inn­leidd í Póllandi ef ekk­ert verði að gert. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgangur þjóðernishyggju

Sigrar pastelrasista í Svíþjóð: Fóru frá jaðrinum í ríkisstjórnarsamstarf
GreiningUppgangur þjóðernishyggju

Sigrar pastel­ras­ista í Svíþjóð: Fóru frá jaðr­inum í rík­is­stjórn­ar­sam­starf

Ferðalag sænska stjórn­mála­flokks­ins Sví­þjóð­ar­demókrata frá því að vera jað­ar­flokkur í sænskum stjórn­málum yfir í að vera sam­starfs­flokkur rík­is­stjórn­ar­innar er ein­stakt segir stjórn­mála­skýr­andi. Flokk­ur­inn hefur náð að straum­línu­laga sig og fjar­lægja sig frá nasískri og rasískri for­tíð sinni þannig að fimmti hver Svíi kýs nú flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár