Sigrar pastelrasista í Svíþjóð: Fóru frá jaðrinum í ríkisstjórnarsamstarf

Ferðalag sænska stjórn­mála­flokks­ins Sví­þjóð­ar­demókrata frá því að vera jað­ar­flokkur í sænskum stjórn­málum yfir í að vera sam­starfs­flokkur rík­is­stjórn­ar­innar er ein­stakt segir stjórn­mála­skýr­andi. Flokk­ur­inn hefur náð að straum­línu­laga sig og fjar­lægja sig frá nasískri og rasískri for­tíð sinni þannig að fimmti hver Svíi kýs nú flokk­inn.

<span>Sigrar pastelrasista í Svíþjóð:</span> Fóru frá jaðrinum í ríkisstjórnarsamstarf
„Skán­ar­gengið“ sem breytti Sví­þjóð­ar­demókrötum Fjór­menn­ing­arnir sem breyttu Sví­þjóð­ar­demókrötum og komu flokknum í hæstu hæðir í Svíþjóð þrátt fyrir nasíska og rasíska for­tíð flokks­ins. Þetta eru þeir Jimmie Åkesson, Björn Söder, Richard Jomshof og Matthias Carlsson. Mynd: Stundin

„Ferðalag flokks­ins er ein­stakt í sænskri póli­tík. Enginn annar flokkur hefur, á svo skömmum tíma, farið frá því að vera svona lít­ill og illa séður yfir í að vera þátt­tak­andi í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi og vera með starfs­menn í stjórn­arr­ráð­inu þrátt fyrir að þeir séu ekki með ráð­herra í stjórn­inni,“  segir Pontus Mattsson, blaða­maður og stjórn­mála­skýr­andi hjá sænska Rík­is­út­varp­inu, aðspurður um þá stað­reynd að stjórn­mála­flokk­ur­inn Sví­þjóð­ar­demókratar, sem er í grunn­inn stjórn­mála­flokkur með nasískar og rasískar rætur, er orð­inn að sam­starfs­flokki sænsku rík­is­stjórn­ar­innar. „Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir eru hluti af rík­is­stjórn­inni án þess að fá eigin ráð­herra. Þeir fá hins vegar emb­ætt­is­menn sem vinna innan rík­is­stjórn­ar­innar og verða þátt­tak­endur í öllu sem rík­is­stjórnin gerir. Þeir munu hafa mikil völd og áhrif.“

Ulf Kristers­son, nýr for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, kynnti nýja rík­is­stjórn sína í gær. Rík­is­stjórnin er mynduð úr flokki Kristers­son, Moder­atarna, Kristi­legum demókrötum og Frjáls­lynda flokknum. Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir verja stjórn­ina hins vegar falli og taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu þrátt fyrir að vera ekki með eigin ráð­herra. Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir eru í dag næst­stærsti flokk­ur­inn í Svíþjóð, á eftir Sós­í­alde­mókrötum, með 20,54 pró­sent fylgi eftir stór­sigur í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber. Flokk­ur­inn er því stærsti flokk­ur­inn sem kemur að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. 

Tengslin við nasisma og kynþáttahyggju

Sænski blaða­mað­ur­inn, Anna-Lena Lodenius, sem er sér­fræð­ingur í sögu þjóð­ernis- og hægri öfga­flokka og hefur skrifað margar bækur um efnið, segir að þessi veg­ferð flokks­ins sé afar merki­leg þar sem hann sé í grunn­inn flokkur sem byggð­ist upp á nas­isma og fas­isma. „Þetta er afar langt ferða­lag. Sví­þjóð­ar­demókratar eru stofn­aðir af Svíum sem eru með tengsl við nas­isma og fas­isma í Svíþjóð á þriðja og fjórða ára­tugnum. Að vissu leyti er flokk­ur­inn alveg eins og hann hefur alltaf verið því skoð­anir þeirra eru í grunn­inn þær sömu. Þeir vilja í grófum dráttum ekki neina inn­flytj­endur, þeir vilja mínus-inn­flytj­endur. En það sem hefur breyst er ásýnd flokks­ins og hvernig þeir hegða sér. Þeir koma fram, meira og meira, eins og hefð­bund­inn stjórn­mála­flokkur sem aðrir eigi að treysta á. En samt koma upp hneyksl­is­mál hvað eftir annað um að ein­hver í flokknum hafi verið í slag­togi með nas­istum eða sagt eitt­hvað sem byggir á kyn­þátta­hatri,“ segir Anna Lena. 

Eitt af slíkum hneyksl­is­málum sem kom upp fyrir nokkrum árum tengd­ist þing­manni flokks­ins, Oscar Sjöstedt, og Íslandi. Sjöstedt hafði verið að vinna í slát­ur­húsi á Íslandi og það var tekið upp mynd­band af honum þar sem hann sagði góð­glaður frá því að nokkrir vinnu­fé­lagar hans hefðu sparkað í dauðar kindur og kallað þær Gyðinga. Sam­bæri­leg mál tengd flokknum koma upp reglu­lega í Svíþjóð og eru það slík mál sem Anna Lena vísar til. 

Á bleikum CadillacStjórn­mála­skýrendur í Svíþjóð hafa í gegnum árin lýst því hvernig Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir hafa slípað af sér öfga­fyllstu hlið­arnar og ras­istar­etó­rík­ina til að höfða til breið­ari hóps. Flokk­ur­inn breytti merki sínu til dæmis í blóm og reyndi að mýkja ásýnd sína. Formaður flokks­ins, Jimmie Åkesson, kom fram á bleikum Cadillac fyrir kosn­ing­arnar fyrr á árinu og var þetta kosn­inga­bíll flokks­ins.

Frá hundsun að samstarfi

Mattsson segir að það sem er sögu­legt við þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf sé í fyrsta lagi að Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir taki þátt í því og í öðru lagi að aldrei áður hafi stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í land­inu verið sam­starfs­flokkur rík­is­stjórnar og varið hana falli.  „Þetta ferða­lag flokks­ins hefur átt sér stað í nokkrum skrefum. Stærsta skrefið var þegar flokk­ur­inn komst inn á sænska þingið í fyrsta sinn árið 2010 en þá vildi eng­inn hafa neitt með þá að gera.“

„Þeir munu hafa mikil völd og áhrif“
Pontus Mattson
útvarps­maður

Aðspurður segir Mattsson að það hafi verið við­kvæm og eld­fim spurn­ing í sænskum stjórn­málum í mörg ár hvort aðrir stjórn­mála­flokkar vilji vinna með Sví­þjóð­ar­demókrötum eða ekki. Hann segir að allir stjórn­ar­flokk­arnir hafi háð kosn­inga­bar­áttu sína fyrr á árinu með því lof­orði að mynda ekki rík­is­stjórn með Sví­þjóð­ar­demókrötum. „Þetta hefur verið sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir Frjáls­lynda flokk­inn og þeir hefðu aldrei tekið þátt í rík­is­stjórn með Sví­þjóð­ar­demókrötum. Þannig að rík­is­stjórnin er mynduð með þessum hætti í stað­inn,“ segir Mattsson. 

Fá þá innflytjendapólitík sem þeir hafa barist fyrir

Einstakt ferða­lag í sænskri stjórn­mála­söguPontus Mattsson segir að ferða­lag Sví­þjóð­ar­demókrata frá jaðri sænskra stjórn­mála að rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sé ein­stakt.

Pontus Mattsson segir að Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir hafi fengið mikið af sinni póli­tík í gegn í sam­starfs­samn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar, Tidösamn­ingnum. Áhrif Sví­þjóð­ar­demókratanna sjást fyrst og fremst í harð­ari inn­flytj­endapóli­tík í Svíþjóð. Inn­flytj­endapóli­tíkin er stærsta málið sem flokk­ur­inn hefur beitt sér fyrir á liðnum árum en flokk­ur­inn hefur viljað draga veru­lega úr fjölda þeirra inn­flytj­enda sem fá að koma til Sví­þjóðar. Til ein­föld­unar má segja að þetta sé langstærsta bar­áttu­mál flokks­ins. „Í grófum dráttum má segja að inn­flytj­enda- og afbrotapóli­tík nýju rík­is­stjórn­ar­innar komi frá Sví­því­þjóð­ar­demókrötum,“ segir Mattsson. 

For­mað­ur­inn, Jimme Åkesson, tal­aði til dæmis mest um þessa spurn­ingu þegar til­kynnt var um myndun stjórn­ar­innar og sagði hann að nýja rík­is­stjórnin myndi leiða til breyttra for­sendna fyrir inn­flytj­endapóli­tík lands­ins. Svíþjóð mun til dæmis bara taka við eins fáum inn­flytj­endum og stefna Evr­ópu­sam­bands­ins leyfir land­inu að taka við og munu kvótaflótta­menn­irnir sem landið tekur við á ári minnka úr 6.400 og niður í lág­markið sem sam­bandið heim­ildar, 900. 

Þessi stefna er í raun stór­sigur fyrir Sví­þjóð­ar­demókrata og sýnir að þeir hafa náð árangri í því að berj­ast fyrir því áherslu­máli sem þeir telja mik­il­væg­ast. Jimmie Åkesson hefur sjálfur sagt um sam­starf flokks­ins við rík­is­stjórn­ina:  „Við erum með í rík­is­stjórn­inni eins og hver annar rík­is­stjórn­ar­flokkur. [...] Ef maður les sam­starfs­samn­ing­inn frá fyrstu blað­síðu til þeirrar síð­ustu þá sér maður hvað áhrif okkar eru mikil.“

Í Svíþjóð fer nú fram til­finn­inga­þrungin umræða um hvað felst í þessum stór­sigri Sví­þjóð­ar­demókrata og þátt­töku þeirra í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Sumir vilja meina að lýð­ræð­inu í Svíþjóð sé nú ógnað vegna þess á meðan aðrir vilja meina að nið­ur­staðan sýni einmitt að lýð­ræðið virki. Rúmlega 1 af hverjum 5  Svíum kaus Sví­þjóð­ar­demókratana í kosn­ing­unum í sept­em­ber. 

Viðsnúningurinn algjör á tæpum 10 árum

Þessi nýja inn­flytj­endapóli­tík Svía er algjör við­snún­ingur frá því sem áður var en á árunum fyrir kosn­ing­arnar 2014 var Svíþjóð það land í Evrópu sem tók á móti flestum flótta­mönnum, meðal ann­ars frá Sýrlandi og Afganistan, miðað við höfða­tölu. Þessi stefna Sví­þjóðar hefur verið kennd við ræðu sem sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Fredrik Rein­feldt, hélt um sum­arið 2014 sem kennd er við brýn­ingu hans: „Opnið hjörtu ykkar.“ 

Rein­feldt, sem var for­maður hægrikra­ta­flokks­ins Moder­atarna, skor­aði á Svía að við­halda sams konar inn­flytj­endapóli­tík og gefa heldur í og vís­aði meðal ann­ars  til stríðs­ins í Júgóslavíu. Segja má að Svíar hafi kosið gegn þess­ari stefnu í kosn­ing­unum það árið þegar Moder­atarna misstu völdin og Sví­þjóð­ar­demókratar bættu við sig veru­legu fylgi. 

Nið­ur­staðan er eig­in­lega sú í dag að Svíar hafa hafnað þeirri frjáls­lyndu inn­flytj­endapóli­tík sem Fredrik Reinfelt hélt á lofti sem for­sæt­is­ráð­herra á árunum fyrir 2014, og boð­aði áfram­hald á, til þess að í stað­inn velja harð­ari inn­flytj­endapóli­tík Sví­þjóð­ar­demókrata, sem hinir hægri­flokk­arnir Moder­atarna og Kristi­legir demókratar sann­ar­lega styðja. 

Flokkurinn straumlínulagaði sig

Andlits- en ekki eðl­is­breyt­ingAnna-Lena Lodenius, sem er sér­fræð­ingur í sögu þjóð­ern­is­flokka, segir að Sví­þjóð­ar­demókratar hafi breytt ásýnd sinni en ekki eðli.

Eitt það merki­leg­asta við sögu Sví­þjóð­ar­demókrata er hvernig flokk­ur­inn hefur reynt að straum­línu­laga sig, slípa af sér nas­ista- og ras­ista­stimplana, til að höfða til breið­ari fjölda Svía, sem almennt séð eru mót­fallnir ras­isma og hægri öfga­hyggju. Sví­þjóð­ar­demókratar eru stofn­aðir á grunni nasískra sam­taka sem köll­uð­ust BSS eða Bevara Sverige svenskt, Höldum Svíþjóð sænskri. 

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu þess­ara sam­taka frá árinu 1979 sagði meðal ann­ars: „Á hverju ári fækkar Svíunum. Eftir fjögur ár verður Svíþjóð Svíanna ekki lengur til. Inn­flytj­end­urnir og afkvæmi þeirra munu hafa tekið Svíþjóð algjör­lega yfir. Kannski verður Tyrki ein­ræð­is­herra og negri utan­rík­is­ráð­herra. Fólkið verður þá súkkulaði­brúnt blandað fólk sem talar ekki sænsku heldur hins ýmsu ólíku tungu­mál.“ 

Í bók um sögu Sví­þjóð­ar­demókrata eftir sænska blaða­mann­inn David Baas kemur til dæmis fram hvernig flokk­ur­inn reyndi að breyta ásýnd sinni. Þessi breyt­ing hófst um alda­mótin þegar Jimme Åkesson og þrír helstu sam­starfs­menn hans, Björn Söder, Matthias Karlsson og Richard Jomshof tóku völdin í flokknum og straum­línu­lög­uðu hann til að hreinsa af  honum nas­ista- og ras­ista­stimp­il­inn. Fjór­menn­ing­arnir eru kall­aðir „Skán­ar­gengið“  þar sem þeir kynnt­ust við háskóla­nám í Lundi á Skáni: „Þetta eru þeir fjórir sem hafa pússað, hreinsað og end­ur­mótað flokk­inn og gert hann að stjórn­mála­flokki á sænska þing­inu. Þetta eru þeir sem hafa barist fyrir því að Sví­þjóð­ar­demókratar eigi að vera álitnir venju­legur stjórn­mála­flokkur fyrir venju­legt fólk,“ segir í bók­inni. 

Anna-Lena Lodenius segir að Jimmie Åkesson hafi til dæmis sagt að ras­ismi sé bann­aður í flokknum. „Jimmie Åkesson sagði fyrir nokkrum árum að það væri: Engin þol­in­mæði fyrir ras­isma í flokknum. Þrátt fyrir þetta þá eru birtar fréttir í nán­ast hverri viku sem tengj­ast ras­isma eða óásætt­an­legri hegðun í flokknum,“ segir hún og vill meina að skoð­anir og helstu stefnu­mál flokks­ins hafi ekk­ert breyst þrátt fyrir þessar útlits­legu breyt­ingar á yfir­borð­inu. 

Þessi umbreyt­ing á ásýnd flokks­ins hefur gert það að verkum að flokk­ur­inn hefur verið kenndur við „nýfas­isma“ eða sagt að með­limir hans séu „ras­istar í jakka­fötum“  eða „nas­istar með bindi“. Önnur leið til að lýsa með­limum flokks­ins er orð eins og „pastel­ras­istar“ þar sem táknum og hörðum litum nas­ism­ans hefur verið skipt út fyrir önnur tákn og mýkri liti.  Inni­haldið, stefnan, er samt það sama. 

Frá fána til blómsMyndin sýnir hvernig tákn Sví­þjóð­ar­demókratar voru með fram til árs­ins 2006, brenn­andi sænskan fána­með slag­orð­inu Fyrir sænska Svíþjóð, sem var stolið frá breska ras­ista­flokknum National Front. Árið 2006 var merki flokks­ins breytt í blóm.

Frá brennandi fána í blátt blóm

Í bók David Baas er fjallað um það að eitt af því sem fjór­menn­ing­arnir beittu sér fyrir eftir að þeir tóku völdin var að breyta merki flokks­ins úr brenn­andi sænskum fána í blátt blóm sem kall­ast skóg­ar­blámi á íslensku. Þetta gerð­ist árið 2006, fjórum árum áður en flokk­ur­inn komst fyrst inn á sænska þingið. Brenn­andi fán­inn sem Sví­þjóð­ar­demókratar voru með sem tákn var stolið frá breska ras­ista­flokknum National Front. Í bók David Baas segir að nýja flokks­for­ystan hafi viljað gera það sama og „flestir aðrir flokkar“ og velja blóm sem tákn. Þetta var liður í því að gera Sví­þjóð­ar­demókratana venju­lega, að venju­legum stjórn­mála­flokki, fyrir venju­legt fólk. 

Síðan þá eru liðin 16 ár og nú eru Sví­þjóð­ar­demókratar orðnir stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi og hafa það í hendi sér hvort þessi nýja hægri stjórn lifir af eða ekki.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgangur þjóðernishyggju

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár