„Í hróplegri andstöðu við grunnregluna um þrígreiningu ríkisvaldsins“

Deilt verður um hæfi Davíðs Þórs Björg­vins­sonar til að dæma í málum er varða íslenska ríkið í Lands­rétti á fimmtu­dag. Ekki var orðið við beiðni um frest vegna gagna­öfl­unar.

„Í hróplegri andstöðu við grunnregluna um þrígreiningu ríkisvaldsins“

Tekist verður á um hæfi Davíðs Þórs Björg­vins­sonar, vara­for­seta Lands­réttar, til að dæma í einka­málum og saka­málum er varða íslenska ríkið nú á fimmtu­dag. 

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur kraf­ist þess að Davíð Þór víki sæti í máli skjól­stæð­ings síns í ljósi þess að Davíð Þór sinnti laun­uðum störfum fyrir íslenska ríkið í lands­rétt­ar­mál­inu, máli Guð­mundar Andra Ást­ráðs­sonar gegn Íslandi sem Vil­hjálmur rak og vann fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu (MDE). Rík­is­stjórnin til­kynnti í byrjun apríl að óskað yrði eftir end­ur­skoðun dóms­ins hjá yfir­deild MDE.

„Nú liggur fyrir að Davíð Þór hefur tekið sæti í dómi í máli Lands­réttar nr. 44/2018 þar sem ég er skip­aður verj­andi ákærða, en ákærði á ekki að þurfa að sæta því að emb­ætt­is­dóm­ari sem hefur verið að sinna lög­manns­störfum fyrir fram­kvæmda­valdið og er að reka dóms­mál gegn skip­uðum verj­anda hans fyrir MDE dæmi í máli hans,“ segir í bréfi sem Vil­hjálmur sendi Lands­rétti þann 12. apríl síð­ast­lið­inn. 

Mál­flutn­ingur fer fram fimmtu­dag­inn 8. maí næst­kom­andi. Vil­hjálmur óskaði eftir fresti meðan hann afl­aði upp­lýs­inga um öll auka­störf og greiðslur sem Davíð Þór hefði fengið síðan hann var skip­aður dóm­ari, en Lands­réttur varð ekki við þeirri beiðni.

Kaup Davíðs Þórs álíka hátt málskostnaðinum fyrir MDE

Eins og Stundin hefur greint frá fékk Davíð Þór Björg­vins­son 1,5 millj­ónir króna frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir lög­fræði­ráð­gjöf sem hann veitti rík­is­lög­manni við ritun grein­ar­gerðar til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í fyrra. Samkvæmt 6. gr. reglna um auka­störf dóm­ara er dóm­urum óheim­ilt að taka að sér mál­flutn­ings­störf sem og önnur hefð­bundin lög­manns­störf ef end­ur­gjald kemur fyrir. Þá hefur nefnd um dóm­ara­störf túlkað dóm­stóla­lög með þeim hætti að „almennt verð[i] að telja að lög­fræði­leg ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi sé ekki heimil dóm­ara“ og að það eigi við allt frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti. Samkvæmt þessum for­sendum var reglum ekki fylgt þegar Davíð Þór veitti ráð­gjöf­ina.  

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son telur ljóst að vinna Davíðs Þórs fyrir íslenska ríkið í lands­rétt­ar­mál­inu hafi verið önnur og meiri en hann upp­lýsti um í fjöl­miðlum haustið 2018. Reikn­ing­ur­inn sem hann sendi íslenska rík­inu vegna máls­ins sé raunar álíka hár og máls­kostn­að­ur­inn sem umbjóð­anda Vil­hjálms, Guðmundi Andra Ást­ráðs­syni, var dæmdur vegna rekst­urs lands­rétt­ar­máls­ins fyrir MDE. Ljóst sé að auka­starfið sem Davíð Þór tók að sér hafi í eðli sínu verið lög­manns­starf, og þar hafi Davíð Þór í raun verið að reka dóms­mál gegn sér fyrir MDE.

„Með því að taka að sér ofan­greint auka­starf fyrir íslenska ríkið braut Davíð Þór gegn 1. mgr. 45. gr. laga nr. 50/2016 og 2. gr., 1. og 2. mgr. 3. gr. og 2. mgr. 6. gr. reglna nr. 1165/2017 um auka­störf hér­aðs­dóm­ara, lands­rétt­ar­dóm­ara og hæsta­rétt­ar­dóm­ara o.fl.,“ skrifar Vil­hjálmur og bendir á að ekki hafi verið gerð grein fyrir þessu auka­starfi dóm­ar­ans á vef­svæði nefndar um dóm­ara­störf.

„Davíð Þór var meðal ann­ars að sinna fram­an­greindu auka­starfi fyrir dóms­mála­ráð­herra, en dóms­mála­ráð­herra hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd ákæru­valds“

„Með því að taka að sér fram­an­greint auka­starf fyrir íslenska ríkið og þiggja fyrir það háa greiðslu er Davíð Þór van­hæfur til þess að taka sæti í dómi í öllum málum sem varða íslenska ríkið, hvort heldur sem um er að ræða einka­mál eða saka­mál. Í því sam­bandi er rétt að benda á að Davíð Þór var meðal ann­ars að sinna fram­an­greindu auka­starfi fyrir dóms­mála­ráð­herra, en dóms­mála­ráð­herra hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd ákæru­valds sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um með­ferð saka­mála og skipar rík­is­sak­sókn­ara og hér­aðs­sak­sókn­ara sbr. 20. og 22. gr. sml. Það er líka í hróp­legri and­stöðu við grunn­regl­una um þrí­grein­ingu rík­is­valds­ins sbr. meðal ann­ars 2. gr. stjskr. að emb­ætt­is­dóm­ari sé að sinna lög­fræði­störfum fyrir fram­kvæmda­valdið gegn greiðslu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár