24 börn hælisleitenda í grunnskólum Reykjavíkur

Alls 24 börn frá Pakistan, Írak, Albaníu, Afganistan, Kosovo, Moldavíu, Túnis og Nígeríu eru um þessar mundir við nám í grunn­skólum Reykja­víkur, meðan þau bíða þess að yfir­völd kom­ist að nið­ur­stöðu um hvort þau fái að setj­ast hér að. Sérdeild fyrir börn hæl­is­leit­enda verður opnuð í Háa­leit­is­skóla á næstu haustönn.

24 börn hælisleitenda í grunnskólum Reykjavíkur
Skólakrakkar Frá og með næsta hausti munu börn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hefja nám í sér­stakri stoð­deild í Háa­leit­is­skóla, í stað þess að fara í sinn hverf­is­skóla. Mynd: Kristinn Magnússon

Um þessar mundir eru 24 börn hæl­is­leit­enda við nám í grunn­skólum Reykja­víkur, meðan þau bíða nið­ur­stöðu í málum fjöl­skyldna þeirra. Þetta sýna tölur frá skóla- og frí­stunda­sviði Reykja­vík­ur­borgar. Þrjú þeirra frá Pakistan, sex frá Írak, tvö frá Albaníu, fjögur frá Afganistan, tvö frá Kosovo, fjögur frá Moldavíu, eitt frá Túnis og tvö frá Nígeríu. Tölur um þróun fjöld­ans und­an­farna mán­uði lágu ekki fyrir þegar óskað var eftir þeim.

Á meðal þess­ara barna eru systk­inin Zainab og Amil Safari.

Skóla­fé­lagar Zainab í Haga­skóla hafa barist fyrir því að fjöl­skyldan verði ekki send úr landi. Meðal þess sem lög­maður fjöl­skyld­unnar hefur notað sem rök fyrir því að mál þeirra verði tekið fyrir hér, er að þau hafi myndað sterk tengsl við skóla­fé­laga sína og nærum­hverfi. Í síð­ustu viku hafn­aði kæru­nefnd útlend­ing­mála því að að mál þeirra verði tekið fyrir hér, á grund­velli þess að þau hafi þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Nefndin hafn­aði auk þess frestun rétt­ar­á­hrifa, sem hefði þýtt að þau fengju að dvelja hér meðan mál þeirra fer fyrir dóm. 

Tekin hefur verið ákvörðun að frá skóla­ár­inu 2019–2020 fari börn á borð við þau, börn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, ásamt þeim sem hafa mjög rofna skóla­göngu erlendis að baki, í sér­staka stoð­deild í Háa­leit­is­skóla – Álfta­mýri. Þetta var sam­þykkt á fundi skóla- og frí­stunda­ráðs 9. apríl síð­ast­lið­inn. Um miðjan febr­úar var til­kynnt að til stæði að opna slíka sér­deild í Voga­skóla. Ekki var sam­staða um val á þeim skóla og því var ákveðið að deildin yrði opnuð í Háa­leit­is­skóla.

Það vakti á sínum tíma tals­verð við­brögð þegar til­kynnt var að til stæði að opna sér­deild fyrir börn hæl­is­leit­enda í Voga­skóla. Helga Helga­dóttir, deild­ar­stjóri sér­kennslu við skól­ann, sagði meðal ann­ars í við­tali við RÚV að það væri í algjörri mót­sögn og and­stöðu við allt sem gert væri í skól­anum. „Og ég get ekki betur séð en að þetta sé hrein­lega lög­brot vegna þess að það sem kemur fram í lögum um grunn­skóla, í aðal­námskrá og í barna­sátt­mál­anum, sem er lög­bund­inn og lög­festur síðan 2013, bendir til þess að þetta sé ólög­legt.“

Helgi Grímsson, for­stöðu­maður skóla- og frí­stunda­sviðs, stendur með þeirri ákvörðun að opnuð verði sér­deild fyrir börnin og er ánægður með nið­ur­stöð­una að deildin verði í Háa­leit­is­skóla.

Helgi GrímssonFor­stöðu­maður skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar segir að börnum hæl­is­leit­enda verði tryggð félags­leg tengsl við önnur börn, í gegnum list- og verk­greinar og íþrótta­starf.

Mark­miðið sé að gera mót­töku barna hæl­is­leit­enda mark­viss­ari, byggja upp sér­fræði­þekk­ingu og nota staðla til að vita hver skóla­ganga barns­ins hefur verið, hver færni þeirra í eigin móð­ur­máli er. Þannig megi sníða nám þeirra að þörfum þeirra með mark­viss­ari hætti, meðan þau dvelja hér á landi. „Ef barn kemur hingað með mjög brotna skóla­göngu, dúkkar upp í ein­hverjum hverf­is­skóla þar sem jafn­vel er ekki fag­þekk­ing í að vinna með börnum af erlendum upp­runa, er engum greiði gerður með því að hafa slíkt fyr­ir­komu­lag. Það er reynsla okkar og reynslan erlendis frá, að það þurfi að byggja upp fag­þekk­ingu, að hafa ein­hvers konar mið­stöð þar sem við getum tryggt sér­fræði­þekk­ingu og mat á skóla­göngu barns­ins sé með sam­ræmdum hætti. Það er stóra mark­miðið með þessu hjá okkur.”

Hann segir að börn­unum verði tryggð tengsl við önnur börn. Þau muni til að mynda sækja list- og verk­greinar með öðrum nem­endum Háa­leit­is­skóla. Þá muni íþrótta­fé­lagið Fram koma að starfi með börn­unum. „Það er leyni­vopnið í sam­heng­inu, því Fram er kapp­samt um að vera með gott fjöl­menn­ing­ar­legt starf. Börnunum verður þannig tryggt far­sælt skóla-, frí­stunda- og íþrótta­starf.“

Mark­miðið sé svo að börnin fari í sína hverf­is­skóla, hvort sem það verði í sömu viku eða eftir 2–3 mán­uði, allt eftir því hvernig þeim gengur. Takist yfir­völdum hins vegar að hraða umsókn­ar­ferli umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, eins og hefur verið boðað, geti verið að ein­hver börn fari aldrei í ákveð­inn hverf­is­skóla. „Ef við vitum að ein­hver börn verði aðeins hér á landi í tvo til þrjá mán­uði geri ég ráð fyrir því að þau yrðu hér þangað til þau fara. En það er enn óljóst og við munum teikna það upp með hags­muni barn­anna að leið­ar­ljósi. Við munum tryggja þeim tengsl við önnur börn, rækta mennsk­una og veita þeim eins góðar aðstæður og kostur er, meðan þau eru hérna, hvort sem það er í 3 mán­uði eða lengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár