Útlendingastofnun horfði til reynslu hjá Securitas við ráðningu í móttökumiðstöð

Útlend­inga­stofnun leit sér­stak­lega til reynslu af örygg­is­vörslu hjá Securitas við val á umsækj­endum um mót­töku- og þjón­ustu­starf.

Útlendingastofnun horfði til reynslu hjá Securitas við ráðningu í móttökumiðstöð
Ráðinn Maðurinn hafði reynslu af örygg­is­gæslu í fyrri störfum. Sviðsett mynd. Mynd: Shutterstock

Útlend­inga­stofnun vís­aði sér­stak­lega til þess í rök­stuðn­ingi vegna ráðn­ingar manns í þjón­ustu- og mót­töku­starf á vegum stofn­un­ar­innar að við­kom­andi hefði starfað við örygg­is­vörslu hjá Securitas um þriggja ára skeið og komið þannig að „úrræðum á vegum Útlend­inga­stofn­unar“. 

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem mannauðs­stjóri Útlend­inga­stofn­unar sendi 44 umsækj­endum um starf í þjón­ustuteymi hjá mót­töku­mið­stöð Útlend­inga­stofn­unar í jan­úar síð­ast­liðnum. Í starfs­aug­lýs­ing­unni var til­greint að starfið fæli í sér „dag­lega þjón­ustu við umsækj­endur um vernd, við­töl og ráð­gjöf og önnur til­fallandi verk­efni á svið­inu“. Á meðal hæfnikrafna var „stúd­ents­próf eða sam­bæri­leg menntun“. 

Fram kemur í bréfi mannauðs­stjóra til umsækj­enda um starfið að sá sem varð fyrir val­inu hafi „stundað nám“ við fram­halds­skóla en „lokið námi frá Sjúkra­flutn­inga­skól­anum“. Við­kom­andi hafi víð­tæka starfs­reynslu, meðal ann­ars sem örygg­is­vörður hjá Securitas. „Sem starfs­maður Securitas hefur hann starfað í úrræðum á vegum Útlend­inga­stofn­unar og þekkir því þá starf­semi mjög vel,“ segir í bréf­inu. 

Mót­töku­mið­stöð Útlend­inga­stofn­unar er sam­kvæmt 27. gr. útlend­inga­laga „opið mót­töku- og þjón­ustu­úr­ræði“ fyrir hæl­is­leit­endur við komu þeirra til lands­ins. Þar er meðal ann­ars hlúð að fórn­ar­lömbum mansals og útlend­ingum í neyð og tekin við­töl við hæl­is­leit­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár