Skólafélagar og kennarar berjast fyrir Zainab

Það var til­finn­inga­þrungin stund í Haga­skóla í gær, þegar Zainab Safari, fjórtán ára stelpa frá Afganistan, lýsti lífi sínu fyrir skóla­fé­lögum sínum og kenn­urum. Réttinda­ráð Haga­skóla hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem því er mót­mælt harð­lega að vísa eigi Zainab, móður hennar og litla bróður, úr landi.

Skólafélagar og kennarar berjast fyrir Zainab
Zainab og Þorbjörg Hér er Zainab með kenn­ara sínum, Þor­björgu Hall­dórs­dóttur. Þær standa við hurð­ina að stofu Þor­bjargar í Haga­skóla en hún kennir íslensku sem annað mál. Við inn­gang­inn stendur orðið vel­komin skrifað á öllum tungu­málum nem­enda hennar. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

„Krakk­arnir eru að safna und­ir­skriftum sem á að afhenda stjórn­völdum. Það hlýtur að vera hægt að fara fram á end­ur­upp­töku þessa máls,“ segir Þorbjörg Hall­dórs­dóttir, sem kennir íslensku sem annað mál við Haga­skóla. Einn nem­enda hennar er Zainab Safari. Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar birt­ist við­tal við hana, móður hennar og bróður. Þeim hefur í tvígang verið synjað um efn­is­lega með­ferð á máli sínu á Íslandi og bíða þess nú að verða flutt úr landi. Í mynd­band­inu hér fyrir neðan má sjá hvernig Zainab lýsir líðan sinni á Íslandi. 

Zainab sagði nem­enda­ráði, nem­enda­full­trúum og réttinda­ráði Haga­skóla sögu sína í gær. Þorbjörg segir að það hafi reynt á alla við­stadda að hlusta á hana. „Hún er svo ótrú­lega hug­rökk og gerði þetta mjög vel. Hún lýsti ferða­lagi fjöl­skyld­unnar frá Íran til Tyrk­lands. Hvernig þau gengu tímunum saman í fjall­lendi og sváfu úti í miklum kulda. Hvernig þau gerðu nokkrar til­raunir til að kom­ast á báti yfir til Grikk­lands og hvernig stöðugt var logið að þeim og þau svikin. Að lokum komust þau yfir til Grikk­lands en þá reynd­ist lífið þar mjög erfitt. Þau bjuggu við mjög hættu­legar aðstæður. Það var erfitt að hlusta á þessu frá­sögn, enda var ekki þurrt auga í salnum. Zainab hefur gengið í gegnum skelfi­lega reynslu oftar en einu sinni,“  segir Þorbjörg.

„Það var erfitt að hlusta á þessu frá­sögn, enda var ekki þurrt auga í salnum.“

Þegar Zainab frétti af því að Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði, eins og Útlend­inga­stofnun, synjað fjöl­skyld­unni um efn­is­lega með­ferð fór hún langt niður og hætti að mæta í skól­ann. Mamma hennar kom í fylgd túlks í skól­ann og sagði frá því að dóttir hennar vildi helst ekki lifa lengur. En kenn­ar­arnir köll­uðu hana á fund og sann­færðu hana um að halda áfram að koma í skól­ann. Það væri betra en að bíða heima, eftir því að verða færð í burtu.

„Við hér í skól­anum ætlum að gera allt sem við getum til að hjálpa henni. Hún er hlý og góð stúlka, ofsa­lega vand­virk og á auð­velt með nám. Svo er hún list­ræn, góð að teikna og kann að föndra ótrú­leg­ustu hluti. Þetta er hæfi­leik­a­rík stelpa og það er engin spurn­ing að hún á að fá fram­tíð hér, á okkar landi,“ segir Þorbjörg og bætir við að lokum: „Að ætla að senda þau í burtu er ólýs­an­leg grimmd. Ég hefði aldrei getað trúað því að þetta gæti gerst á Íslandi. Við höfum allt að bjóða hér og getum ekki sent sár­fá­tæka og veika móður með tvö börn út í þessar hrylli­legu aðstæður. Þau þurfa hjálp og skjól. Þau hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og hafa engan mögu­leika á að takast á við lífið í því ófremd­ar­á­standi sem ríkir í Grikk­landi.“

„Við höfum allt að bjóða hér og getum ekki sent sár­fá­tæka og veika móður með tvö börn út í þessar hrylli­legu aðstæður.“

Réttinda­ráð Haga­skóla sendi í dag frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fyr­ir­ætlun stjórn­valda um að vísa Zainab og fjöl­skyldu hennar úr landi er mót­mælt harð­lega. „Zainab er 14 ára nem­andi í Haga­skóla sem hefur þurft að ganga í gegnum hluti sem eng­inn ætti að þurfa að ganga í gegnum. Hún finnur til öryggis á Íslandi, er í góðum bekk í Haga­skóla og líður vel með nem­endum og starfs­mönnum sem styðja við bak hennar,“ segir í til­kynn­ing­unni.  „Réttinda­ráð fer fram á að stjórn­völd end­ur­skoði ákvörðun sína með hlið­sjón af Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hefur verið lög­leiddur á Íslandi en í 3. grein sátt­mál­ans segir að „allar ákvarð­anir eða ráð­staf­anir yfir­valda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu.“

Til stendur að halda við­burð og fjár­öflun til að vekja athygli á mál­inu og styðja við fjöl­skyld­una í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár