Kvótaeigendur styrktu stjórnmálaflokka um 13 milljónir í fyrra

Tæpur þriðj­ungur allra styrkja lög­að­ila til stjórn­mála­flokka í fyrra kom frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi. Rík­is­stjórnin lækk­aði veiði­gjöld um 4 millj­arða króna í des­em­ber. Eigendur Morg­un­blaðs­ins styrktu stjórn­mála­flokka um rúmar 2 millj­ónir.

Kvótaeigendur styrktu stjórnmálaflokka um 13 milljónir í fyrra

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk rúma 3,1 milljón króna í styrki frá kvóta­eig­endum í fyrra og Mið­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn báðir á þriðju milljón króna. Alls voru styrkir útgerð­ar­innar tæpur þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar sem lög­að­ilar styrktu stjórn­mála­flokka um á síð­asta ári.

Upp­lýs­ingar um styrki lög­að­ila og ein­stak­linga til stjórn­mála­flokka koma fram í end­ur­skoð­uðum árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokka á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í heild styrktu lög­að­ilar flokk­ana um tæpar 48 millj­ónir króna í fyrra. Þar af námu styrkir fyr­ir­tækja sem eiga fisk­veiði­kvóta rúmum 13 millj­ónum króna. Séu fyr­ir­tæki í fisk­eldi, vinnslu fisks og útflutn­ingi hans tekin með nær upp­hæðin yfir 15 millj­ónir.

Styrkir kvóta­eig­enda árið 2016 voru um 16 millj­ónir króna, en mikil umræða stóð yfir fyrir alþing­is­kosn­ingar það árið um upp­boð fisk­veiði­heim­ilda og gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Kosið var óvænt til Alþingis ári síðar eftir að slitn­aði upp úr rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar.

Við tók rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttir. Hinn 11. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár