Stjórnarflokkarnir skammta sér hátt í 200 milljónir í viðbót úr ríkissjóði

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis vill að fram­lög hins opin­bera til stjórn­mála­flokka verði hækkuð um 362 millj­ónir króna, en ekk­ert liggur fyrir um aukið eft­ir­lit með fjár­málum stjórn­mála­sam­taka.

Stjórnarflokkarnir skammta sér hátt í 200 milljónir í viðbót úr ríkissjóði

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis vill að fram­lög hins opin­bera til stjórn­mála­flokka verði hækkuð um 362 millj­ónir króna. Hug­myndir Pírata um að sam­hliða yrði veitt auka­fram­lag til Rík­is­end­ur­skoð­unar til að efla eft­ir­lit með fjár­málum stjórn­mála­flokka fengu hins vegar ekki hljóm­grunn að sögn Björns Levís Gunn­ars­sonar, full­trúa flokks­ins í fjár­laga­nefnd. 

Uppfært kl. 20:05: Björn Leví segir að mis­skiln­ings hafi gætt og ekki hafi verið sann­gjarnt að kenna öðrum flokkum um að hug­myndir Pírata um við­bót­ar­fram­lag til Rík­is­end­ur­skoð­unar fengu ekki braut­ar­gengi, enda hafi aldrei verið tekin form­leg afstaða til máls­ins.

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram á næsta ári og er fjár­hags­staða Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins slæm, enda skuld­settu báðir flokkar sig umtals­vert í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga. 

Eins og Stundin greindi nýlega frá fóru full­trúar allra stjórn­mála­flokka á Alþingi nema Pírata og Flokks fólks­ins fram á það við fjár­laga­nefnd að útgjöld rík­is­ins vegna starf­semi stjórn­mála­flokka yrðu um 362 millj­ónum meiri á fjár­laga­ár­inu 2018 heldur en gert var ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram þann 14. des­em­ber. Þetta er um helm­ingur þess sem stjórn­endur Land­spít­al­ins telja að vanti upp á til að geta haldið sjó í rekstri spít­al­ans og tryggt sjúk­lingum við­eig­andi þjón­ustu. 

Í dag lagði meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af full­trúum Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna, fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þar sem komið er að fullu til móts við kröfur stjórn­mála­flokk­anna. Hins vegar er ekki að neinu leyti komið til móts við óskir Land­spít­al­ans um aukin fram­lög.

Ef sú aukn­ing sem lögð er til í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hlut­ans verður að veru­leika má gera ráð fyrir, sam­kvæmt laus­legum útreikn­ingum, að í kringum 90 millj­ónir renni auka­lega til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árinu 2018, um 60 millj­ónir til Vinstri grænna og um 40 millj­ónir til Fram­sókn­ar­flokks­ins. Samtals eru þetta hátt í 200 millj­ónir.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi í morgun að skipuð yrði nefnd um end­ur­skoðun laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra greindi frá áformum um skipun nefnd­ar­innar á þriðju­dag í svari við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, um nafn­lausan kosn­inga­á­róður.

„Ég hef í hyggju að óska eftir því við fram­kvæmda­stjóra stjórn­mála­flokk­anna að þeir setj­ist sjálfir, eða til­nefni aðila til þess, saman í nefnd til að fara yfir lögin um fjár­reiður stjórn­mála­flokka. Hluti af því sem þar þarf að vera undir er auð­vitað hvernig eigi að fara með póli­tískar aug­lýs­ingar eða póli­tísk skila­boð sem eru nafn­laus og fjár­mögnun þeirra,“ sagði Katrín og bætti við að hugs­an­lega yrði óskð eftir aðkomu Rík­is­end­ur­skoð­unar að mál­inu. Það væri hags­muna­mál allra að stjórn­mála­flokkar væru reknir „með sem gagn­sæj­ustum hætti“. 

Þrátt fyrir að nefndin hafi ekki verið skipuð og engum aðgerðum hafi verið hrint í fram­kvæmd til að stuðla að auknu gagn­sæi stjórn­mála­starf­semi vill meiri­hluti fjár­laga­nefndar stór­auka fram­lög hins opin­bera til stjórn­mála­flokk­anna í takt við til­lög­una frá full­trúum allra flokka nema Pírata og Flokks fólks­ins. 

Uppfært kl. 20:10: Ummælin hér að neðan voru höfð eftir í dag, en eru að hluta til sprottin af mis­skiln­ingi og verða að skoð­ast í því ljósi:

Björn Leví Gunn­ars­son, full­trúi Pírata í fjár­laga­nefnd, segir að öllum til­lögum flokks­ins í tengslum við fjár­mál stjórn­mála­sam­taka hafi verið hafnað. 

„Píratar lögðu til nokkrar breyt­ingar á fjár­mögnun stjórn­mála­flokk­anna sem var öllum hafnað, til dæmis að bætt yrði í hjá Rík­is­end­ur­skoðun til þess að hægt væri að fylgj­ast betur með fjár­málum stjórn­mála­flokk­anna sem og sér­stöku fram­lagi sem myndi dreifast jafnt á alla flokka. Mark­miðið með því var að jafna rekstr­ar­stöðu flokka sem allir þurfa að standa undir ákveðnum grunn­kostn­aði óháð stærð,“ segir hann í sam­tali við Stundina. 

„Fjár­laga­nefnd fékk afar skamman tíma til þess að fjalla um fjár­laga­frum­varpið. Til að mynda var vel­ferð­ar­hluti frum­varps­ins kynn­ntur á hálf­tíma. Fjórð­ungur fjár­laga fékk hálf­tíma kynn­ingu á meðan 362 millj­óna til­laga stjórn­mála­flokk­anna fékk jafn langan tíma, til­laga stjórn­mála­flokk­anna um aukin fram­lög til þeirra sjálfra. Nið­ur­staðan eftir breyt­inga­til­lögur meiri hlut­ans er að stjórnin mun skila heil­brigð­is­kerf­inu í tapi í lok árs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár