Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu

Halla Hrund Loga­dóttir vill hvetja útlend­inga til að „læra tungu­málið okkar í gegnum söng og íslensk­una.“ Halla Hrund segir að við þurfum að vera aðeins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var meðal for­seta­fram­bjóð­enda sem mættu í pall­borðsum­ræður í síð­asta þætti Pressu.

„Ég ætla að koma með eina litla hug­mynd. Nú eigum við þessa ríku Íslensku menn­ingu í kóra hefð­inni okkar.“ sagði Halla Hrund Loga­dóttir, for­seta­fram­bjóð­andi í þætti Pressu. 

Í þætt­inum var Halla spurð hvað hún ætti við þegar hún sagði, í kosn­inga­mynd­bandi sínu, að hún myndi vinna að því að fjölga tæki­færum allra í land­inu, ásamt því að efla sam­kennd og sam­stöðu land­inu.

Sagði Halla að nú væri kjörið tæki­færi til þess að „þétta rað­irnar og hluti af því er draga saman betur tæki­færi á mill ólíkra hópa í sam­fé­lag­inu.“

Mikil skautun er í sam­fé­lag­inu gagn­vart fjöl­menn­ingu og mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­fólks hefur verið áber­andi í umræð­unni unda­farið. Taldi Halla þörf á að beita skap­andi hugsun og lausnum til þess að leysa við­fangs­efni af þessu tagi.

Kom hún með þá til­lögu að í stað þess að setja fólk í íslensku skóla, „af hverju erum við ekki að draga fólk inn í svo­leiðis starf, kór­a­starf? Læra tungu­málið okkar í gegnum söng og íslensk­una. Sjá hvert annað í nýju ljósi í gegnum svo­leiðis sam­vinnu.“

Þegar kemur að því að inn­leiða fólk inn í sam­fé­lagið vill Halla Hrund að við séum „dálítið klók í því hvernig við ætlum að nálg­ast þessi mál og það á ekki bara við um fólk sem að hefur komið hingað ann­ars staðar frá. Þetta gildir líka að fatlað fólk fái líka að vera partur af sam­fé­lag­inu á alla vegu, að við séum að tengja betur á milli kyn­slóða bara heilt yfir.“

Hér má horfa á Pressu í heild sinni þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir fjórir mætt­ust. Fyrri helm­ingur þátt­ar­ins er aðgengi­legur öllum en þátt­ur­inn í heild sinni er aðgengi­legur áskrif­endum.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Ég ætla að vona að forsetaframbjóðandi hafi meira vit í kollinum en kemur fram í þessari grein að útlendingar eigi að "læra tungumálið gegnum söng og íslenskuna". Í gegnum hvaða annað tungumál ættu þeir að læra íslensku
    -7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár